Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 15%

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 15 pró­sent á árinu 2016, sam­kvæmt nýjum tölum um vísi­tölu íbúða­verðs, sem Þjóðskrá tekur saman mán­að­ar­lega.

Vísi­talan hækk­aði um 1,5 pró­sent milli nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra, en það eru nýj­ustu töl­urnar. Síð­ast­liðna þrjá mán­uði hækk­aði vísi­talan um 4,9 pró­sent, á síð­asta hálfa árinu hefur hún hækkað um 8,5 pró­sent og síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur hækk­unin verið 15 pró­sent.

Fjallað er um þetta í hag­sjá Lands­bank­ans og þar kemur fram að hækk­an­irnar síð­ustu tólf mán­uði eru mjög miklar og þarf að fara aftur til árs­ins 2007 til að sjá álíka tölur.

Vegna þess að verð­bólga hefur verið lág og stöðug síð­ustu miss­eri hefur raun­verð fast­eigna hækkað mun meira en ann­ars væri, og raun­verð hefur hækkað meira en nafn­verð. Raunverð fast­eigna hækk­aði um 11,2 pró­sent milli áranna 2015 og 2016, en nafn­verðið um 11%.

Við­skipti með fast­eignir héldu áfram að aukast á síð­asta ári, en þó var hún miklu minni í fyrra en árið áður, 8,3% miðað við 17,5% árið 2015. Hækkun fast­eigna­verð hefur verið nán­ast stöðug frá árinu 2010, jafn­ari en oft áður. Hækk­un­ar­fer­il­inn á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er orð­inn lengri en oft áður, og það sama gildir um stærri sveit­ar­fé­lög ann­ars staðar á land­inu. „Það er ljóst að fram­boð hús­næðis, einkum fjöl­býlis, hefur í langan tíma verið minna en mark­að­ur­inn getur tekið við og er það mik­il­væg ástæða mik­illa verð­hækk­ana. Nú hillir undir að nýjum íbúðum fjölgi á næstu miss­erum. Verð nýrra íbúða er vænt­an­lega hærra nú en gengur og ger­ist um eldri íbúðir og verður svo eitt­hvað áfram,“ segir í hag­sjánni.

Hins vegar hafi bygg­ing­ar­kostn­aður hækkað mun minna á síð­ustu árum en íbúða­verð og því ætti að skap­ast svig­rúm til að nýjar íbúðir dragi íbúða­verðið niður á við.

Húsnæðismarkaðurinn að þorna upp

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær er fram­boð hús­næðis að þorna upp. Á fundi sem hag­deild Íbúða­lána­sjóðs hélt í síð­ustu viku var meðal ann­ars fjallað um þörf­ina fyrir nýtt hús­næði. Þar sagði Sig­urður Jón Björns­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar Íbúða­lána­sjóðs, að það væru skýr merki um að fram­boð eigna á hús­næð­is­mark­aði væru við það að þorna upp. Eignir selj­ist nú oft á sýn­ing­ar­degi sem sé óeðli­legt ástand. Sig­urður sagði enn fremur að miðað við fjölda íbúða í land­inu, og að níu til tíu pró­sent þeirra skipti um hendur á ári og fjög­urra mán­aða veltu­hraða, þá ættu þrjú þús­und íbúðir að vera til sölu í dag. Talan sé hins vegar nær eitt þús­und. Þetta geti verið merki um ofhitun og Sig­urður sagði að almenn­ingur ætti að stíga var­lega til jarð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár