Þétting byggðar þrýstir upp húsnæðisverði

Mikil upp­bygg­ing mið­svæðis í Reykja­vík og á þétt­ing­ar­reitum þrýstir upp fast­eigna­verð­inu.

Fasteignaverð hefur hækkað með fordæmalausum hætti að undanförnu.
Fast­eigna­verð hefur hækkað með for­dæma­lausum hætti að und­an­förnu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fyr­ir­sjá­an­legt er að hátt fer­metra­verð íbúða sem nú eru að koma út á markað, víða á þétt­ing­ar­reitum í Reykja­vík, muni þrýsta uppi hús­næð­is­verði, í það minnsta til skamms tíma. Þannig er algengt verð á nýjum litlum og með­al­stórum íbúðum sem hafa komið inn á markað að und­an­förnu yfir 700 þús­und krónur á fer­metr­ann en algengt er að það sé á milli 400 til 500 þús­und.

Þetta er ekki óeðli­legt, þar sem að mið­borg­ar­svæðið er dýr­ara en en önnur svæði, en í ljósi þess hve margar íbúðir hafa verið að koma inn á mark­að­inn á þétt­ing­ar­reitum að und­an­förnu þá mun þetta háa verð hafa mikil áhrif á heild­ar­mynd­ina og stuðla að enn frek­ari hækkun fast­eigna­verðs, í það minnsa til skamms tíma.

Nýjar eignir á eftirsóttum stöðum

Þannig kosta nýjar íbúðir í Jað­ar­leiti, á hinum svo­nefnda Útvarps­hús­reit, um 649 þús­und krónur á fer­metr­ann, og nýjar íbúðir á Hverf­is­götu 58A kosta tæp­lega 630 þús­und á fer­metr­ann.

Nýjar eignir við Tryggva­götu eru síðan enn dýr­ari, en þær kosta á milli 700 og 800 þús­und krónur á fer­metr­ann.

[box]Um nýjar eignir er að ræða, og því ekki óvenju­legt að verðið taki mið af því, en áhrifin á fast­eigna­verðs­þróun heild­ar­innar, sé mið tekið af aðferða­fræði Þjóð­skrár, leiðir til tölu­verðrar hækk­unar fyrir heild­ina.

Ný mán­að­ar­skýrsla Íbúða­lána­sjóðs um stöðu mála á fast­eigna­mark­aði var birt 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn og kemur þar fram að raun­verð íbúð­ar­hús­næðis á land­inu öllu hafi hækkað tölu­vert í nóv­em­ber eftir lækkun í októ­ber.

Aukið jafnvægi?

Vís­bend­ingar eru sagðar um að mark­að­ur­inn stefni í átt að auknu jafn­vægi með auknu fram­boði af nýju hús­næði og hækk­unum fast­eigna­verðs í takt við kaup­mátt­ar­aukn­ingu. „Síðustu miss­eri hefur aukn­ing kaup­máttar þó verið minni en hækkun fast­eigna­verðs. Frá upp­hafi árs 2016 hefur raun­verð fast­eigna hækkað um 26 pró­sent en kaup­máttur launa um 11 pró­sent,“ segir í umfjöllun Íbúða­lána­sjóðs.

Athygli vekur að fast­eigna­mark­aður utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins tekur við sér. Meiri velta hefur verið að und­an­förnu en um 26 pró­sent fleiri kaup­samn­ingum hefur verið þing­lýst það sem af er ári á Norð­ur­landi sam­an­borið við sama tíma fyrir ári síðan.

Akureyri þýtur upp

Í októ­ber hafði íbúða­verð á Akureyri hækkað um 21 pró­sent milli ára sem er mesta hækk­unin á árs­grund­velli sem orðið hefur þar í bæ frá því um mitt árið 2006. Til sam­an­burðar hafði verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 17 pró­sent í októ­ber.

Flest bendir til þess að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næst­unni, og hafa spár grein­enda sýnst þá mynd að und­an­förnu. Greining Íslands­banka spáir 12 pró­sent hækkun fast­eigna­verðs á næsta ári og 5 pró­sent hækkun árið þar á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár