Sver af sér pólitísk afskipti af sakamálum þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi haft pólitísk afskipti af sakamáli

Jón Gunn­ars­son seg­ist standa við full­yrð­ingu sína um að með­ferð til­tek­inna saka­mála lúti ekki póli­tískum afskiptum þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi heitið sér­stakri fjár­mögnun fyrir tveimur og hálfu ári vegna rann­sóknar á Sam­herj­a­mál­inu.

Í nýlegu svari við fyr­ir­spurn Eyjólfs Ármanns­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, um rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á hinu svo­kall­aða Sam­herj­a­máli, sagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra að emb­ætti sem fara með rann­sókn og sak­sókn saka­mála fái ekki auknar fjár­veit­ingar til að sinna rann­sókn til­tek­ins saka­máls.

Það grund­vall­ist á því að íslenskt saka­mála­rétt­ar­far byggi á „því grund­vall­ar­sjón­ar­miði að með­ferð saka­mála eigi ekki að lúta póli­tískum afskiptum vald­hafa á hverjum tíma. Af þessu leiðir að dóms­mála­ráðu­neyti og dóms­mála­ráð­herra hafa engin afskipti af saka­mála­rann­sóknum á Íslandi að und­an­skildu þröngu hlut­verki ráðu­neyt­is­ins í alþjóð­legri saka­mála­sam­vinnu.“ Á þessum grund­velli taldi dóms­mála­ráð­herra sér ekki fært að svara spurn­ingum þing­manns­ins.

Þrátt fyrir þessi svör ráð­herr­ans eru for­dæmi fyrir því að ráð­herra hafi heitið fjár­veit­ingu til að sinna sér­stöku saka­máli.

Á fundi rík­is­stjórnar Íslands þann 19. nóv­em­ber 2019 var kynnt aðgerða­á­ætlun í sjö liðum til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða var opin­berað viku áður. Ljóst var á þeim tíma að rann­sókn máls­ins gæti orðið umfangs­mikil, en undir eru meint mútu­brot, pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga.

Segir setninguna ekki eiga uppruna í minnisblöðum frá ráðuneytinu

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á heima­síðu stjórn­ar­ráðs­ins á þessum tíma sagði að á rík­is­stjórn­ar­fund­inum hefði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, farið yfir lög­gjöf, alþjóða­samn­inga og þau atriði sem unnið hefur verið að og varða mútu­brot og pen­inga­þvætti. Þar sagði síðan orð­rétt: „Þá verður hugað sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu.“

Tveimur dögum eftir ofan­greindan rík­is­stjórn­ar­fund, 21. nóv­em­ber 2019, sendi Ólafur Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ari minn­is­blað til dóms­mála­ráð­herra þar sem hann lagði til að starfs­mönnum emb­ætt­is­ins yrði fjölg­að. Þótt Sam­herj­a­málið sé ekki sér­stak­lega nefnt í minn­is­blað­inu kemur þar fram að þáver­andi starfs­manna­fjöldi dugi ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem emb­ættið hafi á hend­i.

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, Skatt­ur­inn og skatt­rann­sókn­ar­stjóri fengu svo 200 millj­óna króna auka­fjár­veit­ingu á árinu 2020.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið og spurði af hverju svar Jóns við fyr­ir­spurn Eyjólfs Ármanns­sonar hefði verið í and­stöðu við þá fram­kvæmd sem fyr­ir­renn­ari hans í starfi beitti á rík­is­stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber 2019?

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að Jón standi við svar sitt um að með­ferð saka­mála eigi ekki að lúta póli­tískum afskiptum vald­hafa á hverjum tíma. Til­vitn­unin í frétta­til­kynn­ingu rík­is­stjórnar frá árinu 2019 breyti engu þar um. „Dóms­mála­ráðu­neytið tengir ekki umræður um fjár­heim­ildir og fjár­þörf emb­ætta við ein­stakar rann­sóknir eða dóms­mál, heldur almennt mat á verk­efna­stöðu og álagi við­kom­andi emb­ætta. Setn­ingin sem vísað er í frá 19. nóv. 2019 á ekki upp­runa sinn í minn­is­blöðum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í tengslum við þann fund.“

Aðstoðarmaðurinn sem tjáði sig sértækt um virka lögreglurannsókn

Kjarninn spurði dóms­mála­ráðu­neytið einnig um ýmis ummæli ann­ars aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra, Brynjars Níels­sonar, í ljósi þess að ráð­herr­ann hafði sagt að í svari sínu við fyr­ir­spurn Eyjólfs að íslenskt saka­mála­rétt­ar­far byggi á því grund­vall­ar­sjón­ar­miði að með­ferð saka­mála eigi ekki að lúta póli­tískum afskiptum vald­hafa á hverjum tíma.

Síðan að Brynjar tók við stöðu aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra í byrjun des­em­ber í fyrra hefur hann tjáð sig opin­ber­lega um mál sem eru í virkri lög­reglu­rann­sókn, sér­stak­lega rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á meintum brotum fjög­urra blaða­manna Kjarnans, Stund­ar­innar og RÚV á lögum um frið­helgi einka­lífs. Rann­sóknin snýst um með­ferð gagna úr síma manns sem heitir Páll Stein­gríms­son, og starfar hjá Samherja.

Á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter 16. febr­úar 2022 setti Brynjar til að mynda inn eft­ir­far­andi færslu:

Í þætt­inum Sprengisandi 22. febr­úar síð­ast­lið­inn þrá­spurði Brynjar fram­kvæmda­stjóra Stund­ar­innar, Jón Trausta Reyn­is­son, hvort hann hefði gögn úr síma Páls undir höndum.

Í þætt­inum lýsti Brynjar ítrekað skoð­unum sínum á umræddri rann­sókn og því sem hann teldi að hún sner­ist um. Meðal ann­ars sagði hann: „Þeim hefur ekk­ert sér­stak­lega verið borið á brýn að hafa bara nýtt þessi gögn. Þeir væru ekki sak­born­ingar að mínu viti ef það væri eina atriðið í þessu máli.“

Undir lok þátt­ar­ins þrá­spurði aðstoð­ar­mað­ur­inn svo fram­kvæmda­stjóra Stund­ar­innar hvort mið­ill­inn hefði gögn úr síma Páls undir höndum (alls fjórum sinnum) þrátt fyrir að 25. grein fjöl­miðla­laga geri fjöl­miðla­fólki óheim­ilt að tjá sig um gögn sem það hefur undir höndum.

Aðstoðarmaður má tjá sig um virka lögreglurannsókn

Kjarninn spurði dóms­mála­ráð­herra hvort það væri mat hans að ofan­greind orð aðstoð­ar­manns yfir­manns lög­reglu­mála í land­inu, sem féllu á opin­berum vett­vangi, gangi ekki gegn því grund­vall­ar­sjón­ar­miði að með­ferð saka­mála eigi ekki að lúta póli­tískum afskiptum vald­hafa á hverjum tíma?

Brynjar Níelsson var þingmaður um nokkura ára skeið en náði ekki inn í síðustu kosningum. Í kjölfarið var hann ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Brynjar Níelsson var þing­maður um nokkura ára skeið en náði ekki inn í síð­ustu kosn­ingum. Í kjöl­farið var hann ráð­inn aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar.

Jón telur svo ekki vera. Í svar­inu segir að aðstoð­ar­maður ráð­herra sé póli­tískur og gegni fyrst og fremst því hlut­verki að vera ráð­herra innan handar og til ráð­gjafar vegna stefnu­mót­unar og póli­tískra ákvarð­ana. „Aðstoð­ar­maður ráð­herra hefur ekki aðkomu að málum sem koma til afgreiðslu hjá ráðu­neyt­inu, hann hefur þar ekki form­legt hlut­verk, ábyrgð né vald og hefur ekki aðgang að máls­gögnum ein­stakra mála. Ráðu­neyti og ráð­herra hafa auk þess engin afskipti af saka­mála­rann­sóknum á Íslandi að und­an­skildu þröngu hlut­verki ráðu­neyt­is­ins í alþjóð­legri saka­mála­sam­vinnu.“

Auk þess að vera aðstoð­ar­maður ráð­herra sé Brynjar líka vara­þing­maður. „Per­sónu­legar skoð­anir hans á málum sem eru í sam­fé­lags­um­ræð­unni eru ekki talin póli­tísk afskipti vald­hafa af með­ferð saka­mála og eru því ekki álitin ganga gegn nefndu grund­vall­ar­sjón­ar­miði.“

Tveir blaða­menn Kjarnans eru á meðal þeirra sem hafa verið boð­aðir til yfir­heyrslu vegna rann­sóknar á meintum brotum á frið­helgi einka­lífs­ins sem fjallað er um í þess­ari frétta­skýr­ingu. Höfundur hennar er annar þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár