Fimm prósent telja Sigmund og Bjarna í tengslum við almenning

Fimm pró­sent aðspurðra telja að for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son, séu í tengslum við almenn­ing. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, sem spurði fólk um ýmsa per­sónu­eig­in­leika stjórn­mála­leið­toga.

Flestir aðspurðra töldu að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, væri í tengslum við almenn­ing, eða 34 pró­sent. 32 pró­sent telja Birgittu Jóns­dóttur, kaftein Pírata, í tengslum við almenn­ing og 29 pró­sent telja borg­ar­stjór­ann Dag B. Egg­erts­son vera í tengslum. 25 pró­sent telja for­set­ann Ólaf Ragnar Grímsson vera í tengslum við almenn­ing í land­inu. Tuttugu pró­sent segja Guðmund Stein­gríms­son, for­mann Bjartrar fram­tíðar, tengj­ast almenn­ingi og 11 pró­sent Árna Pál Árnason, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar. Bjarni og Sig­mundur reka lest­ina.

MMR spurði 1060 ein­stak­linga 18 ára og eldri dag­ana 30. mars til 8. apríl síð­ast­lið­inn. Hafa ber í huga við kann­anir af þess­ari stærð að vik­mörk geta verið allt að 3,1 pró­sent, sem þýðir að raun­veru­legt fylgi er lík­lega á bil­inu 3,1 hærra eða lægra en könn­unin gefur til kynna.

Einn af hverjum tíu telja forystumenn ríkisstjórnar heiðarlega


Aðeins 9 pró­sent aðspurðra telja Sigmund Davíð vera heið­ar­legan, og 10 pró­sent telja Bjarna heið­ar­legan. Þá segja 8 pró­sent að Bjarni standi vörð um hags­muni almenn­ings, og 11 pró­sent telja að Sig­mundur Davíð geri það. Fimm pró­sent telja að Sig­mundur virði skoð­anir ann­arra og 8 pró­sent telja að það geri Bjarni.

Helm­ingur aðspurðra sagði að Sig­mundur Davíð væri ekki gæddur neinum þeim per­sónu­eig­in­leikum sem spurt var um. 40 pró­sent sögðu það sama um Bjarna.

Einum af hverjum fimm þykir Bjarni Bene­dikts­son vera gæddur per­sónu­töfrum, en 5 pró­sent segja það sama um Sigmund Davíð. Sig­mundur mælist hærri en Bjarni þegar kemur að því hvort fólk telji þá standa við eigin sann­fær­ingu - 21 pró­sent telja það gilda um Sigmund og 19 pró­sent um Bjarna.

18 pró­sent telja Bjarna vera sterkan og 11 pró­sent Sigmund. Þá telja 13 pró­sent að Bjarni sé fæddur leið­togi en fimm pró­sent telja að for­sæt­is­ráð­herr­ann sé fæddur leið­togi. 27 pró­sent sögðu Bjarna vera ákveð­inn, 15 pró­sent telja hann vinna vel undir álagi og 16 pró­sent segja hann skila árangri. Rétt rúm­lega fimmt­ungur (22%) segja Sigmund vera ákveð­inn, átta pró­sent að hann vinni vel undir álagi og 15 pró­sent telja hann skila árangri.

Katrín og Ólafur Ragnar alltaf á toppnum


Flestir telja sem fyrr segir að Katrín Jak­obs­dóttir sé í tengslum við almenn­ing. Hún er líka efst á blaði þegar spurt er um heið­ar­leika, en tæp­lega helm­ingur (47%) telja hana heið­ar­lega og standa við eigin sann­fær­ingu (48%). 36 pró­sent segja hana gædda per­sónu­töfrum, 42 pró­sent segja hana ákveðna og 31 pró­sent telja að hún virði skoð­anir ann­arra. Þá telur rúmur þriðj­ungur (35%) að hún standi vörð um hags­muni almenn­ings. Í öllum þessum flokkum er hún efst á blaði. Í öðrum flokkum var hún í öðru sæti, en í þeim flokkum var það Ólafur Ragnar Grímsson sem var á toppnum.

23 pró­sent telja að Ólafur Ragnar skili árangri í störfum sínum og sama hlut­fall segir hann vinna vel undir álagi. 30 pró­sentum þykir hann vera fæddur leið­togi og 33 pró­sent segja hann sterkan.

Dagur kemur mun betur út en Árni Páll


Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og sam­fylk­ing­ar­maður er nú mældur í fyrsta sinn. Hann kemur mun betur út úr þessum mæl­ingum en for­maður flokks­ins, Árni Páll Árnason. Þriðj­ungur aðspurðra (34%) telja Dag gæddan per­sónu­töfrum en 17 pró­sent segja það sama um Árna Pál. 22 pró­sent telja Dag heið­ar­legan en 16 pró­sent Árna. 28 pró­sent telja Dag standa við sann­fær­ingu sína en 19 pró­sent Árna Pál. Fimmt­ungur (21%) telur Dag vera sterkan en í þeirri mæl­ingu rekur Árni Páll lest­ina af öllum, með 9 pró­sent.

29 pró­sent telja Dag vera í tengslum við almenn­ing á meðan ell­efu pró­sent segja það sama um Árna Pál. Dagur er fæddur leið­togi að mati 14 pró­senta aðspurðra á meðan aðeins þrjú pró­sent segja það sama um Árna Pál. Tæplega 20 pró­sent (18%) segja borg­ar­stjór­ann vinna vel undir álagi og vera ákveð­inn á meðan sömu eig­in­leikar hjá for­mann­inum mæl­ast í 9 og 13 pró­sentum.

Hér að neðan má sjá nið­ur­stöður könn­unar MMR - en hún er einnig í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins sem sjá má hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár