Sushi Samba má ekki heita Sushi Samba

Veit­inga­stað­ur­inn Sushi Samba á Íslandi má ekki heita Sushi Samba lengur. Þetta er nið­ur­staða Hæsta­réttar Íslands í máli alþjóð­legrar veit­inga­keðju með sama nafni gegn íslenska veit­inga­staðnum. Dómur féll í mál­inu í dag.

Veit­inga­keðjan stefndi eig­endum Sushi Samba á Íslandi fyrir dóm­stólum eftir að hafa kraf­ist þess við Einka­leyfa­stofu og svo áfrýj­un­ar­nefnd hug­verka­rétt­inda á sviði iðn­aðar að íslenska staðnum yrði bannað að nota vöru­merkið. Veit­inga­keðjan hefur rekið veit­inga­staði undir vöru­merk­inu sus­hi­samba í Banda­ríkj­unum frá árinu 2000 og svo í fleiri löndum.

Sushi Samba á Íslandi fékk vöru­merkið skráð hjá Einka­leyfa­stofu árið 2011. Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að banda­ríska keðjan hafi ekki getað sýnt fram á að vöru­merkið væri „alþekkt“ á Íslandi, en hefði sannað með óyggj­andi hætti að eig­endur íslenska veit­inga­stað­ar­ins hafi vitað eða mátt vita um til­vist vöru­merk­is­ins, og hafi verið í vondri trú.

Því felldi Hæsti­réttur úr gildi úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar hug­verka­rétt­inda, og skrán­ingu vöru­merk­is­ins hér á landi. Sushi Samba á Íslandi þarf einnig að greiða 1,5 millj­ónir fyrir hag­nýt­ingu merk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár