Grímuklædd og vopnuð lögregla handtók tvo menn í Mjódd

Handtaka tveggja manna í Mjódd­inni síð­ast­lið­inn þriðju­dag olli óhug veg­far­enda en lög­reglu­menn sem að hand­tök­unni stóðu voru óein­kenn­is­klæddir og grímu­búnir. Ellefu ára stúlkur á leið á Barbie kvik­mynd­ina urðu mjög skelk­aðar. Menn­irnir eru grun­aðir um að hafa flutt til lands­ins um tvö kíló af kóka­íni.

Óeinkennisklæddir, grímubúnir og vopnaðir
Óein­kenn­is­klæddir, grímu­búnir og vopn­aðir Aðgerðin olli óhug veg­far­enda en Grímur Grímsson yfir­lög­reglu­þjónn segir hana þó hafa gengið vand­ræða­laust fyrir sig.

Tveir menn voru hand­teknir í umfangs­miklum aðgerðum Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 25. júlí síð­ast­lið­inn í Mjódd. Óein­kenn­is­klæddir og grímu­búnir sér­sveit­ar­menn, vopnum búnir, hand­tóku menn­ina og vakti aðgerðin nokkurn óhug meðal veg­far­enda. Meðal ann­ars urðu þrjár ell­efu ára stúlkur á leið í bíó, til að sjá Barbie, vitni að hand­tök­unni og urðu þær ansi skelk­aðar.

Þeim sem vitni urðu að hand­tök­unni var ekki ljóst hverjar ástæð­urnar voru að baki henni en Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn mið­lægrar deildar Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stað­festir að menn­irnir tveir hafi verið hand­teknir, grun­aðir um að hafa flutt inn um það bil tvö kíló af kóka­íni. Efnið var í send­ingu sem menn­irnir voru að sækja og voru þeir hand­teknir við þá iðju.

„Þetta er þeirra aðferð­ar­fræði, að hylja and­lit sín“
Grímur Grímsson
um sér­sveit­ina

Spurður hvort að það sé vana­legt að lög­reglu­menn séu óein­kenn­is­klæddir og með and­lits­grímur í aðgerðum sem þessum neitar Grímur því. „Nei, ég get ekki sagt að það sé almennt en hins vegar er það þannig við ákveðnar kring­um­stæður, og það er mat okkar í hvert sinn, þá óskum við eftir aðstoð frá sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Í þessu til­viki nutum við aðstoðar sér­sveit­ar­innar og þeir sem voru okkur til aðstoðar voru óein­kenn­is­klæddir en hins vegar vopn­aðir. Þetta er þeirra aðferð­ar­fræði, að hylja and­lit sín.“

Og það hefur að gera með þeir þekk­ist ekki, meðal ann­ars til að koma í veg fyrir mögu­legar hefnd­ar­að­gerðir?

„Já, til að það liggi ekki ljóst fyrir hverjir eru með­limir sér­sveit­ar­innar.“

Þetta hefur verið aðgerð sem inni­bar eft­ir­lit og fyr­ir­sát?

„Já, eins og ger­ist gjarnan með svona send­ingar, þegar við fáum upp­lýs­ingar um þær þá skiptum við um efni og látum afhenda þær og fylgj­umst með því og grípum síðan menn. Það var það sem var að ger­ast þarna.“

Þið sem sagt skiptuð um efnin og það er stað­fest að þetta voru um tvö kíló af kóka­íni?

„Já, akkúrat.“

„Þetta gekk bara mjög vel, engin mót­spyrna eða neitt svo­leiðis.“
Grímur Grímsson
um hand­tök­una

Fór hand­takan vand­ræða­lítið fram?

„Já, þetta gekk bara mjög vel, engin mót­spyrna eða neitt svo­leiðis.“

En eins og þú sagðir, þið fenguð með ykkur í lið vopn­aða sér­sveit­ar­menn. Bjuggust þið við því að það gætu orðið átök?

„Já, það er nú raun­veru­lega þannig að ef við óskum eftir aðstoð sér­sveit­ar­innar þá vopn­ast þeir. Það eru gerðar örygg­is­kröfur og mat lagt á áhættu í hvert skipti. Þegar hún nær ákveðnu stigi þá er þetta fram­kvæmdin.“

Eftirlit og fyr­ir­sátMenn­irnir tveir voru hand­teknir þegar þeir sóttu pakka með hvítu dufti. Lög­reglan hafði áður skipt kóka­íni út fyrir annað efni.

Ekki taldir tengdir skipulagðri glæpastarfsemi

Aðspurður segir Grímur að lög­reglan telji ekki að menn­irnir tveir séu tengdir skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. „Ekki sér­stak­lega, ekki þannig að við höldum að þeir séu hluti af ein­hverjum hópi eða gengi.“

Kókaínið kom hingað til lands með póst­send­ingu en Grímur segir að hann hafi ekki að svo stöddu upp­lýs­ingar um upp­runa­land send­ing­ar­innar. Fleiri hafa verið hand­teknir vegna máls­ins að sögn Gríms. Þrír sitja í gæslu­varð­haldi, menn­irnir tveir sem hand­teknir voru í aðgerð­inni, og þriðji maður. Allar hand­tök­urnar fóru fram hér­lendis og ekki var um að ræða sam­starf með erlendum lög­reglu­yf­ir­völdum heldur sam­starfs­verk­efni með íslensku toll­gæsl­unni. Grímur segir að ekki sé búist við frek­ari hand­tökum né öðrum aðgerðum sem snúi að mál­inu. Fyrir liggi að klára rann­sókn­ina og senda að því búnu málið til ákæru­sviðs til frek­ari vinnslu

Kókaín flæðir inn í landið

Heim­ildin greindi frá því í síð­ustu viku að á tveggja mán­aða tíma­bili í vor hefðu átta manns verið stöðvuð og hand­tekin á Kefla­vík­ur­flug­velli, með fíkni­efna­send­ingar hingað til lands. 

Í öllum til­vikum nema einu var fólkið að smygla kóka­íni til lands­ins. Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari sagði í þeirri frétt að þau mál sem hefðu verið að koma upp að und­an­förnu hefðu að miklu leyti snúið að kóka­ín­inn­flutn­ingi. Spurður hvort að kókaín flæði inn í landið svarar Grímur því ját­andi.

„Já, það er það sko. Þessi hvítu efni sem við erum að taka eru yfir­leitt kókaín. Ég ímynda mér eða get jafn­vel sagt að ég telji, að það séu tölu­verð merki þess að það amfetamín sem er í umferð sé annað hvort fram­leitt hér á landi eða í það minnsta að loka­ferli fram­leiðsl­unnar fari fram hér á landi. Það á hins vegar ekki við um kóka­ínið, það er yfir­leitt í duft­formi þegar það kemur til lands­ins.“

Hafið þið af þessu áhyggjur?

„Það er alltaf svo­lítið erfitt að átta sig á hvernig eigi að túlka það sem manni finn­ast vera breyt­ingar í þessum efnum. Við höfum talað um það að við tókum síð­ast­liðið haust hund­rað kíló af kóka­íni og maður getur velt fyrir sér hvort það hafi ein­hver áhrif á inn­flutn­ing í minni skömmtum. Síðan má velta fyrir sér hvort við séum að ná meiru af því sem flutt er inn heldur en áður, eða hvort það sé bein­línis aukn­ing í inn­flutn­ingi. Það er erfitt að átta sig á þess­ari statistík. Þetta er auð­vitað eins og hverjar aðrar vanga­veltur, en við höfum verið að velta þessu fyrir okkur.“

Olli hræðsluÞrjár litlar stúlkur á leið í bíó urðu vitni að hand­tök­unni og urðu býsna skelk­aðar.

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er það sem koma skal, Glæpamen vaða uppi i þessu landi og komast vel i Alnir vegna Dopsölu, margir fara i Brask og Leigubrasan, það a ekki að taka þessa Fira með silkihönskum
    Að sjalfsögðu þarf Löggam að nota Hettu með götum fyrir sjon, Island er litið land og Lögreglumenn og konur eiga mögulega Hefnd yfirvofandi þegar Þessir Vesalingar losna
    Her eru Glæpir að Harna og Dop flæðir inn i landið. Frett fra Tollinum i Flugstöðini i Keflavik nylega var rætt við konu sem er yfir hja Tollinum þar a RUV Lysingar hennar um leiðir þær
    voru i ymsum mindum Gamalmenni Hjolastolar og jafnvel börn Bera Dop inn i Landið ja þetta voru skuggalegar Lysingar. Eg hef seð i Glasgow að mikil hluti Lögreglu er Borgaralega klæddur
    a Bilum i Borgaralegum litum, lika er Löggan a meðal Borgarana i Manhafinu, Þar eru snögg viðbrgð og þa er Sokudolgum ekki Hlift. A Islandi skortir Fjarmagn til Rotækra Aðgerða
    og Forvarna. Nei Lögan I Reykjavik er helst til og Væg við Glæpamenn og Dapsala. Þetta er bara Forsmekkurin Eyturlyf munu Flaða her in i FJÖLMENINGAR SAMFELAGI.
    You ain't seen nothing yet.
    -1
    • Mary Luz Antonsdóttir skrifaði
      Þeir ættu að leita ráða hjá öðrum löndum sem hafa þurft að takast á við þessa tegund glæpa - halda þeim í varðhaldi án tryggingar og einnig halda þeim í fjarskiptasambandi - ég held að lögfræðingarnir sem hjálpa þessum glæpamönnum sætti sig við þetta og séu jafnvel sammála þessu, þetta land muni verða fyrir frekari skaða ! setja andlit glæpamannanna, það getur verið að aðrir viti fleiri hluti og ef þeir þekkja þá gætu þeir hjálpað með línu. Hringdu í einkaaðila til að fá hjálp. Ég veit ekki hvað á að gera en að hafa lögreglumennina með andlitið hulið er skelfilegt, en það er til öryggis þeirra og fjölskyldna þeirra :-)
      -1
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Mjög eðlileg ráðstöfun að lögregluþjónar hylji andlit sín við svona aðstæður. Í svo litlu samfélagi sem okkar á glæpalíður mjög auðvelt með að finna út hverjir eru á fréttamyndum og öðrum myndum ef andlytin eru sýnileg. Það verður að beita öllum ráðum til að halda niðri þessum glæpalíð sem er að brjótats inn og stela verðmærum, selja börnunum okkar dóp og svífst einskis. Teiserar og ýmis verkfæri úr þeirri átt eru bara af hinu góða.
    2
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Ekki I lagi og glæpamenn fara létt með að nafnkenna sérsveitarmenn. Of mikið bioglap löggunnar.
      0
  • Anna Á. skrifaði
    Almenningur getur semsagt ekki lengur greint á milli vopnaðra glæpamanna sem hylja andlit sín og svo lögreglunnar. Blaðamanni virðist hafa gleymt að vekja athygli á að lögreglumenn sem hylja andlit sín, munu ekki fylgja ákvæðum reglugerðar nr 380/2019 um að lögreglumönnum beri skylda til að sýna sín lögregluskírteini sem sýna m.a. raðnúmer skilríkis og Fullt nafn handhafa skírteinis.
    https://island.is/reglugerdir/nr/0380-2019
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár