Teiknarinn og málarinn Tryggvi Magnússon

Andrés Úlfur Helguson safnar nú fyrir bók um lífs­hlaup og list Tryggva Magn­ús­sonar.

Tryggvi er einn af þeim lista­mönnum sem hefur gleymst í tím­anna rás. Hann átti stóran þátt í því að gera sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga mynd­ræna en hann var helsti hönn­uður Alþing­is­há­tíðar 1930. Tryggvi teikn­aði skjald­ar­merki Íslands og var fyrsti atvinnu­teikn­ar­inn og braut­ryðj­andi í aug­lýs­inga­teiknun á Íslandi. Andrés Úlfur Helguson safnar nú fyrir bók um lífs­hlaup og list Tryggva Magn­ús­sonar á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Það má segja að hug­myndin að útgáfu á ævi­sögu um langafa minn hafi ekki orðið að veru­leika fyrr enn að amma mín Þórdís Tryggva­dóttir ákvað að láta hið gríð­ar­mikla mynda­safn Tryggva af hendi til varð­veislu til fram­búðar. Eftir mikla vinnu í sam­starfi með Lands­bóka­safn Íslands og fleiri listaunn­endur, sér­fræð­inga og fjöl­skyldu var ekk­ert annað í stöð­unni enn að koma þessu verk­efni á kopp­inn.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Í Ævi­sög­unni um Tryggva Magn­ús­son verður líf hans og fer­ill rak­inn í máli og myndum þar sem stuðst verður við áður óbirt safn hans sem og áður útgefið efni. Þessi frum­gögn, sem í fyrsta skipti fá að líta dags­ins ljós, gegna því veiga­miklu hlut­verki í allri umfjöllun og inn­sýn í líf mál­ar­ans og eru þunga­vigtin í kom­andi skrifum um ævi og starfs­feril lista­manns­ins. Þetta voru miklir umbrota­tímar í íslensku þjóð­lífi. Þar fór mest fyrir sjálf­stæð­is­bar­áttu land­ans, sjálfsí­mynda­sköpun nýfull­valda þjóðar og hvernig Íslend­ingar álítu sig menn­ing­ar­lega frá­brugðna öðrum, sem þjóð með sam­eig­in­legan upp­runa og sögu­lega for­tíð.

Tryggvi var braut­ryðj­andi í graf­ískri hönnun og gríð­ar­lega afkasta­mik­ill lista­maður og var hann feng­inn í að teikna allt sem fólki dátt í hug á þessum tíma. Hann mynd­skreytti tugi barna- og ævin­týra­bóka. Hann var rit­stjóri og aðal teikn­ari skopá­deilu­blaðs­ins Speg­ils­ins í yfir tutt­ugu ár. Hann var einn af þeim merku lista­mönnum sem tók þátt í að hanna og mynd­skreyta allt fyrir Alþing­is­há­tíð­ina 1930. Hann teikn­aði jóla­svein­ana með ljóðum Jóhann­esar úr Kötl­um. Tryggvi var fyrsti aug­lýs­inga­teikn­ari Raf­skinnu árin 1935-1945 og árið 1944 var teikn­ing hans af land­vætt­unum við­ur­kennd sem opin­bert skjald­ar­merki lýð­veldis Íslands. Þessi upp­taln­ing er alls ekki tæm­andi og verður það tals­verð áskorun að koma því öllu fyrir í einni bók. Ef það er ein­hver þarna úti sem býr yfir ein­hverjum fróð­leik um Tryggva og vill deila honum með höf­und er bent að net­fangið skjald­ar­merk­ið@g­mail.com.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í útgáf­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár