Stjórnmálin falli ekki í þá freistni að gera sóttvarnir að „pólitísku bitbeini“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir sam­stöðu í rík­is­stjórn um þær hertu aðgerðir sem tóku gildi í dag. Hún seg­ist vilja forð­ast að sótt­varnir verði að póli­tísku bit­beini fyrir kosn­ingar og telur að það muni reyna á stjórn­málin á næstu vikum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir ríkisstjórnina ræða málin í þaula og hafa verið í meginatriðum samstíga um aðgerðir í faraldrinum hingað til.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina ræða málin í þaula og hafa verið í meg­in­at­riðum sam­stíga um aðgerðir í far­aldr­inum hingað til. Mynd: Bára Huld Beck

Á fundi sínum á Egils­stöðum á föstu­dag velti rík­is­stjórnin því fyrir sér hvað það þýði fyrir Ísland að vera búið að bólu­setja hátt hlut­fall þjóð­ar­innar en samt sem áður vera að eiga við COVID-19, sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í við­tali við Kristján Krist­jáns­son stjórn­anda þjóð­mála­þátt­ar­ins Sprengisands á Bylgj­unni í morgun.

Ráðherra sagð­ist telja að öll þau sem sátu við rík­is­stjórn­ar­borðið í Hótel Vala­skjálf fyrir helgi hefðu verið með­vituð um að verið væri að stíga inn í nýjan kafla. Hún sagði að sam­staða hefði verið í stjórn­inni þegar stigið hefði verið út af fundi um þær aðgerðir sem ákveðið var að grípa til og hún sem heil­brigð­is­ráð­herra ber stjórn­skipu­lega ábyrgð á.

Svandís sagði að í gegnum far­ald­ur­inn hefði rík­is­stjórnin ávallt haft þann hátt­inn á að hún hefði rætt nið­ur­stöð­una við rík­is­stjórn­ina, því þrátt fyrir að hin stjórn­skipu­lega staða sé skýr „þurfum við líka að hafa póli­tískt skýra stöðu“. Hún sagði þó í við­tal­inu ljóst að far­ald­ur­inn og við­brögð við honum yrðu til umræðu fyrir alþing­is­kosn­ingar, sem fara fram eftir tvo mán­uði.

„Um þetta verður rætt og þetta er eitt af því sem verður á dag­skrá,“ sagði Svandís og ját­aði því að „spurn­ingar og efa­semdir“ hefðu verið settar fram í hverju skrefi í umræðum innan rík­is­stjórn­ar­innar, sem hefði þó „í meg­in­at­riðum“ verið sam­stíga um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til.

Hún sagði að hver stjórn­mála­maður þyrfti að svara fyrir sig þegar nær dragi kosn­ingum, þótt á henni væri að heyra að hún vildi forð­ast það að sótt­varna­ráð­staf­anir yrðu „póli­tískt bit­bein“ fyrir kosn­ingar.

Svandís sagði að í löndum þar sem sjón­ar­mið um við­brögð við veirunni hefðu mót­ast fyrst og fremst af póli­tískri afstöðu um hvað ætti að gera hefði það smit­ast út í sam­fé­lagið og haft áhrif á það hvernig fólk tæki þátt í sótt­varna­ráð­stöf­unum. Hér á landi myndi reyna á stjórn­málin á næstu vikum, um að falla ekki í þá freistni að gera sótt­varnir að póli­tísku bit­beini.

Staðan skýrist á næstu tveimur vikum

Í gær greindust 88 smit inn­an­lands og hlut­fall smit­aðra af þeim sem mættu í ein­kenna­sýna­töku var hærra en und­an­farna daga, eða 4,58 pró­sent. Svandís sagði að á meðan að óvissa væri um hvernig þeim smitum sem þegar hafa greinst und­an­farna daga í upp­hafi þess­arar nýju bylgju vindur fram væri óásætt­an­legt að grípa ekki í taumana með hertum aðgerðum.

[adspot]

„Við höfum alltaf talað um þetta tvennt, að verja kerfið okkar og verja við­kvæma hópa. Og þá segir, okkar besta fólk, bíddu nú við, við þurfum að sjá hvernig þessum smitum vindur fram. Hvað þýða þessi 70-80-90 smit á dag, hvert munu þau leiða?“ spurði Svandís og svar­aði því síðan sjálf að svarið við því myndi fást á næstu 10-14 dögum, er í ljós kæmi hversu margir af þeim sem smit­ast hafa veik­ist alvar­lega.

Hún nefndi nokkrum sinnum það sem fram hefur komið í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis, að verið sé að vinna í raun­tíma og upp­lýs­inga sé verið að afla jafn­harðan, nú þegar hið svo­kall­aða delta-afbrigði veirunnar er komið til sög­unnar og orðið ráð­andi í útbreiðslu COVID-19.

Bólusetningar hluti af framtíðinni?

Rúm 85 pró­sent lands­manna yfir 16 ára aldri eru nú full­bólu­sett og um 5 pró­sent til við­bótar á þeim aldri hafa fengið eina sprautu. Svandís sagði ljóst að bólu­setn­ingar væru „í grunn­inn að verja okkur mjög vel fyrir alvar­legum veik­indum“ en að til fram­tíðar litið væri staðan sú að ef kór­ónu­veiran yrði hluti af lífi okkar yrðu reglu­legar bólu­setn­ingar það mögu­lega líka. Þá þyrfti einnig að velta fyrir sér hvaða ráð­staf­anir þyrfti að hafa uppi, á landa­mærum og inn­an­lands og hversu var­an­legar þær þurfi að vera.

Viðraði stofnun sóttvarnastofnunar

Svandís sagði einnig í við­tal­inu að það væri spurn­ing hvort mögu­lega þyrfti að styrkja heil­brigð­is­kerfið til fram­tíðar. Veiru­far­ald­ur­inn hefði verið unn­inn eins og „átaks­verk­efni“ sem nú hefur staðið yfir í bráðum eitt og hálft ár. Hún sagði að þrátt fyrir að íslenska kerfið væri sterkt á alþjóða­vísu og starfs­fólk vel menntað væri „mjög þunnt smurt“.

Hún sagði að við þyrftum að segja við okkur sjálf, „þurfum við ekki var­an­lega styrk­ingu fyrir heil­brigð­is­kerfið okkar“ og viðr­aði því næst að mögu­lega þyrfti að setja upp ein­hverja sótt­varna­stofnun inn­an­lands.

Svandís sagði að við­brögðin við far­aldr­inum hefðu upp­haf­lega átt að verða auka­verk­efni fyrir sótt­varna­lækni en hefði síðan orðið að álagi sem væri langt umfram það sem eðli­legt væri að leggja á einn mann og hans nán­asta sam­starfs­fólk í eitt og hálft ár.

Heil­brigð­is­ráð­herra mærði Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni og sagði að við hefðum verið „með ólík­indum heppin með sótt­varna­lækni, ekki bara vegna þess hve hann er öfl­ugur vís­inda­maður heldur hversu gott lag hann hefur á að miðla upp­lýs­ingum og ræða við almenn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár