Réttarstaða brotaþola bætt þó biðtíminn sé enn „óásættanlegur“

Nýsam­þykktar breyt­ingar á lögum um með­ferð saka­mála og lögum um fulln­ustu refs­inga munu ef til vill auka til­trú þolenda á rétt­ar­kerf­inu að sögn tals­konu Stíga­móta en til að gera kerfið „boð­legt fyrir þolendur“ þarf að stytta máls­með­ferða­tíma veru­lega.

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir er talskona Stígamóta.
Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir er tals­kona Stíga­móta. Mynd: Aðsend

Tals­verðar breyt­ingar hafa orðið á rétt­ar­stöðu brota­þola í kyn­ferð­is­brota­málum eftir að lögum um með­ferð saka­mála og lögum um fulln­ustu refs­inga var breytt undir lok nýlok­ins þing­vetrar. Vonir eru bundnar við að þetta muni færa brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis rétt­lát­ari máls­með­ferð í gegnum rétt­ar­kerfið, að sögn Stein­unnar Gyðu- og Guð­jóns­dóttur, tals­konu Stíga­móta, en hún segir í sam­tali við Kjarnann að sam­tökin hefðu engu að síður viljað sjá fleiri atriði rata inn í nýsam­þykkt laga­breyt­inga­frum­varp.

Frum­varpið sem um ræðir var lagt fram af Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra í mars og sam­þykkt á loka­metrum þings­ins, um miðjan mánuð. Með breyt­ing­unum sem gerðar eru á lögum um með­ferð saka­mála og lögum um fulln­ustu refs­inga er leit­ast við að bæta rétt­ar­stöðu brota­þola, fatl­aðs fólks og aðstand­enda.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að það hafi tekið miklum breyt­ingum frá eldra frum­varpi í kjöl­far umsagna. „Tekið var til­lit til umsagna um rétt brota­þola til aðgangs að gögnum á rann­sókn­ar­stigi, til að vera við­staddur lokað þing­hald, til að leggja spurn­ingar milli­liða­laust fyrir skýrslu­gjafa við með­ferð máls fyrir dómi og leggja þar fram sönn­un­ar­gögn, til að ávarpa dóm í lok aðal­með­ferðar sem og um auk­inn rétt brota­þola til upp­lýs­inga um gæslu­varð­hald, áfrýjun og til­högun afplán­unar dóm­fellda.“

Hafa kallað eftir því að þolendur fái aðild að málum sínum

Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, segir að með nýju frum­varpi hafi orðið tals­verðar breyt­ingar á rétt­ar­stöðu brota­þola, líkt og áður segir. Hún bendir á að ekki sé búið að tryggja öll þau rétt­indi þolenda kyn­ferð­is­of­beldis sem sam­tökin hafa kallað eftir, til að mynda að þolendur fái aðild að málum sínum. [adspot]

„Það hefur auð­vitað skap­ast tals­verð umræða um það að þolendur ofbeldis eigi að fá aðild að málum sínum í rétt­ar­kerf­inu en það er almennt ekki þannig í saka­málum. Venju­lega er þetta ríkið gegn brota­mann­inum. Í ljósi þess að ofbeld­is­mál eru yfir­leitt mjög sér­stök mál, yfir­leitt stendur brota­maður brota­þola nærri og brota­þoli hefur mjög ríka hags­muni af því að rann­sóknin fari vel fram. Því hefur orðið þessi krafa um að brota­þoli fái aðild. Það gerð­ist ekki í þess­ari laga­setn­ingu,“ segir Steinunn.

Lögin tryggja bættan aðgang að upplýsingum

Með nýju lög­unum sé ríkið þó að reyna að tryggja brota­þola sam­bæri­leg rétt­indi og fáist með aðild að máli, upp að vissu marki. „Þarna fær brota­þoli rétt­indi í gegnum rétt­ar­gæslu­mann­inn sinn til þess að fá nán­ari upp­lýs­ingar um mál á rann­sókn­ar­stigi og það finnst okkur mjög mik­il­vægt,“ segir Steinunn og bætir því við að í sumum málum sem felld hafi verið niður hefðu brota­þolar getað lagt fram frek­ari sönn­un­ar­gögn ef þeir hefðu haft sama aðgang að upp­lýs­ingum og nýju lögin tryggja.

Brota­þoli fær nú rétt til þess að bæði sitja í dóm­sal og að leggja fram spurn­ingar í gegnum rétt­ar­gæslu­mann en áður var það háð sam­þykki sak­born­ings hvort þol­andi fengi að að sitja í dóm­sal. Þetta breytir miklu að sögn Stein­unnar: „Hingað til hefur þessi rétt­ar­gæslu­maður ein­göngu verið þarna til þess að flytja skaða­bóta­kröfu brota­þola. Það hefur verið hans eina hlut­verk. Núna fær brota­þoli rödd inn í saka­málið með þessu. Þannig ef að brota­þol­inn upp­lifir ein­hvern veg­inn að sak­sókn­ar­inn sé ekki að spyrja réttu spurn­ing­anna eða sé ekki að fá allt fram þá getur brota­þol­inn lagt fram spurn­ingar í gegnum sinn rétt­ar­gæslu­mann.“

Jákvæðar breytingar en langur biðtími „kerfislægur vandi“

Spurð að því hvort að þolendur muni eiga auð­veld­ara með að sækja rétt sinn í kjöl­far laga­breyt­ing­anna segir Steinunn að þær auki ef til vill til­trú brota­þola á kerf­inu að ein­hverju leyti, sér­stak­lega heim­ildin sem tryggir betri aðgang þolenda að upp­lýs­ingum um mál sín. „Það sem brota­þolar hafa verið að upp­lifa er að þeir fara og leggja fram kæru og svo upp­lifa þeir það að allt vald sé hrifsað af þeim í kjöl­farið. Þá sé þetta ekki lengur þeirra mál, heldur mál rík­is­valds­ins gegn sak­born­ingi og það eina sem þau eiga að gera er að koma með ein­hvern fram­burð. Það er ömur­leg upp­lifun í kjöl­far þess að hafa verið beitt ofbeldi, þar sem allt vald er tekið af manni, þá vill maður einmitt fá ein­hverja vald­efl­ingu út úr því að fara og kæra brot. Það hefur ekki verið staðan hingað til.“

Steinunn segir að breyt­ing­arnar, sem séu af hinu góða, muni þegar upp er staðið að öllum lík­indum ekki hafa mikil áhrif á upp­lifun brota­þola af kerf­inu á meðan máls­með­ferð­ar­tím­inn er eins langur og raun ber vitni. „Á meðan staðan er enn þá sú að þú ferð og kærir nauðgun og sak­born­ingur er kall­aður inn í skýrslu­töku sex til níu mán­uðum seinna þá breytir það engu hvort þú fáir ein­hverjar upp­lýs­ingar á þessu tíma­bili. Þessi bið­tími er óásætt­an­legur. Þetta eru jákvæðar breyt­ingar en það er bara annar kerf­is­lægur vandi sem þarf að laga til þess að gera þetta kerfi boð­legt fyrir þolendur,“ segir Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir tals­kona Stíga­móta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár