Það sem ég hef lært af því að starfa á stríðshrjáðum svæðum

Margir sem staðið hafa af sér hörm­ungar og raunir búa yfir and­legum styrk sem felst í mýkt og hlýju sem af þeim stafar. Það er upp­lifun Magneu Mar­in­ós­dóttur sem sinnt hefur mann­úðar- og þró­un­ar­störfum á svæðum á borð við Tansaníu og Afganistan. Hún segir ekki síður mik­il­vægt að hlúa að and­legum og skap­andi þörfum fólks, eins og þeim efn­is­legu.

Magnea Marinósdóttir
Magnea Mar­in­ós­dóttir Hún hefur starfað hjá alþjóða­stofn­unum og -sam­tökum sem hafa það hlut­verk að bæta stöðu og rétt­indi kvenna á helstu átaka­svæðum sam­tím­ans í Afganistan, á Balkanskaga og nú síð­ast í Palest­ínu og Ísrael. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eftir að Magnea Mar­in­ós­dóttir lauk meist­ara­námi árið 2004 í friðar- og örygg­is­fræðum frá School of Foreign Service, Georgetown háskóla, með áherslu á orsakir og afleið­ingar sam­tíma­á­taka og frið­ar­lausnir, hefur hún starfað hjá alþjóða­stofn­unum og -sam­tökum sem hafa það hlut­verk að bæta stöðu og rétt­indi kvenna á helstu átaka­svæðum sam­tím­ans í Afganistan, á Balkanskaga og nú síð­ast í Palest­ínu og Ísrael. Þar fyrir utan vann hún að rann­sókn á aðgerðum til að stemma stigu við kyn­bundu ofbeldi í flótta­manna­búðum í Tansaníu sum­arið 2013. Nýverið flutti hún heim og gegnir nú stöðu sér­fræð­ings í jafn­rétt­is­málum hjá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Í öllum þessum verk­efnum tengdum stríði og friði lærði hún eitt og annað um sjálfa sig og annað fólk. 

1. Hvar sem er í veröldinni hittir þú „ættbálkinn“ þinn  

Einu sinni fór ég á fyr­ir­lestur með banda­ríska ljós­mynd­ar­anum Nan Goldin sem var hér­lendis í til­efni af sýn­ingu verka hennar í Lista­safni Íslands. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár