Skattaskjól skoðuð á fyrsta nefndarfundi eftir sumarfrí

Viðbrögð stjórn­valda við skattsvikum Íslend­inga og skatta­skjólum verða rædd á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á morgun. Starfs­hópur fjár­mála­ráð­herra skil­aði skýrslu um skatta­skjól í lok júní. Formaður nefnd­ar­innar hefur ekki séð skýrsl­una.

Ögmundur Jónasson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Ögmundur Jónasson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd kemur saman klukkan 15 á mið­viku­dag í fyrsta sinn eftir sum­ar­frí. Meðal dag­skrár­liða er rann­sókn á aflands­fé­lögum Íslend­inga og skattaund­anskotum. Ögmundur Jónasson, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Vinstri grænna, segir að rík­is­stjórnin hafi gefið það út að farið verði í gang með könnun á þessum málum.

„Við ætlum að sjá hvað hefur gerst hjá þeim á þessum vett­vangi. En það verða engar ákvarð­anir teknar á þessum fundi,“ segir Ögmundur við Kjarnann.

Þá verði einnig farið yfir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu VG, sem lögð var fram í apríl í kjöl­far umfjöll­unar fjöl­miðla um Panama­skjölin, um að rann­sókn verði gerð á fjölda og starf­semi félaga sem tengj­ast íslenskum aðilum, ein­stak­lingum og lög­að­ilum í skatta­skjölum. Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, sagð­ist í kjöl­farið von­ast til þess að til­lagan næði fram að ganga.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði starfs­hóp í lok apríl sem átti að koma með til­lögur að breyt­ingum á lögum, reglu­gerðum eða verk­lags­reglum sem saman myndi aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda gegn skattsvikum og nýt­ingu skatta­skjóla. 

Meðal þeirra sem áttu sæti í hópnum voru Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri og Maríanna Jón­as­dóttir, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, en hún var jafn­framt for­maður hóps­ins. Skýrslu starfs­hóps­ins var skilað til Bjarna 30. júní en hún hefur ekki verið gerð opin­ber. Ögmundur hefur sjálfur ekki séð skýrsl­una né heyrt neitt um hana.

Á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar koma gestir frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu til að fara yfir stöð­una. Um morg­un­inn verða einnig fundir hjá fjár­laga­nefnd, umhverfis- og sam­göngu­nefnd og vel­ferð­ar­nefnd. Seinni­part­inn funda einnig utan­rík­is­mála­nefnd og atvinnu­vega­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár