Ekki á hreinu hvernig setning um fjármagn til rannsóknar á Samherja rataði inn í tilkynningu ríkisstjórnar

Dóms­mála­ráðu­neytið seg­ist standa við að saka­mál hafi ekki lotið póli­tískum afskiptum þrátt fyrir að rík­is­stjórn Íslands hafi gefið út til­kynn­ingu um sér­tæka fjár­mögnun rann­sóknar á Sam­herj­a­mál­inu í nóv­em­ber 2019.

„Nokkrar manna­breyt­ingar hafa orðið síðan þetta var á flestum stöðum og því virð­ist ekki alveg á hreinu hvernig þessi setn­ing rataði inn í til­kynn­ingu eftir rík­is­stjórn­ar­fund. Þær til­kynn­ingar koma frá for­sæt­is­ráðu­neyti.“

Þetta segir í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um úr hvaða ráðu­neyti setn­ing úr til­kynn­ingu rík­is­stjórnar Íslands frá 19. nóv­em­ber 2019, eigi upp­runa sinn. Setn­ingin er eft­ir­far­andi: „Þá verður hugað sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu“.

Ástæða fyr­ir­spurn­ar­innar var sú að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra full­yrti í nýlegu svari við skrif­legri fyr­ir­spurn á Alþingi að með­ferð til­tek­inna saka­mála lúti ekki póli­tískum afskiptum þrátt fyrir að rík­is­stjórnin með ofan­greindri til­kynn­ingu heitið sér­stakri fjár­mögnun fyrir tveimur og hálfu ári vegna rann­sóknar á Samherja fyrir meint mútu­brot, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti, meðal ann­ars í tengslum við starf­semi sam­stæð­unnar í Namibíu, Íslandi og í þekktum skatta­skjólum.

Kjarninn greindi frá því 6. júní síð­ast­lið­inn að Jón stæði við þessa full­yrð­ingu þrátt fyrir að rík­is­stjórn skipuð sömu flokkum og nú stjórna land­inu hafi með opin­berri til­kynn­ingu heitið fjár­magni í rann­sókn á sér­stöku saka­máli. Í svari sem barst Kjarn­anum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í aðdrag­anda birt­ingu þeirrar umfjöll­unar sagði ein­fald­lega: „Setn­ingin sem vísað er í frá 19. nóv. 2019 á ekki upp­runa sinn í minn­is­blöðum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í tengslum við þann fund.“

Í fyr­ir­spurn sem Kjarninn sendi í kjöl­farið var spurt hvort það þýddi að umrædd setn­ing ætti upp­runa sinn í öðru ráðu­neyti en dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt svar­inu sem barst, og birt er í upp­hafi þess­arar umfjöll­unar, virð­ist það ekki alveg á hreinu hvernig umrædd setn­ingin rataði inn í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, meðal ann­ars vegna manna­breyt­inga í ráðu­neyt­inu. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, flokks­systir núver­andi ráð­herra, var dóms­mála­ráð­herra þegar til­kynn­ingin var send út.

Eina sem ráðu­neytið telur sig geta gert til að upp­lýsa um hvaðan setn­ingin kom er að benda á til­kynn­ingin í heild hafi komið frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem var þá eins og nú stýrt af Katrínu Jak­obs­dóttur. „Hér í dóms­mála­ráðu­neyt­inu eru emb­ætt­is­menn sem tengj­ast þessum mála­flokki mjög með­vit­aðir um það að gera hvorki fyr­ir­spurnir né eiga sam­skipti um ein­stök saka­mál, dóms­mál eða annað sem farið er með í stofn­unum sem heyra undir ráðu­neytið nema þegar slíkt er gert í skil­greindum og form­legum far­vegi. Dóms­mála­ráðu­neytið og ráð­herra standa því við það að saka­mál hafa ekki lotið og eiga ekki að lúta póli­tískum afskiptum.“

Fengu aukið fjármagn í kjölfar tilkynningarinnar

Á títt­nefndum rík­is­stjórn­ar­fundi í nóv­em­ber 2019 voru sam­þykktar sjö tölu­settar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í heild til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið var opin­berað í Kveik og Stund­inni viku áður, 12. nóv­em­ber 2019.

Sjötta aðgerðir sner­ist um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum og mútu­brot­um og þar var að finna setn­ing­una um að sér­stak­lega yrði hugað að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara á Sam­herj­a­mál­inu.

Sjö­unda aðgerðin sneri svo að því að rík­is­stjórnin hefði fjallað um Sam­herj­a­málið með til­liti til alþjóða­sam­skipta og sagt að utan­rík­is­ráðu­neytið væri að fylgj­ast „með umfjöllun erlendis og hefur und­ir­búið við­brögð vegna hugs­an­legs orð­spors­hnekk­is.“

Tveimur dögum eftir ofan­­greindan rík­­is­­stjórn­­­ar­fund, 21. nóv­­em­ber 2019, sendi Ólafur Þór Hauks­­son hér­­aðs­sak­­sókn­­ari minn­is­­blað til dóms­­mála­ráð­herra þar sem hann lagði til að starfs­­mönnum emb­ætt­is­ins yrði fjölg­að. Þótt Sam­herj­­a­­málið sé ekki sér­­stak­­lega nefnt í minn­is­­blað­inu kemur þar fram að þáver­andi starfs­­manna­­fjöldi dugi ekki til að sinna öllum þeim rann­­sókn­­ar­verk­efnum sem emb­ættið hafi á hend­i.

Emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara, Skatt­­ur­inn og skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri fengu svo 200 millj­­óna króna auka­fjár­­veit­ingu á árinu 2020.

Kjarn­inn hefur opin­berað að á Íslandi séu átta manns hið minnsta með rétt­­ar­­stöðu sak­­born­ing við rann­­sókn emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara á meintu pen­inga­þvætti, mút­u­greiðslum og skatta­snið­­göngu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unn­­ar. Á meðal þeirra er Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja, en allir hinir annað hvort starfa fyrir sam­­stæð­una eða hafa gert það. Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber 2021 að rann­­­sókn á meintum skatta­laga­brotum Sam­herj­­­a­­­sam­­­stæð­unnar hefði færst yfir til emb­ættis hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara skömmu áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár