Fuglar og friðlönd fái meiri athygli en botninn á bjórglösunum

Sumir vilja meina að í kjöl­far far­ald­urs COVID-19 skap­ist tæki­færi til að breyta um kúrs í ferða­þjón­ustu. Að núna hafi opn­ast gluggi til að mark­aðs­setja svæði með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi í stað ódýrra drykkja og diskó­teka. En er slíkt hægt á Mallorca?

Strandirnar á Mallorca að lifna við.
Strand­irnar á Mallorca að lifna við. Mynd: EPA

„Við erum mætt aftur!“ hróp­uðu þýskir ferða­menn í gleð­inni sem ríkti við Ball­er­mann-götu á spænsku eyj­unni Mallorca um síð­ustu helgi. „Við viljum skemmta okkur!“

Bjór og sangríur flæddu úr krönum og margir gleymdu sér í gleð­inni. Myndir af þétt­setnum stöðum þar sem sótt­varna­ráð­staf­anir voru ekki ofar­lega á blaði röt­uðu í fjöl­miðla og vöktu hneykslan víða – ekki síst í Þýska­landi þaðan sem flestir hinna skemmt­ana­þyrstu ferða­manna voru. Svo óvar­lega þótti farið að sumir ótt­uð­ust upp­á­komu eins og þá sem varð í Ischgl í Aust­ur­ríki við upp­haf far­ald­urs­ins.

Fjöl­miðlar á Mallorca birtu einnig fréttir um málið og sögðu að nán­ast eng­inn hefði verið með grímur, líkt og á að gera á almanna­færi, og drykkj­arglös hafi gengið manna á milli. Og þegar bjór­inn og sangríurnar voru farin að flæða um æðar ferða­mann­anna var eins og tveggja metra reglan hefði aldrei verið til. „Það er eins og eng­inn þarna hafi heyrt af heims­far­aldr­inum,“ stóð m.a. í umfjöllun Mallorca Zeitung, frétta­mið­ils sem gef­inn er út á þýsku á spænsku eyj­unni. „Við gengum ekki í gegnum umfangs­miklar lok­anir í margar vikur svo árangrinum sé stefnt í voða með þessum hætti.“

Mallorca, eyjan fagra sem tekur fal­lega á móti ferða­mönnum með fjöl­skrúð­ugum gróðri og freist­andi sól­ar­ströndum, náði fljótt góðum tökum á útbreiðslu far­ald­urs COVID-19, ólíkt því sem gerð­ist á meg­in­landi Spánar. En líkt og víða ann­ars staðar hefur til­fellum farið að fjölga á nýjan leik eftir að til­slak­anir voru gerða á sam­komu- og ferða­tak­mörk­unum. Eyja­skeggjar hófu að taka á móti ferða­mönnum um miðjan júní, rétt eins og við Íslend­ingar, og því fyrr en flestir aðrir vin­sælir ferða­manna­staðir í Evrópu. Daglega lenda margar far­þega­þotur á flug­vell­inum í Palma.

Mikið efnahagslegt tjón

Samkomu- og ferða­tak­mark­anir komu veru­lega illa niður á efna­hag Spánar og þar með Mallorca sem stólar meira á ferða­þjón­ustu en nokkra aðra atvinnu­grein. „Það versta sem gæti gerst er að fá stóra hóp­sýk­ingu,“ segir Francina Armengol, svæð­is­stjóri spænsku eyj­anna í Mið­jarð­ar­haf­inu. Hún vonar að allir fari var­lega héðan í frá.

Ferða­mennskan á spænsku Mið­jarð­ar­hafs­eyj­unum, Mallorca, Ibiza og fleiri, ein­kenn­ist mjög af partístandi og stundum drykkjulátum. Matur og drykkir eru ódýrir og alls staðar. Ferða­menn eru svo þekktir fyrir að sletta ærlega úr klauf­unum á Ball­er­mann-götu á Mallorca. Og þýsku ferða­menn­irnir sem þar voru um síð­ustu helgi voru ekk­ert að láta sitt eftir liggja í því.

Jafnvel þó að ólík­legt sé að fram­hjá þeim hafi farið fréttir um að í far­aldri COVID-19 hafa yfir 27 þús­und Spán­verjar dáið. Og að tíu daga þjóð­ar­sorg hafi verið lýst yfir í júní.

Þá, í upp­hafi ferða­manna­ver­tíð­ar­innar á Mallorca, stóðu hót­elin tóm og strand­irnar voru mann­lausar. Flug­vellir voru enn lok­aðir. Um 200 þús­und störf í ferða­þjón­ustu eru undir venju­legum kring­um­stæðum á þess­ari stærstu eyju Spánar í Mið­jarð­ar­haf­inu. Þess vegna er ekki að undra að þegar ákveðið var að opna landa­mærin um miðjan júní hafi rík áhersla verið á að fá sem flesta ferða­menn og það sem fyrst. Á eyj­unni er að finna mörg risa­hótel sem bjóða „allan pakk­ann“ á lágu verði: Gistingu og mat og drykk eins og þú getur í þig látið.

Þetta er þó ekki ferða­mennskan sem allir eyj­ar­skeggjar vilja. Í augum margra er hún ósjálf­bær og skilur þar með lítið eftir sig annað en sorp og fót­spor í mjúkum sandi strand­anna.

Fjöldaferðamennska í áratugi

Spænsku eyj­arnar í Mið­jarð­ar­hafi, saman kall­aðar Bale­ar­eyjar, voru þekktar fyrir fjölda­ferða­mennsku jafn­vel áður en það orð var fundið upp og notað yfir aðsókn­ina til Barcelona og Feneyja. Reyndar var hún svo stjórn­laus og ósjálf­bær að þegar ferða­mála­fræð­ingar tala um slíka þróun ann­ars staðar kalla þeir fyr­ir­bærið „bale­aris­er­ingu“.

Líkt og ann­ars staðar í heim­inum varð COVID-19 til þess að svipta hul­unni af áhrifum massa­t­úrisma á nátt­úru og sam­fé­lög. Þekkt er sagan af því þegar fiskar tóku að synda um sýkin í Feneyjum á ný og hópar fugla að láta sig fljóta þar um í mestu mak­indum, án ónæðis frá ferða­mönnum á gondólum.

Allt annar veru­leiki kom í ljós.

Efna­hags­lega og heilsu­fars­lega hafði far­ald­ur­inn mikil áhrif en nátt­úran fékk frið til að blómstra. Leið­sögu­maður á Mallorca seg­ist í við­tali við National Geographic hafa séð nátt­úru- og dýra­líf, sem ferða­mennskan mikla hafði þaggað niður, taka við sér. „Við sáum mjög sjald­gæfar teg­undir víðar en áður,“ segir hann. Ágang­ur­inn hafi stækkað búsvæði þeirra.

Tólf milljónir ferðamanna

Þegar talað er um massa­t­úrisma á Mallorca er verið að vísa til þess að þangað koma árlega um 12 millj­ónir gesta. Eyja­skeggjar eru hins vegar aðeins um ein milljón. Fast­eigna­fé­lög kaupa upp hús og leigja þau út. Fast­eigna­verðið er því orðið hátt og því ekki á færi allra sem á eyj­unni búa að kaupa. Þá hafa umhverf­is­á­hrifin verið mikil. Vatns­skortur hefur oft verið yfir­vof­andi og hótel hafa sprottið upp eins og gorkúlur á við­kvæðum svæðum. Fjöldi bíla­leigu­bíla og flug­véla hefur svo mengað loftið svo það var engin nýlunda fyrir íbúa Mallorca að bera grímur fyrir vitum þegar COVID kom upp.

Það er skilj­an­legt að fólk vilji koma til Mallorca. Eyjan er sól­rík, sandur strand­anna hvítur og sjór­inn fag­ur­blár. En sú leið sem farin hefur verið í ferða­þjón­ustu er ekki að skilja mikið eftir sig til þeirra sem þar búa. Fjölda­ferða­mennskan, með ódýru hót­el­unum og hlað­borðum í mat og drykk er afsprengi þró­unar sem rekja má allt aftur til sjötta ára­tug­ar­ins. Þá þyrsti spænskum stjórn­völdum í erlendan gjald­eyri og umfangs­mikil ferða­þjón­usta var svarið.

Og í kjöl­farið hófst gríð­ar­leg upp­bygg­ing við strend­urnar fögru – meðal ann­ars á Mallorca. Höf­uð­borgin Palma varð fljót­lega umkringd háum hót­el­bygg­ingum sem reyndu að lokka til sín ferða­menn í massa­vís, ferða­menn sem vildu ferð­ast ódýrt og oft.

Ibiza fór illa út úr sams­konar upp­bygg­ingu og ferða­manna­fjölda. Vin­sældir hennar dvín­uðu enda hafði eyjan mikið látið á sjá.

Nú þegar hlé hefur orðið á ferða­lögum fólks vegna COVID-19 velta því sumir fyrir sér hvort hægt sé að nota tæki­færið og breyta um kúrs? Breyta mark­hópnum og fá frekar ferða­menn sem eru til­búnir að borga meira fyrir ein­staka upp­lifun?

Stjórn­völd á Mallorca eru á þess­ari línu, þ.e. þau vilja vita hvort hægt sé að byggja ferða­þjón­ust­una upp með sjálf­bær­ari og arð­sam­ari hætti. Árið 2016 var til að mynda settur á ferða­manna­skattur til að standa straum af kostn­aði við nátt­úru­vernd vegna átroðn­ings­ins. Eigendur sumra hót­ela og gisti­staða hafa ákveðið að stíla inn á gesti sem hafa meiri áhuga á menn­ingum heima­fólks og nátt­úr­unni en því að skemmta sér fram undir morgun.

Náttúruparadísin Mallorca

Nú í kjöl­far far­ald­urs COVID, að minnsta kosti fyrstu bylgju hans, veltir fólk því fyrir sér hvort tæki­færi hafi skap­ast til að reyna að breyta ímynd Mallorca.

Julio Batle, pró­fessor og sér­fræð­ingur í sjálf­bærri ferða­mennsku og hag­fræði, segir við National Geographic að heima­menn hafi flestir enga reynslu af því að eiga í nánum sam­ræðum við ferða­menn sem heim­sækja eyj­una. Hann segir að núna hafi opn­ast gluggi til að breyta um kúrs.

Mallorca hafi upp á svo margt að bjóða fyrir fólk sem vilji njóta nátt­úr­unnar án stöðugra partía. Þar eru svæði sem eru friðuð vegna ein­stakrar nátt­úru og heimsminja. Og þar sem líf okkar allra hefur breyst vegna heims­far­ald­urs­ins getur verið að enn fleiri eigi eftir að sækja í nákvæm­lega þannig frí en áður. Frí þar sem valin er gist­ing á stöðum sem heima­menn reka og frí þar sem fjöllin, fugla­lífið, ólífu- og ávaxta­akrarnir fá meiri athygli en botn­inn á bjór- og sangríuglös­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár