Heildarvelta á húsnæðismarkaði úr 99 í 560 milljarða á rúmum áratug

Velta fast­eigna­við­skipta hefur vaxið á hverju ári frá árinu 2009. Hús­næð­is­verð hefur hækkað um 110 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á um ára­tug. Vegna þessa hefur eigna­staða hús­næð­is­eig­enda stór­batnað á fáum árum.

Mikið hefur verið byggt á undanförnum árum, og von er á miklu magni húsnæðis til viðbótar inn á markaðinn í nánustu framtíð.
Mikið hefur verið byggt á und­an­förnum árum, og von er á miklu magni hús­næðis til við­bótar inn á mark­að­inn í nán­ustu fram­tíð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heild­ar­velta fast­eigna­við­skipta á land­inu öllu jókst um 4,4 pró­sent í fyrra þegar hún var 560 millj­arðar króna. Með­al­upp­hæð hvers samn­ings var 46 millj­ónir króna, um tveimur millj­ónum krónum meira en árið áður. Veltan á fast­eigna­mark­aði hefur vaxið á hverju ári frá árinu 2009, eftir að hafa rúm­lega helm­ing­ast á hru­nár­inu 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Þjóðskrá birti yfir fast­eigna­mark­að­inn í fyrra í gær.

Þrátt fyrir að veltan hafi auk­ist var fjöldi kaup­samn­inga nán­ast sá sami og hann hefur verið und­an­farin ár, um 12.200 tals­ins.

Flestir kaup­samn­ing­arnir voru gerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða um 7.700 tals­ins. Þar var líka mesta veltan – 396 millj­arðar króna – og með­al­upp­hæð hvers og eins mun hærri en á lands­byggð­inni, eða 54 millj­ónir króna.

Þegar velta á fast­eigna­mark­aði er skoðuð í sögu­legu sam­hengi þá má sjá að hún að fyrir banka­hrun náði hún hámarki árið 2007, þegar veltan var alls 406 millj­arðar króna að nafn­virði. Það eru tæp­lega 700 millj­arðar króna að raun­virði dags­ins í dag, þegar tekið er til­lit til verð­bólgu­þró­unar frá því ári.

Veltan á hús­næð­is­mark­aði dróst veru­lega saman eftir hrunið og árið 2009 var hún ein­ungis 99 millj­arðar króna að nafn­virði, sem væru 135 millj­arðar króna í dag. Því var veltan 2009 að raun­virði tæp­lega fjórð­ungur þess sem hún var í fyrra, ára­tug síðar.

Hærra fasteignaverð, betri kjör og sértækar aðgerðir

Frá því í des­em­ber 2010 og fram til nóv­em­ber­loka 2019 hækk­aði verð á öllu íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 110 pró­sent. Það þýðir að sá sem keypti íbúð á svæð­inu í byrjun þess tíma­bils á 30 millj­ónir króna getur búist við því að hún sé í dag metin á um 63 millj­ónir króna.

Samhliða þess­ari miklu hækkun á fast­eigna­verði hafa aðrar aðstæður verið hús­næð­is­kaup­endum hag­stæðar, að minnsta kosti í íslensku sam­hengi. Verð­bólga hefur að mestu verið lág – hún var meðal ann­ars undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá febr­úar 2014 og fram á seinni hluta árs­ins 2018 – og stjórn­völd hafa heim­ilað þeim sem safna í sér­eign­ar­sparnað að nota hann skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán sín. Í þeirri aðgerð fellst eft­ir­gjöf skatta til þess hóps. Auk þess hafa stjórn­völd gripið til sér­tækra aðgerða á borð við Leið­rétt­ing­una, þar sem 72,2 millj­arðar króna fóru úr rík­is­sjóði inn á höf­uð­stól þeirra lands­manna sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009.

Þá hafa vextir á hús­næð­is­lánum hríð­lækkað. Sem dæmi má nefna að fyrir hrun fóru verð­tryggðir vextir lægst niður í 4,15 pró­sent. Í dag eru lægstu verð­tryggðu vextir sem í boði eru 1,69 pró­sent auk þess sem lán­tak­endur geta nú valið um að taka óverð­tryggð lán. Lægstu breyti­legu óverð­tryggði vextir sem bjóð­ast í dag eru 4,10 pró­sent, sem eru lægri vextir en buð­ust á verð­tryggðum lánum fyrir banka­hrun.

Þessi þróun hefur skilað því að eign­ar­staða þeirra Íslend­inga sem eru í aðstöðu til að kaupa eigið hús­næði hefur stór­batnað á örfáum árum. Eigið fé í fast­eignum lands­manna jókst um 2.555 millj­arða króna frá árinu 2010 til árs­loka 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár