Brexit-glundroðinn

Hvað þýðir það, að Bretar hafi sam­þykkt að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið? Það er ekki vitað, en eru mörg flókin álita­mál sem þarf að fara í gegnum. Alþjóða­vætt við­skipta­líf heims­ins, virð­ist horfa til Bret­lands, og spyrja hver séu næstu skref.

Pundið kostar nú 165 krónur, en fyrir tveimur við­skipta­dögum, nánar til­tekið á fimmtu­dag­inn í sið­ustu viku, þá kost­aði það um 180 krónur. Á föstu­dag­inn veikt­ist pundið gagn­vart íslensku krón­unni um 6,16 pró­sent, og í dag er veik­ingin um 2,6 pró­sent.

Ástæðan fyrir þessum snöggu og miklu breyt­ingum, hjá einu af okkar stærstu við­skipta­þjóðum, er rakin til Brexit kosn­ing­anna svo­nefndu, 23. júní, þar sem 52 pró­sent kjós­enda í Bretland kaus með því að Bretland færi úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), 48 pró­sent vildu að Bretland yrði áfram hluti af ESB. Afger­andi mik­ill munur var á við­horfum eftir aldri, en eldra fólk vildi frekar fara úr ESB en yngra fólkið vera áfram.

Óvissan

Fjár­festar hafa tekið nið­ur­stöð­unni illa, og það sem verra er: „það er ekk­ert plan,“ eins og það var orðað í umfjöllun Bloomberg. Fjár­festar vita ekki hvað tekur við, og svo virð­ist sem bresk stjórn­völd séu ekki með það á hreinu heldur. Samkvæmt sátt­mála ESB þá hafa þjóðir, sem ákveða að segja sig úr ESB, tvö ár til að fram­kvæma úrsögn­ina. Á þeim tíma eru samn­ingar aðild­ar­ríkj­anna við önnur ríki og heims­álfur, við­skipta­samn­ingar þar á meðal, ekki settir í upp­nám.

Þetta er ekki úrslita­at­riði í huga fjár­festa, sé mið tekið af því hvernig fjallað er um málin hér Vest­an­hafs. Það vantar skýr­ari skila­boð um hvað Brexit þýðir í reynd. Banda­ríkja­dalur hefur styrkst mikið gagn­vart pundi, frá því að nið­ur­staðan úr atkvæða­greiðsl­unni var ljós. Á tveimur við­skipta­dögum hefur staðan gjör­breyst. Nú fæst 1,3 pund fyrir hvern Banda­ríkja­dal, en fyrir atkvæð­tagreiðsl­una fékkst liða­lega 1,6 pund. Þetta eru miklar og djúpar sveiflur, og greini­legt að fjár­festar eru að leita „skjóls“ í Banda­ríkj­dal, og þá einkum og sér í lagi rík­is­skulda­bréfum.

Viðskiptasamningar haldi

Banda­rísk stjórn­völd hafa þegar gefið það út, að við­ræðum um við­skipta­samn­inga milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands muni hefj­ast fljótt, en öll kurl eru þó ekki komin til grafar ennþá. Pólitísk óvissa er það sem helst skelfir mark­að­ina. Samband Bret­lands við umheim­inn markast að miklu leyti af ESB aðild­inni og efna­hags­legum for­sendum sam­bands­ins, jafn­vel þó Bretland sé með eigin mynt og sjálf­stæða pen­inga­stefnu Eng­lands­banka. Alþjóð­legir fjár­festar hafa horft til þess að ákveðin festa sé fyrir hendi, með aðild Breta að ESB, und­an­farin 43 ár.

Boris Johnson, helsti tals­maður Leave-hreyf­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í London, hefur sagt að Bretland geti staðið traustum fótum utan ESB, og það muni verða raunin. Lítið hefur þó heyrst frá honum eftir atkvæða­greiðsl­una, nema þá almennt tal um að Bretar geti vel bjargað sér utan ESB. Í gær lét hann hafa eftir sér að pundið væri nú með „svip­aðan styrk“ og á árunum 2013 og 2014. Fjöl­miðlar hafa velt því fyrir sér hvað hann eigi við með þessum orðum, þar sem gengi gjald­miðla er borið saman aðra, og þá sagt hvort það sé að styrkja eða veikj­ast gagn­vart þeim. Johnson nefndi ekk­ert slíkt, og nán­ast hvernig sem á málin er litið, þá er veik­ing punds­ins gagn­var helstu við­skipta­myntum heims­ins, nær for­dæma­laust.

Miklir hagsmunir fyrir Íslands

Þó ekki sé vitað hvernig mál­inu verður lent, hvað efna­hag­spóli­tískt sam­band Bret­lands við umheim­inn varðar, þá liggja miklir hags­munir Íslands undir. Þegar hefur náðst sam­komu­lag milli EFTA-ríkj­anna um fyrstu við­brögð við Brexit-kosn­ing­unum, en ekki liggur fyrir enn hvernig teng­ing EFTA-rkíkj­anna við Bretland verður til fram­tíðar litið. Ekki er talið tíma­bært að bjóða Bretum aðild að EFTA strax, þár sem grein­ing þarf að fara fram og hags­munamt hvers og eins rík­is­ins einnig. Þá liggur fyrir að öll kurl eru ekki komin til grafar en í Bret­landi, og því ekki vitað enn hverjar for­sendur fyrir hugs­an­legri aðild Bret­lands að EFTA verða, eða geta mögu­lega orðið.

Það er mikið í húfi fyrir íslenskt atvinnu­líf. Útflutn­ingur á vörum og þjón­ustu til Bret­lands nam 120 millj­örðum í fyrra, og um 19 pró­sent af erlendum ferða­mönnum hefur komið frá Bret­landi. Það er rót­gróið við­skipta­land Íslands þegar kemur að sjáv­ar­út­vegi, og annar vöru­út­flutn­ingur til lands­ins hefur verið vax­andi.

Eitt þeirra flug­fé­laga sem hefur flutt marga ferða­menn til lands­ins, á vaxt­ar­árum í ferða­þjón­ust­unni und­an­farin ár, er Easy Jet. Það hefur lækkað mikið í verði, eins og mörg önnum félög í Bret­landi, en þegar þetta er skrifað hefur mark­aðsvirði þess lækkað um 22 pró­sent á tveimur við­skipta­dögum. Krefj­andi tími gæti beðið þess, haldi pundið áfram að veikj­ast gagn­var alþjóð­legum myntum.

En eins og Lilja Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, hefur ítrekað bent á, und­an­farna daga, þá munu íslensk stjórn­völd kapp­kosta að tryggja íslenska hags­muni, eftir því sem kostur er, og fylgj­ast grannt með því hvernig málin þró­ast. Hvernig það verður gert, nákvæm­lega, á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár