Föngun koltvísýrings að verða raunhæfari

Árni Snævarr spjall­aði við Sigurð Reyni Gíslason, for­sprakka CarbFix verk­efn­is­ins á Hell­is­heiði, en hann segir að í raun sé sið­laust að fanga ekki og binda koltví­sýr­ing í útblæstri iðn­aðar og orku­vera áður en hann bland­ast and­rúms­loft­inu.

Hellisheiðarvirkjun
Hell­is­heið­ar­virkjun Mynd: Árni Sæberg

Athygli bein­ist nú í sívax­andi mæli að föngun og bind­ingu kol­vtví­sýr­ings eftir því sem efa­semdir aukast um að mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins um lofts­lags­mál verði náð. Á sama tíma hafa efna­hags­legar aðstæður breyst og föngun og bind­ing (CCS) eru nú ákjós­an­legri fjár­fest­ing­ar­kostur en áður.

Íslenskir og erlendir vís­inda­menn hafa stundað föngun og bind­ing kol­v­tí­sýr­ings í svoköll­uðu CarbFix verk­efni, á Hell­is­heiði und­an­farin ár. Upp­söfnun koltví­sýr­ings í and­rúms­loft­inu af manna völdum er tal­inn valda lofts­lags­breyt­ingum.

Sigurður Reynir Gíslason, pró­fessor í jarð­efna­fræði við Háskóla Íslands, er ekki aðeins for­kólfur CarbFix verk­efn­is­ins, heldur einnig for­maður sam­taka evr­ópskra jarð­efna­fræð­inga. Hann segir að það sé engin ástæða til bjart­sýni. Til séu nægar birgðir af ódýrum kolum á jörð­unni. Því sé hætt á að losun koltví­sýr­ings til and­rúms­lofts muni lík­lega halda áfram að aukast þrátt fyrir Lofts­lags­samn­ing­inn og Kyoto-bók­un­ina við hann.

„Ég held að það sé ósk­hyggja að við náum mark­mðum um kolefn­is­jöfnun and­rúms­lofts fyrir 2050 með því einu að minnka hratt losun,“ segir Sigurður Reynir í við­tali við Norræna frétta­bréf UNRIC. Hann bendir á að á síð­asta ári haf losun auk­ist í heim­inum aðal­lega í þró­un­ar­ríkjum og farið sé að draga úr þeirri minnkun sem verið hafi í Banda­ríkj­unum. Hann segir stefna í að svart­sýnni sviðs­myndir sem Lofts­lags­nefndin dró upp síð­stliðið haust verði að veru­leika.

Í síð­ustu skýrslu Lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna voru færð rök fyrir því að ólík­legt væri að mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um að tak­marka hlýnun jarðar við eina og hálfa til tvær gráður næð­ust ein­göngu með því að draga úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og auka hlut end­ur­nýj­an­legrar orku.

António Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, hvatti til auk­innar föng­unar og bind­ingar koltví­sýr­ings í ræðu sem hann hélt eftir að skýrsla Lofts­lags­nefnd­ar­innar var gefin út síð­ast­liðið haust.

Við þær aðstæður verður að grípa til ann­ara ráð­staf­ana, bendir Sigurður Reynir á. Þar á meðal eru vissu­lega aðgerðir eins og gróð­ur­setn­ing skóga, og vinnslu kolt­vi­sýr­ings úr þeim. Hins vegar hljóti að koma til kasta föng­unar og bind­ingar kol­v­tí­sýr­ings.

60% af losun til and­rúmslofs er frá föstum upp­runa­stöðum til dæmis orku­verum, álverum og sem­ents­verk­smiðjum. Afgang­ur­inn á sér dreifðan upp­runa og nægir að nefna sam­göngur og land­búnað.

„Ég tel í raun sið­laust að taka þetta ekki úr strompum iðn­vera eða orku­vera,“ segir Sigurður Reynir.

Norðmenn hafa verið í far­ar­broddi í þessum efnum í Evrópu en þeir hafa fangað og bundið á olíu- og gasvinnslu­svæðum sínum í Norð­ur­sjó frá 1996. Banda­ríkja­men eru hins vegar stór­tæk­astir í þessum efnum á heims­vísu, en Norðmenn vilja skjóta þeim ref fyrir rass og segj­ast hafa nægt rými til að geyma alla losun Evrópu. „Föngun og bind­ing kol­vtví­sýr­ings leika lyk­il­hlut­verk í því að takast á við losun sem ekki verður dregið úr með neinum öðrum hætti,” sagði Miguel Arias Cañete, orku­mál­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins á ráð­stefnu sem Norðmenn skipu­lögðu í Brussel ekki alls fyrir löngu.

Verið er að þróa ýmiss konar tækni til að koma koltví­oxíði fyrir þannig að það safn­ist ekki fyrir í and­rúms­loft­inu og valdi gróð­ur­húsa­á­hrifum. Hægt er að binda koltví­oxíð í sjó og víst er að hafið tekur við. Þá er hægt er að leysa það í vatni, dæla niður í jarð­lög eins og gert er t.d. á Hell­is­heiði. Þar leysir vatnið málma úr berg­inu sem bind­ast koltví­oxíð­inu, sem fellur út og myndar stein. Þá er koltví­oxíðið „stein­runnið“ og bindið í jörð­inni í þús­undir eða jafn­vel millj­ónir ára. „Það kostar vissu­lega nokkuð að fanga og binda kol­ví­oxíð úr „strompi“ Hell­is­heið­ar­virkj­unar, um 25$ tonnið en mun minna en að taka það beint úr and­rúms­lofti.“

Koltví­sýr­ingur hefur verið fang­aður úr útblæstri Heill­is­heið­ar­virkj­unar og einnig beint úr and­rúms­loft­inu í svoköll­uðu CarbFix2 verk­efni. Kostn­aður við föngun beint úr and­rúms­lofti er enn sem komið er mik­ill. „Það er meira en tíu sinnum dýr­ara en að fanga úr strompi,“ segir Sigurður.

Dýrast er að fanga koltví­oxíðið hvort sem er í strompi eða beint úr and­rúms­lofti, en ódýr­ara er að koma því fyrir djúp í jörðu á a.m.k 500 m dýpi. Einnig kostar tölu­vert að flytja koltví­sýr­ing á til­ætl­aðan förg­un­ar­stað.

Taka má álverin á Íslandi sem dæmi en þau tengd­ust los­un­ar­kvóta­mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins (ETS) árið 2013. Í upp­hafi fengu þau um 70% los­un­ar­heim­ilda sinna ókeypis, en afgang­inn keyptu þau á kvóta­mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins (EST). Um 2.5% af ókeypis los­un­inni fyrn­ast á hverju ári eftir inn­göngu á los­un­ar­mark­að­inn. Árið 2013 var sölu­veðrið á kvóta 5-7 evrur tonnið en er nú um 25 evrur tonnið. Brátt þurfa álverin því að borga fyrir alla losun og verðið verður þá allt annað en það var 2013. Verð kolefn­isk­vót­ans er nú orðið jafnt kosn­aði við föngum og bind­ingu koltví­oxíðs í útblæstri („strompi“) Hell­is­heið­ar­virkj­unar og verðið kvót­ans á lík­lega eftir að hækka enn. Það er því loks kom­inn pen­inga­legur hvati fyrir stór­iðju á Íslandi til þess að fanga koltví­oxíð í útblæstri sínum. Eins má geta þess að nýleg skatta­lög í Banda­rík­unum gefa fyr­ir­tækum 50$ skatta­af­slatt fyrir hvert tonn af kol­ví­oxíði sem bundið er í jarð­lögum.

„Ef við eigum að ná kolefn­is­jöfnun and­rúms­lofts fyrir árið 2050 þá er alveg ljóst að við verðum að fanga allt koltví­oxíð frá iðju- og orku­verum á Jörðinn. Nú er loks kom­inn vísir að efna­hags­legum hvata til þeirra fram­kvæmda í Evrópu og Banda­rík­unum en hann vantar sár­lega í þró­un­ar­rík­unum. Því er hætt við að við verðum að hreinsa kol­víxíð beint úr and­rúms­loft á seinni hluta þess­arar aldar með ærnum kosn­aði,“ segir Sigurður Reynir Gíslason, pró­fessor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár