Landsréttur vísar málum Sigur Rósar til efnismeðferðar í héraðsdómi

Lands­réttur hefur úrskurðað að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur taki skatta­mál með­lima hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rósar til efn­is­legrar með­ferðar en þeim málum hafði verið vísað frá dómi 4. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Lands­réttur hefur úrskurðað að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur taki skatta­mál með­lima hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rósar til efn­is­legrar með­ferðar. Þetta kemur fram í vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra í dag.

Máli hér­aðs­sak­­sókn­ara á hendur fjórum liðs­­mönnum hljóm­­sveit­ar­innar Sigur Rósar var vísað frá dómi þann 4. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hér­aðs­sak­sókn­ari áfrýj­aði mál­inu.

Bjarn­freður Ólafs­­­son, lög­­­maður nú­ver­andi og fyrr­ver­andi liðs­­manna Sig­ur Rós­ar og end­­­ur­­­skoð­anda hljóm­­­sveit­­­ar­inn­­­ar, lagði fram frá­­­vís­un­­­ar­­­kröfu, við fyr­ir­­­töku máls­ins þann 20. maí síð­ast­lið­inn.

[adspot]

Jón Þór Birg­is­­­son, söngv­­­ari Sigur Rós­­­ar, og end­­­ur­­­skoð­andi hans, Gunnar Þór Ásgeir­s­­son, voru ákærðir fyrir að hafa komið félagi í eigu Jóns Þórs undan greiðslu tekju­skatts af rúm­­­lega 700 millj­­­ónum króna. Ákæran var lögð fram í Hér­­­aðs­­­dómi Reykja­víkur í byrjun apríl síð­­ast­lið­ins þegar Sigur Rós­­­ar-­­­málið var þing­­­fest. Jón Þór og end­­­ur­­­skoð­andi hans neit­uðu báðir sök.

Málið snérist um sam­lags­­­fé­lagið Frakk sem Jón Þór á. Í ákærunni er Jóni Þór og end­­­ur­­­skoð­and­­­anum gefið að sök að hafa ekki staðið skil á skatt­fram­­­tölum vegna gjald­ár­anna 2011 til 2015. Þetta var önnur ákæran á hendur Jóni Þór og end­­­ur­­­skoð­anda hans en söngv­­­ar­inn er einnig ákærður fyrir brot sem tengj­­­ast félögum í eigu liðs­­­manna Sigur Rós­­­ar. Þar nema meint brot hans 43 millj­­­ónum króna og var söngv­­­ar­inn því ákærður fyrir 190 millj­­­óna skatta­laga­brot.

Allir liðs­­­menn Sigur Rósar nema Kjartan Sveins­­­son voru ákærðir fyrir meiri­háttar skatta­laga­brot með því að hafa staðið skil á efn­is­­­lega röngum skatta­fram­­­tölum gjald­árin 2011 til og með 2014. Kjartan var sagður hafa staðið skil á efn­is­­­lega röngum skatta­fram­­­tölum árin 2012 og 2014.

Þremur liðs­­­mönnum sveit­­­ar­inn­­­ar, Georg Holm, Jón Þór og Orri Páll Dýra­­­son, var gefið að sök að hafa kom­ist undan greiðslu tekju­skatts og fjár­­­­­magns­skatts. Kjart­an, sem hætti í Sigur Rós fyrir rúmum sex árum, var ákærður fyrir að hafa kom­ist hjá því að greiða tekju­skatt. Sak­­­sókn­­­ari sagði að þeir hefðu sleppt því að telja fram rekstr­­­ar­­­tekjur félags­­­ins á þessum árum sem námu rúmum 700 millj­­­ónum og þannig komið félag­inu undan greiðslu tekju­skatts upp á 146 millj­­­ón­­­ir.

Samþætting mála að efni og í tíma hjá skattyfirvöldum, ákæruvaldi og dómstólum til staðar

Á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra kemur fram að í 4. gr. 7. samn­ings­við­auka mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu segi að eng­inn skuli sæta lög­sókn né refs­ingu að nýju í saka­máli fyrir brot sem hann hafi þegar verið sýkn­aður af eða sak­felldur fyrir með loka­dómi sam­kvæmt lögum og saka­mála­rétt­ar­fari við­kom­andi ríkis.

„End­ur­á­kvörðun rík­is­skatt­stjóra á sköttum ákærðu og álagn­ing 25% álags lauk með úrskurði rík­is­skatt­stjóra 12. des­em­ber 2018, sem þeir undu, en alls námu van­greiddir skattar tæpum 200 millj­ónum króna.

Hér­aðs­sak­sóknar gaf út ákæru 28. febr­úar 2019 og var málið þing­fest 3. mars 2019. Í dómi lands­réttar frá 28. febr­úar 2020 segir að mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi kveðið upp fjölda dóma á grund­velli þessa ákvæðis en dóma­fram­kvæmdin sem lýtur að þessu álita­efni hafi tekið breyt­ingum og sé atviks­bundin. Varðandi tvö helstu ágrein­ings­at­riðin, þ.e. efn­is­lega sam­þætt­ingu og sam­þætt­ingu í tíma, komst dóm­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að sam­þætt­ing mála að efni og í tíma hjá skatt­yf­ir­völdum og ákæru­valdi og dóm­stólum hafi verið til staðar. Þess vegna beri hér­aðs­dómi að taka málið til efn­is­legrar með­ferðar,“ segir enn fremur á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár