Annar frændinn úr Making a Murderer náðaður

Steven Avery situr enn inni, en frænda hans verður sleppt úr fangelsi innan 90 daga.
Steven Avery situr enn inni, en frænda hans verður sleppt úr fang­elsi innan 90 daga.

Brendan Dassey, annar mann­anna sem fjallað var um í banda­rísku þátta­röð­inni Making a Murderer, var sýkn­aður af ákæru um morð og kyn­ferð­is­brot fyrir dóm­stólum í gær. Samkvæmt ákvörðun dóm­stóla verður honum sleppt úr fang­elsi innan 90 daga, er fram kemur í New York Times.

Þætt­irnir fjöll­uðu mest megnis um frænda Dassey, Steven Avery, sem var dæmdur fyrir morð og nauðgun árið 2007 en Dassey var dæmdur með­sekur. Frænd­urnir voru dæmdir fyrir að myrða og nauðga Teresu Halback, 25 ára ljós­mynd­ara, og fengu lífs­tíð­ar­fang­els­is­dóm. Þátta­röðin, Making a Murderer, fjall­aði um rann­sókn máls­ins og varp­aði ljósi á ýmsa þætti sem bentu til þess að veru­legir van­kantar hefðu verið til staðar hjá lög­regl­unni. Þeir vöktu gríð­ar­lega athygli og ráku sögu Avery sem var dæmdur í fang­elsi fyr­ir­ kyn­ferð­is­brot árið 1985. Hann sat inni í 18 ár en var sleppt árið 2003 eftir að DNA-­sýni sýndi fram á sak­leysi hans. Avery fór í kjöl­farið í mál við sýsl­una þar sem hann var dæmdur og krafð­ist 36 milljón dala í miska­bæt­ur.

Í nóv­em­ber 2005 var hann síðan ákærður fyrir morð og hef­ur ­setið inni síð­an, ásamt Dassy.

Í byrjun árs­ins höfðu yfir hund­rað þús­und manns skrifað und­ir­ und­ir­skrift­ar­lista á síð­unni Change.org og fóru fram á að frænd­urnir yrðu náð­aðir af for­seta Banda­ríkj­anna. Auk þess hafa hátt í 20 þús­und manns ­skrifað undir form­lega beiðni til Hvíta húss­ins þar sem farið er fram á hið ­sama.

Dómurinn í gær hafði engin áhrif á Avery, en ekki er ljóst hvort mál hans verði opnað að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár