Landlæknir telur aldursgreiningar á tönnum samræmast siðareglum lækna

Hér á landi er not­ast við ald­urs­grein­ingar á tönnum til að skera úr um aldur fylgd­ar­lausra barna ef vafi leikur á um hvort við­kom­andi sé yngri en átján ára. Land­læknir segir að ald­urs­grein­ingar á tönnum séu í sam­ræmi við siða­reglur lækna.

Embætti Landlæknis
Embætti Land­læknis Mynd: Bára Huld Beck

Land­læknir telur að ald­urs­grein­ing á tönnum sam­ræm­ist siða­reglum lækna. Hún segir að ekki verði annað séð en að þeir sér­fræð­ingar sem sinni ald­urs­grein­ingum á tönnum vinni sam­kvæmt fag­legum kröfum og af virð­ingu við við­kom­andi ein­stak­ling. Land­læknir segir jafn­framt að rétt­ar­lækn­is­fræði­legar ald­urs­grein­ingar barna og ung­menna bygg­ist á alþjóð­legum, vís­inda­lega við­ur­kenndum og gagn­reyndum aðferðum. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, um ald­urs­grein­ingar og siða­reglur lækna.

Aldursgreiningar á tönnum notaðar hér á landi

Notast er við ald­urs­grein­ingar á tönnum hér á landi til að skera úr um aldur fylgd­ar­lausra barna ef vafi leikur á um hvort við­kom­andi sé eldri eða yngri en átján ára. Fram­kvæmdin hefur aftur á móti þótt umdeild en Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, Evr­ópu­ráðið og Rauði kross­inn hafa öll gagn­rýnt slíkar ald­urs­grein­ingar. Grein­ing­arnar hafa verið gagn­rýndar fyrir að fela í sér inn­grip og að nið­ur­stöður þeirra séu óáreið­an­legar og óná­kvæmar. Fylgd­ar­laus börn undir 18 ára aldri njóta mun meiri rétt­inda en hæl­is­leit­endur sem eru eldri en 18 ára. Þau eru sjálf­krafa metin í við­kvæmri stöðu og til dæmis má ekki vísa fylgd­ar­lausu barni úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna og fleiri sam­tök hafa talað fyrir heild­stæðu mati á aldri ungra hæl­is­leit­enda sem byggir ekki ein­ungis á lík­ams­rann­sóknum heldur ætti það fyrst og fremst að byggja á fag­legu mati barna­sál­fræð­inga og lækna, og taka þyrfti fullt til­lit til umhverfis- og menn­ing­ar­legra aðstæðna ung­menn­anna.

Sendi fyrirspurn um aldursgreiningar á þrjá ráðherra

Logi Ein­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sendi fyr­ir­spurn varð­andi ald­urs­grein­ingar á þrjá ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra. Í fyr­ir­spurn hans til heil­brigð­is­ráð­herra spyr Logi ráð­herra um hvort hún telji að fram­kvæmd ald­urs­grein­inga á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, þá sér­stak­lega tann­grein­ingu, sam­ræm­ist siða­reglum lækna. Í fyr­ir­spurn­inni er einnig spurt um hvort að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi tjáð sig um afstöðu sína til lík­am­legra ald­urs­grein­inga og hver hún væri ef svo væri. 

Í skrif­legu svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur, heil­brigð­is­ráð­herra, segir að ráð­herra hafi óskað eftir áliti land­læknis um hvort ald­urs­grein­ing á tönnum sam­ræm­ist lögum um heil­brigð­is­starfs­menn. Í umsögn Ölmu Dag­bjartar Möller, land­læknis, segir að þeir sér­fræð­ingar sem sinna ald­urs­grein­ingum á tönnum vinni sam­kvæmt fag­legum kröfum og af virð­ingu við við­kom­andi ein­stak­ling.

Hún segir jafn­framt að rétt­ar­lækn­is­fræði­legar ald­urs­grein­ingar barna og ung­menna bygg­ist á alþjóð­legum, vís­inda­lega við­ur­kenndum og gagn­reyndum aðferðum. Land­læknir bætir við að nákvæmni ald­urs­grein­inga á tönnum sé umtals­verð en ekki óskeikul, frekar en aðrar lækn­is­fræði­legar rann­sóknir. Í svari ráð­herra segir að öðru leyti sé ráð­herra ekki kunn­ugt um að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi tjáð sig um afstöðu sína til lík­am­legra ald­urs­grein­inga. [adspot]

Logi sendi einnig fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráð­herra þar sem ráð­herra var spurður hvort hún telji lík­am­legar ald­urs­grein­ingar sið­ferð­is­lega rétt­læt­an­legar eða nauð­syn­legar í núver­andi mynd og í sam­ræmi við barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Einnig er leit­ast eftir svörum um hversu mörgum umsækj­endum um alþjóð­lega vernd hefur verið hafnað á grund­velli tann­grein­inga hér á landi.

Í fyr­ir­spurn­inni til mennta og menn­ing­ar­ráð­herra snýr fyr­ir­spurnin að því hvort ráð­herra finnst ásætt­an­legt að opin­ber mennta­stofnun, tann­lækna­deild Háskóla Íslands, fram­kvæmi umdeildar ald­urs­grein­ingar á við­kvæmum hópi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd fyrir Útlend­inga­stofnun sem nýti síðar nið­ur­stöður grein­ing­ar­innar við úrskurði um alþjóð­lega vernd eða dval­ar­leyfi

Háskólasstarfsmenn og doktorsnemar hafa mótmælt tanngreiningum á hælisleitendum

Yfir hund­rað starfs­menn og dokt­or­snemar við Háskóla Íslands sendu frá sér yfir­lýs­ingu á síð­asta ári, þar sem tekin var afstaða gegn tann­grein­ingum á hæl­is­leit­endum sem nú fari fram innan Háskóla Íslands. Í sept­em­ber á síð­asta ári greindi Stundin frá því að Háskóli Íslands og Útlend­inga­stofnun ynnu að gerð þjón­ustu­samn­ings um ald­urs­grein­ingar á tönnum hæl­is­leit­enda. Hingað til hefur tann­lækna­deild HÍ fram­kvæmt tann­grein­ingar á fylgd­ar­lausum ung­mennum án þess að þjón­ustu­samn­ingur sé fyrir hendi.

Í yfir­lýs­ing­unum er bent á að tann­grein­ingar á hæl­is­leit­endum fari gegn vís­inda­siða­reglum skól­ans en þær kveða á um að rann­sak­endur skuli ekki skaða hags­muni þeirra sem til­heyra hópi í erf­iðri stöðu. Þá hafa þeir bent á sam­fé­lags­legt hlut­verk mennta­stofn­ana sem og mik­il­vægi þess að akademískar stofn­anir fram­kvæmi ekki aðgerðir lög­valds á borð við Útlend­inga­stofn­unar.

Í yfir­lýs­ing­unum var háskól­inn ein­dregið hvattur til að láta af samn­ings­gerð við Útlend­inga­stofnun um áfram­hald­andi tann­grein­ingar á aldri hæl­is­leit­enda innan veggja Háskóla Íslands. Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands og Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta, hafa einnig sent frá sér sam­bæri­legar yfir­lýs­ingar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár