Fáum verið vísað frá Noregi og Danmörku til Grikklands á grundvelli verndar þar

Samkvæmt svörum sem Kjarninn fékk frá yfir­völdum útlend­inga­mála í Noregi og Danmörku hefur fáum ein­stak­lingum með við­ur­kennda stöðu flótta­manna í Grikk­landi verið vísað aftur þangað á þeim grund­velli und­an­farin tvö ár.

Mynd úr safni, tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Mynd úr safni, teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: EPA

Á síð­ustu tveimur árum hafa Norðmenn sam­an­lagt vísað 19 manns til Grikk­lands á grund­velli þess að fólkið hafi þegar verið með við­ur­kennda stöðu flótta­fólks þar í landi. Danir hafa svo frá því í upp­hafi árs 2021 hafnað 14 umsóknum um alþjóð­lega vernd á grund­velli þess að fólk sé þegar með við­ur­kennda stöðu flótta­manns í Grikk­landi.

Þetta kemur fram í svörum sem Kjarn­anum hafa borist frá yfir­völdum útlend­inga­mála í lönd­unum tveimur, Útlend­inga­stofnun (Utlend­ings­di­rekt­ora­tet) í Noregi og inn­flytj­enda- og aðlög­un­ar­ráðu­neyti Dan­merkur.

Kjarninn beindi sömu spurn­ingum til yfir­valda útlend­inga­mála í ríkj­unum tveimur og beint var til yfir­valda útlend­inga­mála í Þýska­landi fyrir skemmstu, þ.e. hversu margir ein­stak­lingar sem hefðu þegar hlotið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi hefðu leitað til land­anna og sótt um vernd á und­an­förnum tveimur árum og hve mörgum í þeirri stöðu hefði verið vísað til Grikk­lands á sama tíma.[links]

Fjórtan í fyrra, níu í ár

Samkvæmt svari sem barst frá fjöl­miðla­full­trúa norsku Útlend­inga­stofn­un­ar­innar getur stofn­unin ekki kallað fram upp­lýs­ingar úr gagna­grunnum sínum um það hve margir með stöðu flótta­manns í Grikk­landi hafa leitað til Noregs og lagt fram umsókn um vernd.

Hins vegar eru til­tækar upp­lýs­ingar um brott­vís­anir fólks úr þeim hópi. Í fyrra var 10 manns vísað sem sótt­ust eftir hæli í Noregi vísað úr landi aftur til Grikk­lands og það sem af er þessu ári eru brott­vís­an­irnar níu tals­ins.

Fjórtán neitanir um vernd í Danmörku

Í svar­inu sem barst frá danska ráðu­neyt­inu skrá dönsk inn­flytj­enda­yf­ir­völd það ekki sér­stak­lega hvort umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eru þegar með stöðu flótta­manna í öðru Evr­ópu­ríki.

[adspot]

Hins vegar var danska ráðu­neyt­inu mögu­legt að kalla fram upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sem voru með við­ur­kennda stöðu flótta­manns í Grikk­landi og hefur verið neitað um vernd í Danmörku á þeim grund­velli. Alls 14 manns höfðu fengu neitun um vernd á þeim grund­velli frá því í árs­byrjun 2021 og til 13. nóv­em­ber á þessu ári, sam­kvæmt danska ráðu­neyt­inu. Ekki kemur fram í svari danskra yfir­valda hve mörgum þeirra hefur verið vísað úr landi.

Í svari danskra yfir­valda er sér­stak­lega bent á að hæl­is­leit­endur með stöðu flótta­manna í Grikk­landi sem „hverfa eða draga umsókn sína til baka áður en nið­ur­staða fæst, eða fá umsókn sína tekna til efn­is­með­ferðar í Danmörku, til dæmis á grund­velli sér­lega við­kvæmrar stöðu, eru ekki inni í þess­ari töl­fræði“. Einnig er tekið fram að töl­urnar nái ekki heldur yfir þá ein­stak­linga sem hlotið hafa við­bót­ar­vernd í Grikk­landi.

Tvö Evr­ópu­ríki hafa á þessu ári ákveðið að hætta nær alfarið end­ur­send­ingum á flótta­fólki aftur til Grikk­lands, vegna aðstæðna sem þau sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í land­inu búa við. Eins og Kjarninn sagði frá fyrr í mán­uð­inum var ákvörðun Þýska­lands í þessum efnum tekin í kjöl­far úrskurða ýmissa þýskra dóm­stóla, sem telja að hætta á örbirgð og van­virð­andi með­ferð, í skiln­ingi Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu, vofi yfir flótta­fólki sem sent yrði aftur til Grikk­lands.

Hitt landið er Holland, en þar í landi hafði rík­is­ráðið ítrekað snúið við ákvörð­unum yfir­valda útlend­inga­mála um að synja umsækj­endum um vernd um efn­is­með­ferð á grund­velli þess að þau hafi þegar stöðu flótta­fólks í Grikk­landi.

Rauði kross­inn telur flutn­ing til Grikk­lands ófor­svar­an­legan

Í kjöl­far fjölda­flutn­ings­ flótta­fólks í þess­ari stöðu til Grikk­lands í upp­hafi mán­aðar ítrek­aði Rauði kross­inn á Íslandi fyrri skila­boð sín um að brott­flutn­ingur flótta­fólks til Grikk­lands væri ófor­svar­an­leg­ur að mati sam­tak­anna.

„Rauði kross­inn á Íslandi for­­dæmir brott­vís­­anir íslenskra stjórn­­­valda á umsækj­endum um alþjóð­­lega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína við­­ur­­kennda í Grikk­landi. Félagið hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­­anir til Grikk­lands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórn­­völd beri ábyrgð á,“ sagði í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Á vor­mán­uðum birti Rauði kross­inn ítar­lega grein­ar­gerð um aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi, þar sem fjallað var um ýmsar hindr­anir sem standa í vegi þeirra sem fá úthlut­aðri alþjóð­legri vernd í land­inu. Meðal ann­ars var þar fjallað um tak­markað aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu, hús­næði, atvinnu og félags­legri aðstoð og fram­færslu.

„Rauði kross­inn telur í ljósi fjöl­marga heim­ilda sem ber saman um óvið­un­andi aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi, að end­ur­send­ingar þess til Grikk­lands feli í sér veru­lega hættu á því þau verði fyrir ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð,“ segir í sam­an­tekt Rauða kross­ins á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár