Umdeild formúla fyrir stúdentspróf í Englandi setur ráðherra í klemmu

Mennta­mála­ráð­herra Englands hefur mætt harðri gagn­rýni fyrir að láta umdeilda reikni­for­múlu ákvarða stúd­ents­ein­kunnir í stað sam­ræmdra prófa í vor. Í vik­unni tók hann svo U-beygju til að reyna að kom­ast til móts við gagn­rýn­ina.

„Þetta er komið. Engin U-beygja, engin breyt­ing,“ sagði Gavin Williamsson, mennta­mála­ráð­herra Englands, í við­tali við the Times um ákvörðun sína um að meta útskrift­ar­ein­kunnir mennta­skóla­nem­anda með umdeildri reikni­for­múlu á laug­ar­dag­inn í síð­ustu viku. 

Tveimur dögum síðar hafði ráð­herr­anum þó snú­ist hugur og til­kynnti að kenn­ara­möt yrðu leyfð í stað reikni­for­múl­unnar. Williamsson seg­ist hafa skipt um skoðun vegna nýrra upp­lýs­inga um galla reikni­for­múl­unnar, en breska blaðið The Guardian heldur því fram að hann hafi verið var­aður við for­múl­unni nokkrum sinnum í sumar.

75 prósent rétt

Umrædd reikni­for­múla var búin til í kjöl­far þess að sam­dræmdum prófum mennta­skóla­nema, sem kölluð eru A-levels, var aflýst fyrr í vor vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar og ráð­herr­ann vildi finna leið til þess að ein­kunna­dreif­ing útskrift­ar­nema í ár yrði lík dreif­ingu fyrri ára.

Nefnd á vegum breska þings­ins komst að þeirri nið­ur­stöðu fyrr í sumar að reikn­aðar ein­kunnir eftir dreif­ingu fyrri ára ætti á hættu að mis­muna nem­endum úr ýmsum minni­hluta­hópum sem að með­al­tali fái lægri ein­kunnir. Þar að auki bár­ust áhyggju­raddir til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins um að reikni­for­múlan yrði aðeins rétt í 75 pró­sent til­vika.

„Einkunnir, ekki póstnúmer!“

Á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku voru svo reikn­uðu útskrift­ar­ein­kunnir mennta­skóla­nem­anna birtar og kom þá í ljós að þær voru lægri en kenn­ara­möt nem­end­anna í nær 40 pró­sent til­vika. Formúlan virð­ist hafa gagn­ast nem­endum í einka­skólum sér­stak­lega, en hærra hlut­fall þeirra fengu hæstu ein­kunn en í sam­ræmdu próf­unum árin á undan.

Formúlan veitti nem­endum í rík­is­reknum mennta­skólum ekki jafn­mikla hækkun, en hún refs­aði sér­stak­lega þeim nem­endum sem höfðu fengið lægri ein­kunnir á fyrri árum.

Nið­ur­stöð­urnar vöktu mikla reiði meðal kenn­ara, sem sögðu þær vera ósann­gjarnar og óskilj­an­legar. Síðasta mánu­dag efndu nem­endur svo til mót­mæla­göngu að mennta­mála­ráðu­neyt­inu, líkt og sjá má á Twitter-færsl­unni hér að neðan. Í göng­unni hróp­uðu nem­end­urnir meðal ann­ars: „Ein­kunnir, ekki póst­númer!“

Beygt af leið

Þegar fjöl­miðlar báðu um við­brögð ráð­herr­ans við ein­kunn­irnar sagð­ist hann fyrst að stórar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lag­inu kæmu ekki til greina. Hann væri öruggur með að for­múlan leiddi til áreið­an­legrar og sann­gjarnrar nið­ur­stöðu.

Síð­ast­lið­inn mánu­dag skipti Williamsson svo um skoðun og leyfði ein­kunnum úr kenn­ara­mötum að gilda í stað útreikn­aðra ein­kunna. Á sama tíma bað hann nem­endur sem höfðu fengið verri ein­kunnir vegna reikni­for­múl­unnar afsök­unar.

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur ekki tjáð sig um málið þar sem hann er í sum­ar­fríi í Skotlandi þessa dag­ana. Hins vegar heldur The Guardian því fram að fram­tíð Williamsson í emb­ætti mennta­mála­ráð­herra sé í hættu ef hann lendir í frek­ari vand­ræðum þegar skól­arnir opna í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár