„Á hverjum degi hóta þeir að hefja stríðið á ný“

Tugir voru drepnir í loft­árásum Ísraels á Gaza, þar á meðal börn, og íbúar reyna að bjarga því sem bjargað verður úr rústum heim­ila sinna í ótta við að stríðið hefj­ist á ný. „Ann­að­hvort er vopna­hlé eða stríð – það getur ekki verið hvort tveggja,“ segir kona sem býr í tjaldi á Gaza.

Með and­lit sín afmynduð af sárs­auka syrgðu ætt­ingjar tvö börn sem lét­ust í loft­árásum Ísra­els­manna á Gaza í nótt. Þeir beygðu sig yfir litlu lík­ams­leif­arnar sem lágu á gang­stétt­inni, vafin í lök, þar af eitt sem var rauð­litað af blóði.

Í Nuseirat-flótta­manna­búð­unum fyrir miðri Gazaströndinni leit­uðu Palest­ínu­menn í morgun í rústum húss sem hafði verið jafnað við jörðu í loft­árás og reyndu að bjarga því litla sem eftir stóð.

„Við borð­uðum kvöld­mat og sett­umst niður, og svo var eins og dóms­dagur væri runn­inn upp. Allar þessar stein­hrúgur féllu ofan á okkur,“ sagði Muneer Mayman við AFP í morgun og benti á hrúgu af stein­steypu og múr­steinum þar sem hann hafði graf­ist undir. 

„Við lágum þarna í meira en tvo tíma á meðan þeir voru að moka rúst­unum af okkur.“

Fyrir aftan hann unnu menn og börn við að fara í gegnum rúst­irnar. Þau drógu eigur …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þetta er trúarbragðastríð.

    Gyðingar trúa því að guðinn hafi gefið meintum forföður þeirra, Abraham, landið umfram aðra menn. Afkomendur hans voru reyndar aðeins stuttan tíma í Ísrael, ca 3 kynslóðir áður en þeir fluttust til Egyptalands og gerðust síðar þrælar Egypta, svo þeir hafa í mesta lagi búið á nokkrum hekturum í Ísrael.

    Löngu síðar, eftir að guðinn hafði drepið alla frumburði Egypta í einni af plágunum sem hann framkallaði, leyfði Faraó, forystumaður Egypta, gyðingunum að fara til baka, en sá svo eftir því og var her Egypta drekkt í hafinu af guðinum sem hafði áður þurrkað einhverskonar götu í gegnum mitt hafið og látið það steypast yfir þá þegar þeir veittu gyðingunum eftirför. Þegar "heim" var komið gerðu gyðingarnir svo tilkall til landsins síns og fóru með hernaði gegn íbúum þess og kepptust við að uppræta þá sem tilheyrðu ekki söfnuðinum, kannski ekki alls ólíkt og í dag.

    Það er þó merkilegt að einu boðorðinu virðast Ísraelar gleyma, eða boðorðinu: Þú skalt ekki mann deyða - en það er kannski ekki skrítið því guðinn átti í mestu erfiðleikum með að fara eftir því sjálfur - samkvæmt biblíunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár