Hleðslustöðvarfyrirtækið Ísorka mun hefja gjaldtöku fyrir hleðslu rafbíla á völdum rafhleðslustöðvum í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu fyrirtækisins.
Í tilkynningunni segir að farið hafði af stað með gjaldtökuna til þess að flýta fyrir innviðauppbyggingu fyrir rafbíla, en hleðsla á rafhleðslustöðvum hefur hingað til verið ókeypis.
[adspot]
Sigurður Ástgeirsson, verkefnastjóri hjá Ísorku, segir að ljóst sé að hleðslustöðvar fyrir rafbíla muni ekki fjölga í takt við þörf nema með gjaldtöku því þannig skapist hvati til að fjölga hleðslustöðvum og bæta þjónustu við rafbílaeigendur.
[links]Einnig bætir Sigurður við að nú sé mikilvægt að sem flestir sem bjóða hleðslu fyrir rafbíla sýni samstöðu og geri slíkt hið sama, til þess að rafbílavæðing Íslands verði raunhæf á næstu árum, ,,Við erum í mun betri aðstöðu en margar aðrar þjóðir til að gera þetta vel enda með aðgang að umhverfisvænu rafmagni. Það gerist hins vegar ekki á meðan hleðsla er gefin, ýmist á kostnað einkafyrirtækja eða skattgreiðenda.“
Hleðslustöðvar hafa flestar verið byggðar með aðkomu Orku Náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitunnar. Hraðhleðslustöðvar fyrirtækisins eru 16 talsins, en til stendur að fjölga þeim á næstu misserum og búist er við því að hægt verði að keyra hringinn í kringum landið á rafmagnsbíl fyrir áramót.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir