Amazon sýnir meiri hagnað með færri ráðningum

Vöxtur tækni- og smá­söluris­ans Amazon hefur verið með ólík­indum en starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins fjölg­aði um 225 þús­und í fyrra.

Tækni- og smá­söluris­inn Amazon kom fjár­festum á grein­endum nokkuð á óvart með því að sýna meiri hagnað á öðrum árs­fjórð­ungi en reiknað var með.

Hagn­að­ur­inn var 2,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 260 millj­örðum króna.

Gríð­ar­legur vöxtur í skýja­þjón­ustu Amazon, undir Amazon Web Services, er eitt af því sem skýrir betri afkomu en vöxt­ur­inn í þeirri starf­semi var um 50 pró­sent miðað við sama tíma í fyrra.

Sölu­tekjur juk­ust um tæp­lega 40 pró­sent, en mark­aðs­grein­endur gerðu ráð fyrir meiri aukn­ingu enn það.

Mannauðurinn undir smásjánni

Eitt af því sem skýrir góða afkomu hjá Amazon er minni vöxtur í ráðn­ingum en gert hafði verið ráð fyrir. Fram­legðin í rekstr­inum hefur þannig styrkst á sama tíma og rekstr­ar­kostn­aður ekki hækkað eins mikið og bæði áætl­anir og grein­ingar gerðu ráð fyrir.

Fjár­mála­stjóri Amazon, Brian Olsavsky, lét hafa eftir sér þegar hann kynnti upp­gjörið, að eitt af því sem hefði skýrt betri afkomu Amazon væri end­ur­skipu­lagn­ing á starf­sem­inni. Ráðn­ingar hafa ekki verið eins tíðar og þær hafa verið und­an­farið ár, enda hefur vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins verið með ólík­indum, segir í umfjöllun MarketWatch.

Samtals starfa nú 575 þús­und manns hjá fyr­ir­tæk­inu en í fyrra bætt­ust 225 þús­und í hóp­inn. Þar af voru 90 þús­und sem til­heyra Whole Foods en Amazon keypti það fyr­ir­tæki í fyrra fyrir 13,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 1.500 millj­arða króna.

Í máli Olsavsky koma fram að vöxt­ur­inn í starfs­manna­fjölda hefði verið 1,7 pró­sent á und­an­förnum þremur mán­uðum, en í fyrra jókst fjöld­inn um 65 pró­sent.

Olsavsky segir að end­ur­skipu­lagn­ingin á mannauði fyr­ir­tæk­is­ins hafi heppn­ast vel, og að grunn­rekst­ur­inn hafi styrkst mikið. Rekstr­ar­kostn­að­ur­inn hefur þó vaxið hratt sam­hliða vexti fyr­ir­tæk­is­ins í tekjum, og jókst hann um 33 pró­sent milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi

Risi á alla kanta

Mark­aðsvirði Amazon er nú 861 millj­arður Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 90 þús­und millj­arðar króna. Til sam­an­burðar er virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í heild sinni um 750 millj­arðar króna. Þannig er Amazon nú 120 sinnum verð­mæt­ara en íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í heild. Fyr­ir­tækið er risi á alla kanta, og hefur vaxið hrað­ast allra fyr­ir­tækja í sög­unni, en það var stofnað 1994 og er með höf­uð­stöðvar í Seattle.

Ríkasti maður heims er stofn­andi og for­stjóri Amazon, Jeff Bezos. Eignir hans eru metnar á um 150 millj­arða Banda­ríkja­dala, en þær eru að miklu leyti bundnar í hluta­bréfum í Amazon. Hann á ennþá stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu, eða 17 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár