Þerna er 17 ár að vinna sér inn árstekjur stjórnarformanns

Stjórn­ar­for­maður Íslands­hót­ela og helsti eig­andi sam­stæð­unnar var með 77,6 millj­ónir króna í heild­ar­tekjur árið 2021. Hót­el­þerna á lægstu launum sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingum er tæpa 18 mán­uði að vinna sér inn mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns­ins. Og 17 ár að vinna sér inn árs­tekjur hans.

Heild­ar­árs­tekjur Ólafs D. Torfa­sonar, stjórn­ar­for­manns Íslands­hót­ela og helsta eig­anda sam­stæð­unnar, voru 77,6 millj­ónir á árinu 2021 sam­kvæmt hátekju­lista Stund­ar­innar. Um er að ræða heild­ar­tekjur, launa- og fjár­magnstekjur. Sam­svarar það árs­launum 17 hót­el­þerna á Íslands­hót­elum, ef miðað er við neðri mörk byrj­un­ar­launa hót­el­þerna en árs­launum 16 hót­el­þerna ef mið er tekið af hæsta launa­flokki og fimm ára starfs­reynslu. Ein hót­el­þerna er því 16 til 17 ár að vinna sér inn heild­ar­árs­tekjur helsta eig­anda hót­el­sam­stæð­unnar. 

Áttföld mánaðarlaun hótelþerna

Ef aðeins er miðað við launa­tekjur, sem voru 2,9 millj­ónir á mán­uði, tekur það hót­el­þernu á byrj­un­ar­launum átta mán­uði að vinna sér inn mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns­ins. Hót­el­þerna í hæsta launa­flokki með fimm ára starfs­reynslu er mán­uði skemur, eða sjö mán­uði, að vinna sér inn mán­að­ar­laun Ólafs.   

Ef miðað er …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár