MP banki og Straumur ná saman um samruna bankanna tveggja

Sam­komu­lag hefur náðst milli MP banka og Straums um sam­runa bank­anna með fyr­ir­vara um nið­ur­stöðu áreið­an­leikakann­anam sam­þykki hlut­hafa­funda og eft­ir­lits­að­ila. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu sem bank­arnir tveir sendu frá sér.

Þar segir að "gangi sam­ein­ingin eftir hefur hún í för með sér aug­ljósan ávinn­ing fyrir hlut­hafa félag­anna. Jafn­framt getur sam­ein­aður banki eflt og bætt þjón­ustu við við­skipta­vini og verið áhuga­verður og metn­að­ar­fullur vinnu­staður. Sam­ein­aður banki mun horfa til sókn­ar­færa á sviði eigna­stýr­ingar og fjár­fest­inga­banka­starf­semi og yrði hann með sterka stöðu á íslenskum fjár­mála­mark­aði á þeim sviðum. Sam­ein­aður banki hefur jafn­framt trausta eig­in­fjár­stöðu og styrk til að veita fjár­festum, spari­fjár­eig­endum og atvinnu­lífi sér­hæfða banka­þjón­ustu. Nú taka við áreið­an­leikakann­anir og við­ræður um nán­ari útfærslu á sam­ein­ingu bank­anna. Nið­ur­stöður þeirrar vinnu verða lagðar fyrir hlut­hafa MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka til end­an­legs sam­þykkis."

Legið lengi í loftinu


Sam­ein­ing bank­anna tveggja hefur legið í loft­inu frá því í fyrra­haust. Kjarninn skrif­aði meðal ann­ars ítar­lega frétta­skýr­ingu í byrjun nóv­em­ber 2014 um þær þreif­ingar sem áttu sér þá stað á bak­við tjöldin. Fyr­ir­sögn hennar var "Straumur kaupir hlut í ÍV – MP, Straumur og ÍV í eina sæng?". Þá hafði Straumur reynt það sem margir upp­lifðu sem óvin­veitta yfir­töku á MP banka með því að kaupa hlut nokk­urra hlut­hafa í bank­anum í óþökk ann­arra. Síðan þá hafa staðið yfir miklar þreif­ingar milli MP banka og Straums.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár