Ásdís vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi

Ásdís Krist­jáns­dóttir ætlar að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Kópavogi.

Ásdís Kristjánsdóttir.
Ásdís Krist­jáns­dóttir. Mynd: Aðsend

Ásdís Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri og for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, býður fram í fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi í próf­kjöri sem mun fara fram 12. mars næst­kom­andi.

Ármann Kr. Ólafsson, núver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og bæj­ar­stjóri í Kópavogi frá árinu 2012, til­kynnti nýverið að hann ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí.

Ásdís er hag­fræði- og verk­fræði­menntuð. Hún hefur starfað á fjár­mála­mörk­uðum og setið í stjórnum fyr­ir­tækja. „Ég hef í starfi mínu sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri og for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins lagt ríka áherslu á ábyrgan og skil­virkan rekstur hins opin­bera, þar með talið á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu sem Ásdís sendi frá sér í dag.

„Ábyrgur rekstur er for­senda þess að unnt sé að veita lipra, sveigj­an­lega og góða þjón­ustu sem mætir ólíkum þörfum fólks, en um leið verðum við að leita allra leiða til að stilla gjöldum og álögum á fólk og fyr­ir­tæki í hóf. Við getum styrkt tekju­stofna bæj­ar­fé­lags­ins og fjölgað atvinnu­tæki­færum með því að laða enn frekar til okkar öfl­uga starf­semi fjöl­breyttra fyr­ir­tækja. Til þess þurfum við að tryggja að öll stjórn­sýsla sé skil­virk og snurðu­laus, að erindi séu afgreidd hratt og örugg­lega og leggja áherslu á að spara fólki sporin með staf­rænum lausnum.

Fram undan eru áhuga­verð upp­bygg­ing­ar­verk­efni í bænum og mik­il­vægt að vanda vel til verka, tryggja sam­stöðu og sátt meðal bæj­ar­búa og hús­næði fyrir fólk á öllum ævi­stigum. Sam­göngur skipta okkur öll máli, hvort sem við erum gang­andi, á hjóli eða í bíl. Ég vil bættar sam­göngur fyrir fjöl­breyttan lífs­stíl í takt við vax­andi bæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár