Ekki búið að leggja meira til hliðar til að leiðrétta laun bankastjóra Landsbankans

Ekkert hefur verið lagt til hliðar vegna leið­rétt­ingu launa bank­an­stjóra Lands­bank­ans, Stein­þórs Páls­sonar, frá árinu 2013. Í árs­skýrslu bank­ans vegna árs­ins 2012 voru 47 millj­ónir króna færðar sem var­úð­ar­færsla vegna „hugs­an­legra leið­rétt­inga eða aft­ur­virkra breyt­inga á launum og starfs­kjörum banka­stjóra á árunum 2011 og 2012“.

Kjarninn spurð­ist fyrir um hvort meira fé hefði verið lagt fyrir vegna þess­arrar mögu­legu leið­rétt­ingar síð­ustu ár. Í svari bank­ans kemur fram að svo hafi ekki verið. Ef eitt­hvað hefði verið lagt til hliðar hefði það komið fram í upp­gjörum, afkomutil­kynn­ingum sem og árs­skýrslu bank­ans.

Má ekki vera með hærri laun en forsætisráðherra


Íslenska ríkið er aðal­eig­andi Lands­bank­ans og því falla starfs­kjör banka­stjóra undir lög um kjara­ráð, sem sett voru eftir banka­hrun. Samkvæmt þeim mega þeir sem undir ráðið heyra ekki vera með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra.

Bankaráð og stjórn­endur Lands­bank­ans hafa verið ósátt með þetta fyr­ir­komu­lag og telja að þau kjör sem bank­inn geti boðið séu ekki sam­keppn­is­hæg við kjör stjórn­enda í stærri fyr­ir­tækjum á fjár­mála­mark­aði. Banka­ráðið sendi meðal ann­ars erindi til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) þar sem það kvart­aði yfir gild­andi fyr­ir­komu­lagi og taldi það geta brotið í bága við stjórn­ar­skrá og samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. ESA ákvað hins vegar ekki að að haf­ast neitt í mál­inu.

Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Lands­bank­ans voru laun Stein­þórs Páls­sonar árið 2014 um 1,5 milljón króna. Auk þess fékk hann hluta­bréfatengdar greiðslur upp á um 175 þús­und krónur á mán­uði en kostn­aður vegna bif­reiða­hlunn­inda og netteng­ingar á heim­ili banka­stjór­ans voru dregin af launum hans.

Sjö fram­kvæmda­stjórar Lands­bank­ans, sem heyra ekki undir lög um kjara­ráð, voru með hærri laun en bank­an­stjór­inn í fyrra. Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka var með 4,3 millj­ónir króna á mán­uði og Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, með um þrjár millj­ónir króna á mán­uði. Bæði Arion banki og Íslands­banki hafa auk þess tekið upp kaupauka­kerfi sem juku tekjur banka­stjóra þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár