Breytingar á yfirstjórn, meðal annars forstjóraskipti, kostuðu N1 117 milljónir króna

Breyt­ingar á yfir­stjórn N1 kost­uðu félagið 117 millj­ónir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi. Þar er ekki greindur niður kostn­aður á hverja breyt­ingu á yfir­stjórn en þar skiptir mestu máli upp­sögn for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Eggerts Bene­dikts Guð­munds­sonar, í febr­úar 2015. Árslaun hans voru 55,9 millj­ónir króna á árinu 2014. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi N1 sem var birtur í gær.

Þrír úr fram­kvæmda­stjórn félags­ins hættu störfum hjá N1 á árs­fjórð­ungnum. Fyrst hætti Halldór Harð­ar­son, sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs, í byrjun febr­úar til að ger­ast mark­aðs­stjóri Arion banka. Ekki var ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs heldur var búin til ný staða mark­aðs­stjóra sem var ekki hluti af yfir­stjórn. Við því starfi tók Þyrí Dröfn Kon­ráðs­dóttir, sem hafði verið sér­fræð­ingur á mark­aðs­sviði N1, í mars síð­ast­liðnum.

Eggert Benedikt Guð­munds­son, sem hafði verið for­stjóri N1 frá árinu 2012, komst skömmu síðar að sam­komu­lagi um að láta af störfum hjá félag­inu. Við starf­inu tok Eggert Þór Krist­ó­fers­son, fyrrum fjár­mála­stjóri N1. Margrét Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­for­maður N1, sagði í sam­tali við vb.is að for­stjóra­skiptin hefðu verið gerð til að lækka kostnað við yfir­stjórn hjá félag­inu. Í árs­reikn­ingi N1 fyrir árið 2014 kom fram að Eggert Benedikt hafi verið með 55,9 millj­ónir króna í árs­laun á því ári, eða 4,7 millj­ónir króna á mán­uði. Eggert Þór, sem tók við for­stjóra­starf­inu, var hins vegar með 33,8 millj­ónir króna í árs­laun árið 2014 fyrir að sinna starfi fjár­mála­stjóra. Pétur Haf­steins­son var í apríl ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs N1 og tók þar með við því starfi sem Eggert Þór hafði gengt.

Ingunn Sveins­dóttir, sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri ein­stak­lings­sviðs N1, sagði síðan upp störfum í byrjun mars. Guðný Rósa Þor­varð­ar­dóttir var ráð­inn í starfið í apríl.

Í árs­hluta­reikn­ingnum segir orð­rétt: „Breyt­ingar voru einnig gerðar á fram­kvæmda­stjórn og er heild­ar­kostn­aður við breyt­ingar á yfir­stjórn félags­ins 117 m.kr. Kostn­að­ur­inn var gjald­færður að fullu á tíma­bil­inu.“ Launa­kostn­aður án breyt­inga við yfir­stjórn félags­ins lækk­aði hins vegar um 7,6 pró­sent á milli ára. Framlegð af vöru­sölu jókst um 12,8 pró­sent, mark­aðs­hlut­deild N1 jókst á árs­fjórð­ungnum og hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði var 248 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár