Þann 14. október síðastliðinn var hátíðisdagur í dagatali Sameykis – stéttarfélags í almannaþjónustu. Þann dag stóð félagið fyrir málþingi í tilefni könnunar félagsins á Stofnun ársins. Þar var stofnunum hjá ríki, borg og bæ veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í sínu innra starfi. Verðlaunin voru veitt vegna ársins 2019, en vegna Covid ástandsins í okkar kæra landi þá hafði hátíðinni verið frestað síðastliðið vor fram á haustið. Í flokki stórra stofnana þá var Nýsköpunarmiðstöð Íslands í fyrsta sæti, framúrskarandi stofnun með 4,53 í heildareinkunn. Til að ná slíkum árangri þá verður stofnunin að skora vel á öllum matsþáttum; stjórnun, starfsanda, ímynd stofnunar, ánægju og stolti, o.s.frv. Það hefur sýnt sig að viðurkenning af þessu tagi er mikilvæg þeim stofnunum, sem hafa staðið sig vel í að bjóða upp á góða vinnuaðstöðu, góða stjórnun, hvetjandi vinnuumhverfi og þar fram eftir götunum. Og undantekningarlaust hefur þessi árangur náðst vegna þess að stofnanir eru að sinna hlutverki sínu í samfélagi okkar vel. Starfsánægja og stolt starfsmanna af sínum vinnustað hefur þannig vaxið í réttu hlutfalli af velgengni stofnana í kjarnahlutverki sínu. Stofnun sem er augljóslega að vinna framúrskarandi starf kallar þannig fram það besta í starfsmönnum sínum. Með þann árangur í farteskinu ætti stofnunin núna að vera að uppskera eins og til var sáð. Nú ætti stefnan að vera tekin á að gera enn betur í því mikilvæga hlutverki, sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur staðið fyrir árum saman. Núna ætti að byggja enn frekari árangur á þeim traustu stoðum sem stofnunin stendur á. Á svona tímamótum væri ærið tilefni fyrir ráðherra nýsköpunarmála á Íslandi að fagna. Kalla forstjórann á sinn fund, eða hitta hann á rafrænum fundi, senda starfsmönnum hamingjuóskir eða jafnvel senda blómvönd með góðri hvatningu. En ... ekkert af þessu gerðist. Því að ráðherra iðnaðar og nýsköpunar ætlar að leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður.
[adspot]Til að draga upp mynd af þeim afleiðingum sem þessi ætlun ráðherrans hefur í för með sér er fróðlegt að lesa í gegn um þær athugasemdir sem sendar voru inn í samráðsgátt stjórnvalda, um frumvarp ráðherra þar sem gert er ráð fyrir að leggja Nýsköpunarmiðstöð niður. Í umsögnum kemur fram að það skortir alla sýn í frumvarpinu um nýsköpun í öðrum greinum en tæknigreinum. Það er bent á að fyrir erlend stórfyrirtæki í samstarfsverkefnum skiptir oft mjög miklu máli að hafa aðkomu opinberra stofnana til að tryggja áreiðanleika í verkefnum. Með því að leggja niður stuðning á fyrstu stigum nýsköpunar, þar sem arðsemi verkefna er ekki kominn í ljós, er málaflokknum sparkað mörg ár aftur í tímann. Engin fagleg greiningarvinna hefur farið fram sem styður þessa áætlun ráðherra. Árið 2018 kom það fram í máli fyrrverandi forstjóra að árleg velta fyrirtækja sem orðið hafa til í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð, er að jafnaði um 10 milljarðar króna á ári hverju. Vísindafélagið telur mikla hættu á því að þessar aðgerðir muni vinna mikinn skaða á rannsóknarinnviðum á Íslandi. Háskólasamfélagið hefur áhyggjur af vanfjármögnun málaflokksins og bendir á að í alþjóðlegu samstarfi þurfi ríkisstofnanir eins og Nýsköpunarmiðstöð ekki að fara í sérstakt áreiðanleikapróf til að sýna fram á að þær geti staðið við skuldbindingar sínar í samstarfsverkefnum. Og fleira mætti telja.
Það er alltaf réttur tími fyrir góðar hugmyndir, en aldrei fyrir vondar. Vondar hugmyndir geta að vísu komið fram á mis óheppilegum tímum og þessi hugmynd um að leggja Nýsköpunarstofnun niður gæti varla hafa komið fram á verri tíma. Ef ætlun stjórnvalda er sú að grípa til varna fyrir íslenskt samfélag á þessum tímum sem við nú lifum, þá væri rétta ákvörðunin sú að fara í stórátak í nýsköpunar- og hvatningarverkefnum, þar sem byggt yrði á þeim trausta grunni sem starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar hafa lagt. Samtímis væri hægt ef þurfa þykir að styrkja stofnunina með innra umbótastarfi og framsæknum nýjungum í þjónustunni. Stofnunin hefur sýnt og sannað að þar starfar samhentur og framsýnn starfsmannahópur, sem er hlutverki sínu vel vaxinn.
Forsætisráðherra hefur margsagt að núverandi ríkisstjórn byggi á stöðugleika. Að því gefnu er eini leikurinn í stöðunni að styrkja Nýsköpunarmiðstöð og færa öflugum starfshópi ný verkefni og tækifæri til að gera enn betur, sækja ákafar fram í þjónustu, aðstoð og nýjum verkefnum á landinu öllu. Því ættu stjórnvöld að leika sína bestu leiki í stöðunni til að ná þeim markmiðum sem þjóðin þarf á að halda núna. Einn þeirra leikja er að styrkja starf Stofnunar ársins árið 2019. Sem er Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Höfundur er framkvæmdastjóri kjaramála og reksturs hjá Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir