Telja þrengt að atvinnu- og menntamöguleikum fólks með ADHD

Að mati ADHD sam­tak­anna byggja breyttar reglur Mennta- og starfs­þró­un­ar­set­urs lög­regl­unnar á van­þekk­ingu og úreltum hug­myndum en nú segir í lækn­is­fræði­legum við­miðum þeirra að grein­ingin ADHD/ADD geti verið úti­lok­andi þáttur.

ADHD sam­tökin mót­mæla harð­lega breyttum inn­töku­skil­yrðum sem Mennta- og starf­þró­un­ar­setur lög­regl­urnar hefur nýverið upp­lýst um. Þar er í fyrsta sinn hér­lendis þrengt veru­lega að atvinnu- og mennta­mögu­leikum fólks með ADHD. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum en ályktun þess efnis var sam­þykkt á stjórn­ar­fundi í dag.

Viðmið vegna ADHD/ADD voru upp­færð þann 15. júlí síð­ast­lið­inn og segir nú að grein­ingin ADHD/ADD geti verið úti­lok­andi þáttur, sér­stak­lega hjá ein­stak­lingum sem séu í lyfja­með­ferð vegna ADHD. Hafi umsækj­andi fyrri sögu um slíka grein­ingu þurfi við­kom­andi að leggja fram vott­orð sér­fæði­læknis sem lögð verði til grund­vallar mati trún­að­ar­læknis í hverju til­viki.

Að mati ADHD sam­tak­anna byggja þessar breyttu reglur Mennta- og starfs­þró­un­ar­set­urs lög­regl­unnar á van­þekk­ingu, úreltum hug­myndum og stang­ast bein­línis á við lög og vís­inda­lega þekk­ingu um ADHD og virkni ADHD lyfja. „Svo getur virst sem þekk­ingu höf­undar regln­anna, á mála­flokknum, sé alvar­lega ábóta­vant sem má meðal ann­ars sjá af orða­lagi þess hluta leið­bein­ing­anna sem fjallar um lækn­is­vott­orð,“ segir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Yfirvöld hermála í Noregi nýlega afnumið sambærilegar takmarkanir

ADHD sam­tökin benda jafn­framt á að nýverið hafi yfir­völd her­mála í Noregi afnumið sam­bæri­legar tak­mark­anir á inn­töku ein­stak­linga með ADHD í norska her­inn enda talið frá­leitt að setja svo alvar­legar og almennar skorður við atvinnu­frelsi fólks með ADHD, líkt og nýjar reglur Mennta- og starfs­þró­un­ar­set­urs lög­regl­unnar gera ráð fyrir.

ADHD sam­tökin skora enn fremur á Mennta- og starfs­þró­un­ar­setur lög­regl­unnar, rík­is­lög­reglu­stjóra og ráð­herra mála­flokks­ins, að aft­ur­kalla nýju inn­töku­regl­urnar nú þegar, „þar sem mark­mið þeirra virð­ist það eitt að úti­loka fólk með ADHD frá störfum innan lög­regl­unnar. Einnig má færa rök fyrir því að regl­urnar gætu orðið til þess að þeir lög­reglu­menn sem eru nú þegar starf­andi og eru með greint eða ógreint ADHD veigri sér við að leita sér aðstoðar, sem svo aftur getur haft nei­kvæð áhrif á starfs­getu þeirra innan lög­regl­unnar.“

Þá kemur fram í frétt ADHD sam­tak­anna að þau muni aldrei sætta sig við hinar nýju reglur og heita þau því að berj­ast gegn slíkri mis­munun, hér­lendis og ann­ars­staðar þar sem slíkar reglur eru enn í gildi. Um það hafi þegar tek­ist sam­starf við syst­ur­sam­tök ADHD sam­tak­anna á Norð­ur­lönd­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár