Helmingur landsmanna með heildartekjur undir 400 þúsund á mánuði

Helm­ingur Íslend­inga þén­aði minna en 400 þús­und krónur á mán­uði í fyrra en eitt pró­sent lands­manna var með meira en 1,8 milljón króna á mán­uði. Heild­ar­tekjur lands­manna voru að með­al­tali 421 þús­und krónur að jafn­aði og hækk­uðu um 6,6 pró­sent frá árinu áður. Þetta kemur fram tölum um tekjur ein­stak­linga á árinu 2014 sem Hagstofa Íslands birti í morgun.

Þar segir að heild­ar­tekjur Íslend­inga hafi hækkað um 58 pró­sent miðað við fast verð­lag frá árinu 1990. Þróun ráð­stöf­unar- og atvinnu­tekna er mjög svipuð árið 2014 og hún var árið 1990. Ráð­stöf­un­ar­tekjur voru hærri en atvinnu­tekjur á árunum 2003 til 2010 en þar mun­aði mest um góð­ærð­is­árið 2007.

Í tölum Hag­stof­unnar kemur fram að mik­ill munur sé á heild­ar­tekjum eftir aldri. Ein­stak­lingar á aldr­inum 45 til 50 ára voru með hæstu tekj­urnar en lands­menn á aldr­inum 16 til 19 ára með þær lægstu.

Karlar á aldr­inum 45 til 50 ára eru með mun hærri laun en konur á sama aldri. Alls þéna karl­arnir í þeim ald­urs­hópi að með­al­tali 675 þús­und krónur á mán­uði en kon­urnar 483 þús­und krónur. Þar munar því um 40 pró­sentum. Þá kemur fram að fimm pró­sent karla hafi atvinnu­tekjur yfir um 1,1 millj­ónum króna á mán­uði. Að sama skapi höfðu fimm pró­sent kvenna atvinnu­tekjur yfir 708 þús­und krónum á mán­uði.

Því er enn langt í land að jafn­ræði ríki milli kynj­anna í tekjum.

Ríkasta prósentið þénaði helming allra fjármagnstekna

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna, alls 1890 manns, hefði þénað 42,4 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2014. Alls námu fjár­magnstekjur sem ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir greiddu í fyrra 90,5 millj­örðum króna og því fékk þessi litli hópur sam­tals 47 pró­sent þeirra tekna í sinn hlut. Um tvær af hverjum þremur krónum sem rík­asta pró­sent lands­manna þén­aði í fyrra er vegna fjár­magnstekna. Þetta mátti lesa úr stað­tölum skatta vegna árs­ins 2014 sem birtar hafa verið á vef emb­ættis rík­is­skatt­stjóra.

Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eignum sínum. Þ.e. ekki launum. Þær tekjur geta verið ýmis konar. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næðis, arð­greiðslur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Ef tekj­urnar eru útleystar, þannig að þær standi eig­anda þeirra frjálsar til ráð­stöf­unar, ber að greiða af þeim 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt sem rennur óskiptur til rík­is­ins. Ljóst er að ein­ungis lít­ill hluti af fjár­magnstekjum var útleystur í fyrra. Alls greiddu íslensk heim­ili, ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir, 3,8 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt á árinu 2014. Því til við­bótar greiddu fyr­ir­tæki, sjóðir og rík­is­sjóður vel á þriðja tug millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt. Alls skil­aði hann 30,6 millj­örðum króna á árinu 2014.

Tekjuhæstu auka auð sinn hraðast

Kjarninn hefur áður greint frá því að sá fimmt­ungur lands­manna sem hafði hæsta tekjur á árinu 2014, alls tæp­lega 40 þús­und manns, hafi auki hreina eign sína um 142,2 millj­arða króna á því ári. Tæpur helm­ingur aukn­ingar á auði íslenskra heim­ila á síð­asta ári féll í skaut þessa hóps. Þetta kom fram í tölum Hagstofu Íslands um eignir og skuldir Íslend­inga í árs­lok 2014 sem birtar voru í lok sept­em­ber 2015.

Tekju­hæsta tíund lands­manna, 19.711 manns, sá auð sinn vaxa um 88,2 millj­arða króna á árinu 2014. Á sama tíma óx hrein eign þess helm­ings þjóð­ar­innar sem er með lægstu tekj­urnar, alls um eitt hund­rað þús­und manns, um 72 millj­arða króna, eða 16,2 millj­arða króna minna en rík­asti hluti þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár