Hvað leynist í höllum drottningar?

Fyrir fáum árum voru lög um vernd menn­ing­arminja lög­fest í Bret­landi. Eng­lands­drottn­ing er und­an­þegin lög­unum og því má lög­reglan ekki leita í höllum í einka­eigu drottn­ingar að munum sem kunna að hafa verið teknir ófrjálsri hendi í gegnum tíð­ina.

Elísabet II er einn þaulsetnasti þjóðhöfðingi sögunnar en hún hefur setið a valdastóli í rúm 69 ár, frá því í febrúar árið 1952.
Elísabet II er einn þaul­setn­asti þjóð­höfð­ingi sög­unnar en hún hefur setið a valda­stóli í rúm 69 ár, frá því í febr­úar árið 1952. Mynd: EPA

Eitt stærsta lista­verka­safn ver­ald­ar­innar í einka­eigu er safn Elísa­betar II Eng­lands­drottn­ingar en sér­stök stofnun sér um allt utan­um­hald safns­ins, Royal Collection Trust. Safnið er nefni­lega strangt til tekið ekki í eigu Elísa­betar sjálfrar heldur bresku krún­unnar og erf­ist því með krún­unni.

Safnið er gríð­ar­legt að vöxtum enda má rekja sögu þess rúmar fimm aldir aftur í tím­ann. Eitt af mark­miðum safns­ins er að það sé aðgengi­legt. Lista­verk eru lánuð til safna víðs vegar um heim í tengslum við sýn­ingar auk þess sem áhuga­sömum gefst kostur á að heim­sækja sýn­ing­ar­sali í Buckingham höll, í Windsor kast­ala og Holyroodhouse höll í Edinborg þar sem valdir munir eru til sýnis. Þá er auk þess hægt að kafa ofan í saf­n­eign­ina á heima­síðu Royal Collection Trust. Þau lista­verk sem Elísabet á per­sónu­lega og fylgja ekki krún­unni standa utan við Royal Collection Trust. [adspot]

Breska krúnan á auk þess fjölda fast­eigna, halla og kast­ala, hvar með­limir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar búa og dvelja í fríum. Í einka­eigu Elísa­betar eru auk þess stærð­ar­innar hús, höll hennar Sandring­ham House í Norfolk á Englandi og Balmoral kast­ali í Skotlandi. Vafa­laust er skraut­legt um að lit­ast á þessum einka­heim­ilum drottn­ingar en The Guardian hefur nýlega fjallað um und­an­þágu sem drottn­ingin nýtur frá lögum um varð­veislu menn­ing­arminja. Vegna þess­arar und­an­þágu hefur breska lög­reglan ekki mátt ekki fram­kvæma hús­leit á þessum stöðum í leit að munum sem kunna að hafa verið teknir ófrjálsri hendi í gegnum tíð­ina.

Í umfjöllun The Guardian kemur fram að svör hafi hvorki borist frá tals­mönnum Buckingham hallar né stjórn­valda við spurn­ingum blaða­manna um það hvers vegna drottn­ing­unni hafi verið veitt slík und­an­þága. Þá hafnar tals­maður drottn­ing­ar­innar að munir sem teknir hafa verið ófrjálsri hendi finn­ist í híbýlum kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Vernd menningarminja ofarlega á baugi eftir seinna stríð

Lögin sem um ræðir varða vernd muna og menn­ing­arminja á stríðs­hrjáðum svæðum. Munir á borð við minn­is­merki, forn­minjar, lista­verk og bækur eiga að njóta verndar í lög­unum en þau kveða á um að bannað sé að eyði­leggja slíka muni eða að stela þeim.

Í kjöl­far seinni heims­styrj­ald­ar­innar varð ákveðin vakn­ing í þessum efnum í kjöl­far þjófn­aðar og eyði­legg­ingar nas­ista á lista­verkum í styrj­öld­inni. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hófu gerð alþjóð­legs sátt­mála um vernd menn­ing­arminja árið 1954. Árið 2017 voru slík lög lög­fest í Bret­landi, lögin sem hér um ræðir.

Und­an­þágan frá lög­unum var veitt á grund­velli „sam­þykkis drottn­ingar“ (e. Queen’s consent upp á ensku) en sam­kvæmt bréfum sem fóru á milli Buckingham hallar og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins hefðu lögin rýmkað fyrir auknu aðgengi að húsa­kynnum drottn­ingar. Það væri því hags­muna­mál fyrir krún­una að lögin næðu ekki til þjóð­höfð­ingj­ans, Elísa­betar.

Lögum breytt til að fela auð drottningar

The Guardian hefur að und­an­förnu fjallað um hið svo­kall­aða „sam­þykki drottn­ingar“ í tengslum við fjár­hag drottn­ing­ar­innar. Þetta sam­þykki lýsir sér þannig að drottn­ingin getur lesið yfir laga­frum­vörp áður en þau eru lögð fram. Í krafti þess valds hefur drottn­ingin í tím­ans rás beitt áhrifum sínum til þess að hnika til frum­vörpum sér í vil.

Í febr­úar síð­ast­liðnum var til að mynda greint frá því að drottn­ingin hefði beitt sér fyrir því að ráð­herrar breyttu frum­varps­drögum áður en þau voru birt. Ein slík breyt­ing var gerð til þess að drottn­ingin gæti leynt upp­lýs­ingum um „vand­ræða­legt“ umfang auðs síns, eins og það er orðað í umfjöllun The Guardian.

Síðan þá hafa rúm­lega 65 þús­und manns skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun þess efnis að ráð­ist verði í rann­sókn á „sam­þykki drottn­ingar“ enda sé þetta fyr­ir­komu­lag ólýð­ræð­is­legt og ógegn­sætt. Á vef und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar er það sagt óskilj­an­legt að drottn­ingin og maður hennar hafi slík völd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár