Býst við að 19 þúsund manns flytji hingað á næstu fimm árum

Mann­fjölda­spá Hagstofu gerir ráð fyrir að fjöldi aðfluttra umfram brott­fluttra á næstu fimm árum muni sam­svara íbúa­fjölda Akur­eyrar.

Alls er búist við því að Íslend­ingum muni fjölga um 32 þús­und manns á næstu fimm árum, aðal­lega vegna mik­ils fjölda fólks sem flytur til lands­ins. Alls gætu tæp­lega 19 þús­und manns flutt til lands­ins á tíma­bil­inu 2021-2026, umfram þá sem flytja frá land­inu.

Þetta kemur fram í mið­spá Hagstofu um þróun mann­fjölda, sem var upp­færð nýlega. Samkvæmt henni mun mann­fjöld­inn inn­an­lands einnig vaxa með stöð­ugum hætti, en búist er við að um 2.500 fleiri fæð­ist hér heldur en lát­ist á hverju ári. Meiri fjölgun er þó að vænta vegna aðflutn­ings umfram brott­flutn­ings, sem búist er við að nemi um fjórum þús­undum á ári hverju fram til árs­ins 2026.

Mikill munur er þó á efri og neðri mörkum mann­fjölda­spár Hagstofu til næstu ára. Í lág­spánni er búist við að tæp­lega 5.800 fleiri flytji hingað til lands heldur en frá því á næstu fimm árum, á meðan háspáin gerir ráð fyrir inn­flutn­ingi allt að 35 þús­und manna.

Á árunum 2026-2030 gerir Hagstofa svo ráð fyrir nokkrum fólks­flótta, en þar er búist við því að 4.700 fleiri flytji frá land­inu heldur en til þess.

Aldrei hafa aðfluttir umfram brott­fluttra verið jafn­margir en síð­asta ára­tug, en á tíma­bil­inu 2010-2019 voru þeir rúm­lega 24 þús­und tals­ins. Til sam­an­burðar fluttu rúm­lega 13 þús­und fleiri til lands­ins en frá því á tíma­bil­inu 2000-2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fólksfjöldi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár