Dæmdir til að greiða Matthíasi 640 milljónir króna

Róbert Wessman og tveir við­skipta­fé­lagar hans voru í dag dæmdir til að greiða Matth­í­asi Johann­es­sen 640 millj­ónir króna auka vaxta fyrir að hlunn­fara hann í við­skiptum tengdum Alvogen.

Róbert Wessman
Róbert Wessman Mynd: Aðsend mynd

Róbert Wessman, Árni Harð­ar­son og Magnús Jaroslav Magn­ús­son voru í dag dæmdir til að greiða Matth­í­asi Johann­es­sen 640 millj­ónir króna í Hæsta­rétti Íslands. Málið snýst um það að menn­irnir fjórir keyptu saman fjár­fest­inga­fé­lagið Aztiq Pharma Partners sem átti í gegnum dótt­ur­fé­lög 30 pró­sent hlut í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen. Róbert átti langstærstan hluta í félag­inu, eða um 94 pró­sent. Hinir menn­irnir áttu tvö pró­sent hver.

Sumarið 2010 var eign Aztiq Pharma Partners í Alvogen seld til ann­ars félags á nafn­virði. Það félag var í eigu Árna Harð­ar­sonar. Matthías taldi að með þessu hefðu hinir menn­irnir þrír hlunn­farið sig á sak­næman og ólög­legan hátt og fór fram á að þeir greiddu sér 3,1 millj­arð króna. Vara­krafa hans hljóð­aði upp á 640 millj­ónir króna og féllst Hæsti­réttur á hana. Til við­bótar til þá upp­hæð munu vextir reikn­ast á upp­hæð­ina frá sumr­inu 2010 og drátt­ar­vextir frá árinu 2011.

Í dómi Hæsta­réttar segir að eign­ar­hlut­ur­inn í dótt­ur­fé­lag­inu, sem hélt á 30 pró­sent hlut í Alvogen, hefði verið seldur á und­ir­verði og að mönn­unum hafi mátt vera full­ljóst „að með þeirri ráð­stöfun hefðu hags­munir eins hlut­hafa í félag­inu með ótil­hlýði­legum hætti verið teknir fram yfir hags­muni félags­ins og þar með ann­arra hlut­hafa.“

Í yfir­lýs­ingu sem Róbert Wessman, Árni Harð­ar­son og Magnús Jaroslav Magn­ús­son sendur frá sér vegna dóms Hæsta­réttar segir: „Mála­ferli Matth­í­asar Johann­es­sen eiga sér langa sögu en hann var við upp­haf starf­semi Alvogen starfs­maður sem boðið var að kaupa 2% í fjár­fest­inga­fé­lagi sem þá var nýbúið fjár­festa í Alvogen. Hann hætti þar störfum í mars 2010 og hóf skömmu síðar störf hjá Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Í nær átta ár hefur Matthías sóst eftir ævin­týra­legri ávöxtun sem hlut­hafi í félag­inu Aztiq Pharma Partners sem hann keypti 2% hlut í fyrir 10.000 krónur árið 2009. Matthías sjálfur hafði miklar vænt­ingar um ávöxtun en með dómi Hæsta­réttar voru honum dæmdar um 7% af upp­haf­legri 9 millj­arða bóta­kröfu hans.

Nið­ur­staða Hæsta­réttar felur í sér að ávöxtun Matth­í­asar nemur um 6.400.890% sem er yfir 6 milljón pró­senta ávöxtun á einu ári. Und­ir­rit­aðir eru nú dæmdir til að greiða Matth­í­asi um 640 millj­ónir króna. Und­ir­rit­aðir telja að því miður horfi Hæsta­réttur fram hjá nokkrum lyk­il­at­riðum í mál­inu og eru það því tals­verð von­brigði fyrir und­ir­rit­aða að vera dæmdir bóta­skyldir gagn­vart Matth­í­asi jafn­vel þó bæt­urnar séu brot af því sem hann fór fram á. Menn geta velt fyrir sér hvernig æðsti dóm­stóll lands­ins getur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að margra milljón pró­senta árs­á­vöxtum á fjár­fest­ingu geti verið eðli­leg nið­ur­staða.“

Í dómi Hæsta­rétt­ar er talað um sak­næma hátt­semi þeirra Ró­berts, Árna og Magnús­ar, en þar kem­ur fram að þeir hafi með „ólög­mætri og sak­næmri hátt­semi staðið því í vegi að aðal­á­frýj­andi fengi notið rétt­inda sinna sem hlut­hafi“ í Aztiq Pharma Partners.

Málið snýst kaup mann­anna fjög­urra á fé­lagi sem síðar fékk nafnið Aztiq Pharma Partners ehf. Átti fé­lagið, í gegn­um dótt­ur­fé­lög sín 30% hlut í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen. Átti Ró­bert 94% í fé­lag­inu en hinir 2% hver. Síðar eign­að­ist Árni hlut Ró­berts, en Matth­ías taldi sig eiga for­kaups­rétt á þriðj­ungi hluta­bréfa Ró­berts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár