Segir dómsmálaráðuneytið skreyta sig með stolnum fjöðrum

Drífa Snædal fram­kvæma­stjóri SGS gagn­rýnir harð­lega til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem kom fram sam­hliða birt­ingu skýrslu banda­rískra stjórn­valda um man­sal. Segir bar­átt­una gegn man­sali keyrða áfram af ein­stak­lingum en ekki stjón­völdum.

Drífa Snædal fram­kvæma­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins gagn­rýnir harð­lega til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem kom fram sam­hliða birt­ingu skýrslu banda­rískra stjórn­valda um man­sal. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Drífa að enn bóli ekk­ert á aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali og „enn telur ráð­herra gagn­rýnar skýrslur vera byggðar á mis­skiln­ingi.“ Þá segir hún ráðu­neytið skreyta sig með stolnum fjöðrum og bar­áttan gegn man­sali sé keyrð áfram af ein­stak­lingum innan kerf­is­ins í stað þess að vera skipu­lögð af yfir­völdum sem eigi að fjár­magna og fram­kvæma.

Ísland í 2. flokki - úrbætur nauðsynlegar

Í skýrsl­unni, sem unnin er ein­hliða af hálfu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, kemur meðal ann­ars fram að Ísland upp­fylli ekki lág­marks kröfur til útrým­ingar á man­sali í heim­inum þó verið sé að stíga þýð­ing­ar­mikil skref í þá átt. Ríkin eru flokkuð í fjóra flokka og er Ísland nú í 2. flokki, annað árið í röð. Ísland var í 1.flokki til árs­ins 2017.

Skýrslan segir að stjórn­völd hafi sýnt auk­inn vilja með því að rann­saka fleiri mansals­mál og fjölgan starfs­mönnum við þær rann­sóknir. Náðst hafi að bera kennsl á mögu­leg fórn­ar­lömb og almennt hafi vernd þeirra verið aukin. Hins vegar hafi stjórn­völd ekki upp­fyllt lág­marks kröfur á nokkrum lykil sviðum. Enginn hafi verið ákærður eða sak­felldur sjö ár í röð hér á landi. Þekking á mála­flokknum innan kerf­is­ins er ábóta­vant, sem og vernd, aðbún­aður og aðstæður sem mögu­legir þolendur búi við meðan mál þeirra eru til með­ferðar í rétt­ar­vörslu­kerf­inu.

Í skýrsl­unni er til­lögum að úrbótum beint til Íslands. Meðal ann­ars að auka veru­lega við til­raunir til að bera kennsl á fórn­ar­lömb mansals, að beina þeim í réttar áttir til aðstoðar, að styrkja til­raunir til frek­ari rann­sókna, sak­sókna og sak­fell­inga á man­selj­endum. Þá þurfi að auka við þjálfun lög­reglu, sak­sókn­ara og dóm­ara til að koma auga á mansals­brot, byggja upp traust milli lög­gæslu, fórn­ar­lamba auk þess sem nauð­syn­legt sé að útvega þeim vernd og vinnu­leyfi til að hvetja þau til að taka þátt í rann­sókn mál­anna. Þá þurfi sér­úr­ræði, til dæmis fyrir karl­menn og börn sem fórn­ar­lömb mansals, og auka þjálfun við öflun sönn­un­ar­gagna, svo ekki þurfi að reiða eins mikið á fram­burð vitna. Þá þurfi áherslu á að koma auga á þvinguð hjóna­bönd, vinnuman­sal og man­sal almennt hjá inn­flytj­endum, fylgd­ar­lausum börnum og hæl­is­leit­endum. Þá þurfi að ljúka við aðgerð­ar­átlun gegn man­sali og henni þurfi að fylgja nægt fjár­magn til inn­leið­ingar og eft­ir­fylgni.

Ný aðgerðaráætlun í haust

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ýmis­legt hafi verið að gert í þessum mála­flokki.

„Íslensk stjórn­völd hafa lagt kapp á að bæta með­ferð mansals­mála hér á landi, auka þekk­ingu á eðli og ein­kennum brot­anna sem og að vernda þolendur brot­anna og mæta þörfum þeirra. Aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali var í gildi árin 2013-2016 og á grund­velli hennar var ráð­ist í fræðslu­á­tak í sam­ráði við alla hlut­að­eig­andi hér á landi. Yfir 2000 manns vítt og breytt um landið hafa nú þegar fengið fræðslu. Þá hefur Vel­ferð­ar­ráðu­neytið sett á lagg­irnar tvö teymi, þ.e. við­bragð­steymi sem leysir úr málum er varða hús­næði og þjón­ustu við meinta þolendur mansals og sam­ráð­steymi sem kemur með til­lögur að bættri þjón­ustu við þolendur.“

Þá segir að dóms­mála­ráð­herra hafi sett í for­gang vinnu við gerð nýrrar aðgerð­ar­á­ætl­unar gegn man­sali sem verði lögð fram strax í haust. „Við gerð þeirrar áætl­unar verður tekið mið af athuga­semdum og ábend­ingum sem fram hafa komið í úttekt GRETA (Group of Experts on Action aga­inst Trafficking in Human Beings), nefnd sér­fræð­inga sem hefur það hlut­verk að fylgja eftir inn­leið­ingu Evr­ópu­samn­ings um aðgerðir gegn man­sali, sem Ísland hefur full­gilt. Helstu áherslur verða að efla fræðslu/þjálfun t.d. hjá lög­reglu varð­andi rann­sóknir, vit­und­ar­vakn­ing og gerð fræðslu­efnis, efla þjón­ustu og úrræði fyrir þolendur, skoða úrræði fyrir ger­endur og koma upp NRM (National refferral mechanism), sem myndi einnig tryggja áreið­an­legri töl­fræði, svo eitt­hvað sé nefnt.“

Í til­kynn­ing­unni segir að Ísland muni þannig áfram skipa sér í fremstu röð þjóða sem berj­ast gegn masali í heim­inum. „Nákvæm úttekt GRETA á stöðu mansals­mála á Íslandi er þýð­ing­ar­mikil í því sam­bandi og gagn­legt inn­legg í vinnu við nýja aðgerða­á­ætlun. Teymi á vegum GRETA var hér á landi fyrir stuttu við gerð úttekt­ar­innar og vann hana í ítar­legu sam­ráði við íslensk stjórn­völd. Nið­ur­stöður hennar verða gerðar opin­berar í haust.

Niðurstaðan vanþekking á íslensku réttarfari

Þá er haft eftir Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra að helsta gagn­rýni skýrsl­unnar lúti enn að fjölda ákæra í mansals­málum „og hlýtur sú nið­ur­staða að byggj­ast á van­þekk­ingu þeirra á íslensku rétt­ar­fari. Ákærur eru ekki gefnar út nema meiri en minni líkur séu á sak­fell­ingu. Til sam­an­burðar eru gefnar út um 1000 ákærur í mansals­málum í Banda­ríkj­unum á ári sem hlýtur að telj­ast lágt hlut­fall miðað við mann­fjölda. Lög­gæslan hefur verið efld til muna hér á landi að und­an­förnu og meiri þungi lagður í fræðslu til handa þeim sem fara með rann­sókn mála af þessu tagi. Við vinnum nú að gerð nýrrar aðgerð­ar­á­ætl­unar gegn man­sali sem verður lögð fram í haust. Þar verður lögð áhersla á að aðgerðir séu raun­hæfar, tíma­settar og vel skil­greindar. Það þarf líka að stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu á meðal almenn­ings um þessa teg­und mála svo þau þrí­fist ekki í skugg­anum og rati frekar til lög­reglu­yf­ir­valda. Það er óásætt­an­legt að ein­stak­lingar séu hnepptir í ánauð af hvaða ástæðu sem er og íslensk stjórn­völd munu gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir og upp­ræta slík brot á frelsi fólks,“ segir Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, um skýrsl­una í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Ekki haldið nægilega vel utan um þolendur

Drífa Snædal segir ráðu­neytið skreyta sig með stolnum fjöðrum í til­kynn­ing­unni. Það fræðslu­á­tak sem ráð­ist hafi verið í, ráð­stefnur sem hafi verið haldnar og árverkn­is­verk­efni, hafi verið unnin af stétt­ar­fé­lögum, lög­regl­unni og félags­þjón­ust­unni án þess að sér­stakt fjár­magn hafi feng­ist til verk­efn­is­ins. „Enn er bar­áttan gegn man­sali keyrð áfram af ein­stak­lingum innan kerf­is­ins í stað þess að vera skipu­lögð af yfir­völdum sem eiga að fjár­magna og fram­kvæma fræðslu, eft­ir­lit og vernd mansals­fórn­ar­lamba. Enn erum við að missa fólk úr landi aftur í ömur­legar aðstæður af því við tökum ekki nógu vel utanum þolendur. Þolendur sem hafa verið mis­not­aðir í vinnu til að keyra áfram góð­ærið. Nú er enn boðuð aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali en ekki hefur verið haft sam­band við þá sem best þekkja til (alla­vega innan stétt­ar­fé­lag­anna) til að vinna þessa áætlun. Það stendur ekki á okkur!!“ segir í stöðu upp­færslu Drífu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár