Efling vísar athugasemdum SA alfarið á bug

Efling lýsir yfir von­brigðum með athuga­semdir SA vegna atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun hót­el­þerna þann 8. mars næst­kom­andi.

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Mynd: Aðsend mynd

Efling lýsir yfir von­brigðum með athuga­semdir SA vegna atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun hót­el­þerna þann 8. mars næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins sendu frá sér til­kynn­ingu í morgun þar sem þau skor­uðu á Efl­ingu að stöðva nú þegar atkvæða­greiðslu um verk­fall sem koma á til fram­kvæmda 8. mars næst­kom­andi. SA telja ólög­lega staðið að atkvæða­greiðslu um verk­fall­ið.

Verði Efl­ing ekki við áskorun Sam­taka atvinnu­lífs­ins munu SA höfða félags­dóms­mál gegn stétt­ar­fé­lag­inu. Nið­ur­staða dóms­ins mun, sam­kvæmt SA, liggja fyrir áður en verk­falli er ætlað að koma til fram­kvæmda.

[links]Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóri Eflingar segir full­yrð­ingar SA fjarri lagi og athuga­semd­irnar aug­ljós­lega til þess ætl­aðar að hindra félags­menn Eflingar í að nýta lýð­ræð­is­leg rétt­indi sín.

Formaður kjörstjórnar Eflingar þegar svarað SA

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar seg­ist harma afskipti SA og ein­sakra atvinnu­rek­enda af kosn­ing­unum. „Það er með ólík­indum að sjá hags­muna­að­ila reyna að stöðva þá miklu upp­risu verka­fólks sem nú er í gangi,“ segir Sólveig. Hún hefur varið morgn­inum í verk­falls­kosn­inga­bíl Eflingar sem ekið hefur milli hót­ela. „Það hefur verið magnað og ótrú­legt að fylgj­ast með und­ir­tektum Efl­ing­ar­fé­laga. Allir eru ólmir að kjósa og mik­ill hugur í fólk,“ segir Sólveig.

Í til­kynn­ingu Eflingar áréttar Viðar að allur und­ir­bún­ingur og fram­kvæmd kosn­ing­anna hafi verið í sam­ræmi við við­eig­andi reglur. Þar sé um að ræða lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur nr. 80 frá 1938, lög Eflingar og Reglu­gerð ASÍ um leyni­lega alls­herjar atkvæða­greiðslu meðal félags­manna aðild­ar­sam­taka. „Lögmenn okkar og for­maður kjör­stjórnar hafa að sjálf­sögðu yfir­farið þessar reglur mjög vand­lega,“ segir Viðar. Hann segir Eflingu vísa athuga­semdum SA alfarið á bug og að for­maður kjör­stjórnar Eflingar hafi þegar svarað SA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár