Kvenskörungar samtímans og sveitaböll

Bóka­húsið er hlað­varps­þáttur þar sem rætt er við rit­höf­unda og ýmsa sem koma að bóka­út­gáfu. Eliza Reid og Benný Sif Ísleifs­dóttir ræða bækur sínar við Sverri Norland í nýjasta þætt­inum.

Eliza Reid er til viðtals í Bókahúsinu.
Eliza Reid er til við­tals í Bóka­hús­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líf og störf kvenna á Íslandi eru í for­grunni í bók­inni Sprakkar eftir Elizu Reid sem kom út fyrir jólin. Í hlað­varps­þætt­inum Bóka­húsið ræðir hún við Sverri Norland um íslenska kven­skör­unga sam­tíma­ans, stöðu kynj­anna, móð­ur­hlut­verkið og margt fleira. Í Sprökkum er brugðið upp lit­ríkri mynd af íslensku nútíma­sam­fé­lagi, kostum þess og göllum, og rýnt í það sem enn er óunnið í jafn­rétt­is­málum.

Benný Sif Ísleifs­dóttir kom líka í Bók­ha­úsið og rabb­aði um ógleði­skók, sveita­böll og afar líf­lega skáld­sögu sína Djúpið.

Loks skaust Sverrir í rækt­ar­sal Bóka­húss­ins og svitn­aði þar ærlega á hamstra­hjóli ásamt hinum síhressu kynn­ingar- og mark­aðs­stýrum For­lags­ins, þeim Guðrúnu Norð­fjörð og Emblu Ýri Teits­dóttur, sem ræddu fjöl­breyti­leg störf sín við að koma bókum For­lags­ins til les­enda úti um land allt.

Bóka­húsið er aðgengi­legt á helstu hlað­varpsveitum og á vef For­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár