Er nýtt vígbúnaðarkapphlaup að hefjast?

Hvers vegna koma ríki sér upp kjarn­orku­vopn­unum?

B-52 Stratofortress sprengjuflugvél bandaríska flughersins. Vélar sem þessar hafa verið í notkun um áratugaskeið, geta flogið heimsálfa á milli og borið kjarnorkuvopn.
B-52 Stratof­or­tress sprengju­flug­vél banda­ríska flug­hers­ins. Vélar sem þessar hafa verið í notkun um ára­tuga­skeið, geta flogið heims­álfa á milli og borið kjarn­orku­vopn.

Um þessar mundir eru 70 ár frá því að Banda­ríkja­menn vörp­uðu kjarn­orku­sprengjum á japönsku borg­irnar Hiros­hima og Nagasaki, en það mark­aði lok heims­styrj­ald­ar­innar síð­ari. Í kjöl­farið fór í gang mikið víg­bún­að­ar­kapp­hlaup með ógn­ar­jafn­vægi sem byggð­ist á kjarn­orku­vopnum þar sem stór­veldin tvö, Banda­ríkin og Sov­ét­ríkin, voru í for­grunni. Þeir sem lifðu þessa tíma kalda stríðs­ins muna vel hvernig kjarn­orku­váin vofði stöðugt yfir og varla leið sá dagur að fólk væri ekki minnt á hætt­una á kjarn­orku­stríði.

Stór­veldin tvö höfðu þó náð vissum árangri með samn­ingum um tak­mörkun og eyð­ingu kjarn­orku­vopna strax á 8. ára­tugnum, en eftir stóð að þau réðu enn yfir gríð­ar­legu magni sem nægt hefði til að tor­tíma gervöllum heim­inum mörgum sinnum.

Það voru stærstu og vold­ug­ustu ríki heims sem þró­uðu kjarn­orku­tækn­ina og komu sér upp kjarn­orku­vopnum, þó fleiri hafi fengið að fylgja með. Til varð fyr­ir­komu­lag, sem ekki gefst færi á að fara nánar út í hér, þar sem sum ríki fengu að þróa og ráða yfir kjarn­orku og kjarn­orku­vopnum en önnur ekki.

Níu ríki búa nú yfir kjarn­orku­vopnum, fimm þeirra eiga fast sæti í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna: Banda­ríkin, Rússland, Frakk­land, Bretland og Kína – auk þess sem Indland, Pakistan, Norður Kórea og Ísrael eiga kjarn­orku­vopn.

Eftir að kalda stríð­inu lauk hefur umræða um kjarn­orku­vopn og mögu­lega beit­ingu þeirra ekki verið mjög áber­andi. Jafn­framt hefur verið unnið áfram að afvopnun, tak­mörkun og fækkun kjarn­orku­vopna í heim­inum undir for­merkjum NPT samn­ings­ins sem á rætur að rekja allt aftur til árs­ins 1968.

Er nýtt kapphlaup hafið?

Þegar betur er að gáð hefur afvopn­unin ekki verið eins mark­viss og virð­ast mætti í fyrstu. Stöðugt er unnið að þróun á full­komn­ari vopnum, sem beita má af meiri nákvæmni, þó ein­hverjum úreltum hafi verið fargað. Magn vopna hefur dreg­ist saman, en heildar getan auk­ist. Jafn­framt eru nú komnar upp aðstæður sem minna óþægi­lega á fyrri tíma, því eftir að Rússar réð­ust inn í Úkraínu og hertóku Krím­skaga hafa sam­skipti þeirra og Vest­ur­landa verið tals­vert ógn­vekj­andi.

Vladimir Pútín sagði fyrr á þessu ári að Rússar hefðu áhyggjur af eld­flauga­varn­ar­bún­aði nálægt landa­mærum sínum um leið og til­kynnt var að Rússar myndu bæta 40 lang­drægum eld­flaugum í kjarn­orku­vopna­búr sitt strax á þessu ári. Pútín sagði að Rússar væru knúnir til að beina vopnum sínum að þeim svæðum þaðan sem ógnin kæmi. Hann sagði áætl­anir Banda­ríkj­anna um að koma fyrir skrið­drekum og þunga­vopnum í NATO-ríkjum við landa­mæri Rúss­lands mestu ógn af hálfu Banda­ríkja­manna síðan í kalda stríð­inu.

Bresk stjórn­völd hafa brugð­ist við með því að hvetja NATO til her­æf­inga með kjarn­orku­vopnum og John Kerry utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna lýsti í kjöl­farið áhyggjum sínum vegna ummæla Pútíns. Hann sagði engan vilja sjá sam­skiptin fara aftur í sama far og þau voru í á kalda­stríðs­ár­unum og að ummæli þjóð­ar­leið­toga jafn valda­mik­ils ríkis og Rúss­lands hljóti að vekja fólk til umhugs­unar um hverjar afleið­ing­arnar gætu orðið.

Haft hefur verið eftir yfir­mönnum hjá NATO að það sé almenn stefna banda­lags­ins að fæl­ing­ar­máttur fáist með sam­blandi af hefð­bundnum vopnum, eld­flaugum og kjarnaflaugum. Hins vegar sé það áhyggju­efni að Rússar hafi lækkað þann þrösk­uld sem almennt við­gengst í sam­skiptum hvað varðar kjarn­orku­vopn. Þeir gangi jafn­vel lengra en á meðan kalda stríð­inu stóð og sé það mikið áhyggju­efni.

Nú er talið að um 200 B61 kjarna­oddar séu geymdir í banda­rískum her­stöðvum í fimm Evr­ópu­löndum, ein­hver afgangur af vopna­búri þeirra frá sjö­unda ára­tugnum. Hern­að­ar­sér­fræð­ingar vilja meina að þessi vopn séu ögrandi tíma­skekkja og hafa bent á að lang­drægar flaugar í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, auk þeirra sem beita má frá kaf­bátum, séu yfir­drifið nógur fæl­ing­ar­máttur gagn­vart Rússum.

Þessi víg­bún­aður virð­ist þó ekki nægja og það vekur ugg að í kjöl­far nýrrar stöðu milli Rúss­lands og Vest­ur­veld­anna eru nú uppi áætl­anir um að upp­færa þessar flaugar með nútíma tækni­bún­aði. Þannig yrðu þær mun nákvæm­ari og beita mætti þeim gegn afmark­aðri skot­mörkum. Banda­ríkja­þing sam­þykkti einmitt ekki beiðni hers­ins um slík nákvæmn­is­vopn á 10. ára­tugnum því þau stór­auka hættu á að menn sjái kjarn­orku­vopn sem raun­hæfan mögu­leika í stríði.

Langdrægri Tomahawk stýriflaug skotið frá USS Cape St. George í Miðjarðarhafinu í Persaflóastríðinu, en svona flaugar geta borið kjarnaodda.
Lang­drægri Tomahawk stýriflaug skotið frá USS Cape St. George í Mið­jarð­ar­haf­inu í Persaflóa­stríð­inu, en svona flaugar geta borið kjarna­odda.

Er meira undir en hefðbundnar varnir?

Ekki þarf að fjöl­yrða um afleið­ingar kjarn­orku­spreng­inga og þótt ein­hverjir hern­að­ar­sér­fræð­ingar telji að ný tækni geri það betur mögu­legt að heyja tak­markað kjarn­orku­stríð, sjá vænt­an­lega flestir beit­ingu kjarn­orku­vopna sem alger­lega óásætt­an­legan val­kost.

Mik­il­vægt er að koma auga á hvað býr að baki því að ríki komi sér upp kjarn­orku­vopnum, annað en þegar um hefð­bund­inn víg­búnað er að ræða. Það segir nefni­lega ekki nema hálfa sög­una að skoða ein­ungis hinn eig­in­lega varn­ar­þátt kjarn­orku­vopna – og hvernig þau þjóna því hlut­verki að bregð­ast við hern­að­ar­legri ógn.

Nú er rætt um þá ógn sem stafar af því ef kjarn­orku­vopn kæmust í hendur öfga­sinn­aðra hryðju­verka­hópa eins og Íslamska rík­is­ins og er það rétt­mætur ótti. Hér er sjónum hins vegar beint að því þegar kjarn­orka og kjarn­orku­vopn eru nýtt sem valda­tæki, sem aftur riðlar stjórn­skipan, tak­markar eðli­lega umræðu og lýð­ræði þar með. En jafn­framt því, þegar þeir sem telja sig þess umkomna að ráða yfir kjarn­orku­vopnum fara að sjá það sem raun­hæfan mögu­leika að beita þeim.

Grund­vall­ar­at­riðið í þess­ari umræðu er hversu kjarn­orka og kjarn­orku­vopn eru sér­stök fyr­ir­bæri, sem bygg­ist m.a. á hinum gríð­ar­lega eyð­ing­ar­mætti og háþró­aðri tækni sem ekki er á allra færi. Því verður auð­velt að gera allt sem teng­ist kjarn­orku og kjarn­orku­vopnum órætt og dul­ar­fullt auk þess sem gjarnan ríkir leynd um fyr­ir­komu­lag varn­ar­mála ríkja.

Auk þess ríkir í heim­inum ákveðið stig­veldi varð­andi það hver má ráða yfir kjarn­orku og kjarn­orku­vopnum og til er nokkuð sem fræði­menn hafa kallað á ensku „nuclear exeptionalism“. Hugtak þetta lýsir ástand­inu sem verður til í kringum kjarn­orku­sprengj­una vegna þess að allt sem teng­ist henni þykir svo sér­stakt og stór­brotið að ekki sé á færi venju­legs fólks eða stofn­ana að fjalla um það. Því verður kjarn­orkan, sér í lagi kjarn­orku­vopn, smátt og smátt óháð hefð­bundnum ferlum við áætl­anir og ákvarð­ana­töku, hvort sem um er að ræða til­tekin ríki eða alþjóða­sam­fé­lagið í heild.

Kjarn­orku­mál verða þá nokk­urs konar ríki í rík­inu, sem getur gert vald­höfum auð­velt að nota kjarn­ork­una sem tæki til að ráða stjórn­málum inn­an­lands á ólýð­ræð­is­legan máta. Kjarn­orku­mál eru gjarnan umdeild mál en alltaf má skáka í skjóli óljósra en til­finn­inga­tengdra hug­taka eins og „þjóðar­ör­yggis“. Kjarn­orku­sprengjan getur því verið kjörin leið fyrir stjórn­mála­öfl til að ná til sín fylgi í and­rúms­lofti óein­ingar með því að t.d. magna upp ótta og þjóð­ern­is­kennd.

Dæmi um þetta er kjarn­orku­vopna­á­ætlun Indverja sem var gerð að kosn­inga­máli árið 1998 og var fjarri því að vera byggð á ígrund­uðum stra­tegískum áætl­unum um raun­veru­lega varn­ar­þörf. Stjórn­mála­öfl nýttu sér kjarn­orku­á­ætlun rík­is­ins sér til fram­dráttar. Hrært var saman óljósum til­vís­unum í þjóð­erni, trú, sögu og arf­leifð og látið í veðri vaka að þeir ógn­ar­kraftar sem búa þarna að baki ættu sér ein­hverja guð­lega teng­ingu.

Einnig ná nota kjarn­orku­vopn til að skapa ríki stöðu í alþjóð­legu sam­hengi og styrkja um leið við­kom­andi stjórn­mála­afl inn­an­lands. Ríkið getur breytt sjálfs­mynd sinni og sýnt hversu nútíma­vætt það er. Gott dæmi um þetta er Frakk­land og kjarn­orku­á­ætl­unin sem sett var í gang á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Frökkum stóð ekki nein ógn af nokkrum sem kall­aði á kjarn­orku­víg­búnað, þeim var hins vegar mjög í mun að sýna fram á mátt sinn og megin og að Frakkar væru þjóð í fremstu röð á sviði tækni og vís­inda.

Kjarn­orku­vopn eru því annað og meira en vopn sem beint er gegn hugs­an­legum óvini. Þau eru tákn um vald, stöðu, mik­il­feng­leik, tækni­lega yfir­burði – jafn­vel ein­hvers konar sam­band við æðri mátt­ar­völd, teng­ing við hið guð­lega.

Þegar spenna magn­ast í sam­skiptum gam­alla óvina er útlitið ekki gott. Hugs­an­lega erum við að horfa fram á nýja tíma, nýtt víg­bún­að­ar­kapp­hlaup þar sem trúin á tækn­ina verður aðal drif­fjöðrin, nú þegar ein­hverjir telja tækni­fram­farir geti gert tak­mörkuð kjarn­orku­stríð mögu­leg. Við þessu má bregð­ast með því að hafna óþarfa leynd og við­hafa lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð þegar kjarn­orka og kjarn­orku­vopn eru ann­ars vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár