Bíddu meðan ég snappa það

Kim Kardashian West er dugleg á Snapchat.
Kim Kar­dashian West er dug­leg á Snapchat. Mynd: EPA

Ég fer á kaffi­hús í miðbæ Reykja­vík­ur, svona til að breyta út frá hvers­dags­legu les­stof­unni í Háskóla Íslands, fæ mér cappuccino og stærð­ar­innar gul­rót­artertu, sest niður á vel val­inn stað. Er til­búin að vinda mér í skrif eða lestur dags­ins, en áður en ég tek bita eða sopa af kræs­ing­un­um, þá tek ég Snapchat-­mynd og set í story. Um helg­ina fer ég síðan út á lífið með vinum mín­um, mér finnst ég líta svo vel út eftir að ég er búin að eyða dágóðum tíma að gera mig til að ég ákveð að taka mynd af mér í flotta nýja kjólnum mín­um, skelli henni á Instagram, set flotta síu sem lætur lit­ar­hátt minn líta betur út og bíð eftir að like-in hrann­ist inn. Tek síð­an snapp af flösku­borð­inu á B5 og af því hvernig vinur minn dansar asna­lega upp á borði og tek eina sjálfu með vin­konu.

Dag­inn eftir er bröns og ég skelli í mímósu með, ég tek Snapchat-­mynd­band af því þegar við vin­kon­urnar skál­um. Læt það ekki nægja heldur tek líka mynd af hópn­um, bið þær um að þjappa sér saman og halda á glösum og skelli síðan bestu mynd­inni af þeim tutt­ugu sem við tókum á Instagram að­gang minn, lýsi birtu­skil­yrðin og finn upp góða yfir­skrift á mynd­inni. Deili síðan einnig á Face­book. Því ef ég miðla því ekki, hvernig á þá fólk að vita að ég hafi gert þessa hluti?

[adspot]

Flestir ungir snjall­síma­not­endur og sam­fé­lags­miðla­skoð­endur ættu að kann­ast við eitt­hvað af þessum dæmum sem sett hafa verið fram. Allir mis­-„­sekir“ um magn mynda eða mynd­banda sem eru tekin og síðan deilt á sam­fé­lags­miðlum á borð við mynd­for­rit­in Instagram og Snapchat. Tvö fremur ólík for­rit í verkan en deila hins vegar svip­aðri ætl­an. Bæði for­ritin hafa nefni­lega nán­ast leyst af hlut­verk raun­veru­leika­sjón­varps og veita því gægju­hneigðu sam­fé­lagi mik­illa ánægju og/eða óánægju. Sú hug­mynd sem raun­veru­leika­sjón­varpið inn­leiddi, þessa um að frægð væri eft­ir­sóttur og góður hlut­ur, sem nán­ast hver sem er gæti öðl­ast ef hann legði sig fram í líf­inu, liti vel út og klæddi sig í nýj­ustu tísku, hef­ur tví­eflst með til­komu sam­fé­lags­miðla sem hvaða meðal­jón getur nýtt sér.

Sam­fé­lags­miðlafor­rit­ið Snapchat vex sífellt meira í vin­sældum hér á landi, sem og á mörgum öðrum stöðum í heim­in­um. For­rit­ið, sem hægt er að fá í flesta nýj­ustu snjall­sím­ana, er orð­inn að eins­konar fjöl­miðli í þeim skiln­ingi að fjölda­margar leiðir eru í boði til að not­færa sér for­ritið til að hafa sam­skipti og deila með öðru fólki upp­lýs­ingum og myndefni, þá bæði með spjall­glugg­um, mynd­banda­upp­tökum og beinni sím­tala­teng­ingu. Mið­ill­inn er auk þess ávallt í end­ur­mótun og við hann bæt­ast reglu­lega nýir eig­in­leikar í formi sía (e. filt­ers), frétta og tákna.

Snapchat hefur þó þann hátt­inn á að öll miðlun er ein­ungis sýni­leg í stuttan tíma í senn, sem eykur einnig undir það sér­kenni að þetta er miðlun á raun­veru­legu lífi sem er ein­ungis hægt að horfa á í raun­tíma. Engar end­ur­sýn­ing­ar, allt er nýtt, ferskt og að ger­ast akkúrat þessa stund­ina. Stórar raun­veru­leika­stjörnur á borð við Kar­dashian fjöl­skyld­una nýta mið­il­inn óspart, og hafa þar með veitt aðdá­endum sínum nán­ast óend­an­legan aðgang að einka­lífi sínu, sem nær langt út fyrir það sem sést í raun­veru­leika­þátta­seríu þeirra, Keep­ing up with the Kar­dashi­ans. Fyrir utan þessa símiðlun þá gef­ur Snapchat einnig meiri lof­orð fyrir raun­veru­legum raun­veru­leika, ef svo má segja. Áhorf­endur og aðdá­endur stjarn­anna fá þá til­finn­ingu að þekkja stjörn­una betur og nánar vegna per­sónu­legra skila­boða í formi snappa.

Raun­veru­leika­sjón­varp stjarn­anna fær aukið vægi með Snapchat

Það sem Snapchat gerir einnig að verkum er að við, hinn óbreytti almúgi, alls óvið­kom­andi nokkrum papp­a­rössum eða milljón doll­ara villu í Los Ang­eles, fáum einnig að vera stjörn­u­r. Snapchat býr til grund­völl fyrir miðlun sem er á pari við raun­veru­leika­sjón­varp stóru sjón­varps­fyr­ir­tækj­anna. Við erum stjórn­endur okkar eigin miðl­unar og sköp­un­ar. Við höfum mjög sterka þörf fyrir að deila hlutum með öðrum ein­stak­lingum og er því þessi grund­völlur símiðl­unar í formi sam­fé­lags­miðla ákjós­an­legur og vin­sæll. Algengt er að deila fyndnum mynd­brotum með vinum sínum og fjöl­skyldu en eftir því sem mið­ill­inn óx í vin­sældum fór það að fær­ast í auk­ana að þeir not­end­ur Snapchat sem voru hvað fyndn­astir eða snjall­astir í notkun mið­ils­ins opn­uðu aðgang sinn fyrir ókunn­ugum og leyfðu hverjum sem er að fylgj­ast með sínu dag­lega lífi.

Svo­kall­að­ir snapp­arar hafa því orðið til hér á landi sem og ann­ars staðar. Raun­veru­legt fólk, sem er ekki and­lit neinna stór­fyr­ir­tækja né frægt fyrir nein til­tekin verk, fá þús­undir fylgj­enda með því einu að vera umtöluð um að vera fynd­in, sniðug eða skemmti­leg. Flottur og eft­ir­sókn­ar­verður lífs­stíll er þó aðal aðdrátt­ar­afl gægju­hneigðar (e. medi­ated voyer­ism) en margir af vin­sæl­ustu snöpp­ur­unum klæð­ast einmitt fínum og vin­sælum flík­um, eiga fal­leg og hrein heim­ili, vinna í eft­ir­sókn­ar­verðum störfum og eiga skemmti­legt og/eða fjöl­breytt félags­líf.

Snapchat er þó ekki ein­ungis hið nýja raun­veru­leika­sjón­varp, heldur hefur mið­ill­inn einnig leyst hið svo­kall­aða blogg af hólmi. Lífstíls­ráð, hús­ráð og snyrtiráð eru því gríð­ar­lega algeng inni á Snapchat og hefur þeim snöpp­urum farn­ast best sem gefa bestu ráðin sem henta í land­ann hverju sinn­i. Snapp­ar­arnir fá síðan enda­lausar spurn­ingar frá áhorf­endum sín­um, þar sem kraf­ist er meiri upp­lýs­inga um einka­líf, lífs­stíl eða um per­sónu­legar eig­ur snapp­ar­ans. Fólk er for­vitið um annað fólk og í þess­ari iðju brýst gægju­hneigð ein­stak­linga mest fram.

Snapp­ar­arnir gefa inn­sýn inn í sín per­sónu­legu líf, en því þarf þó að taka með fyr­ir­vara þar sem að hægt er að taka mynd­skeiðin oft upp þangað til að full­komnun er náð. Svo­kall­aðar fegr­un­ar-síu eða „beauty-filt­erar“ fegra ásýnd not­enda og ein­ungis er sýnt það sem snapp­ar­inn vill að sé sýnt. Hver og einn not­andi miðlar því sem hann vill miðla. Snapchat og mynd­for­rit­ið Instagram gefa tæki­færi fyrir hvern og einn að skapa sér ákveðna per­sónu og sjálfs­mynd. Mögu­lega fegraða með ýmsum leið­um. „Like-in“, deil­ing­arnar og fjöldi fylgj­enda eru síðan þeir mæli­kvarðar sem eru not­aðir á virði per­són­unn­ar. Enda mætti segja að við séum með sköpun okkar á eigin sam­fé­lags­miðla­per­sónu að gefa færi á því að vera dæmd og dæma sjálf. Við erum hinar nýju raun­veru­leika­stjörn­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár