Mynd: EPA

Á að leyfa risunum að verða til?

Alþjóð­legt við­skiptaum­hverfi er flókið fyr­ir­bæri, og árekstrar vegna álita­mála á sviði sam­keppn­is­réttar hafa verið tíðir, ekki síst á Íslandi, und­an­farin miss­erin. Heil­brigð sam­keppni er mik­il­vægt mál fyrir almenn­ing. En hvernig er hún best tryggð?

Sam­keppni er flókið fyr­ir­bæri. Ef hún er heil­brigð - í þeim skiln­ingi að hún er í takt við lög og reglur og ýtir undir betri þjón­ustu við almenn­ing og hag­ræði - þá er hún hreyfi­afl til góðs í sam­fé­lögum. Verð á vörum lækkar í virkri sam­keppni, fyr­ir­tæki eru undir meiri pressu að sinna gæða­málum betur og úrvalið sem almenn­ingur getur valið úr verður meira og fjöl­breytt­ara, til ein­föld­unar sagt.

Lög og reglur á sviði sam­keppn­is­réttar eru að margra mati frum­skógur sem erfitt er að rata um, og hafa ekki síst stjórn­endur í íslensku atvinnu­lífi kvartað undan Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu íslenska, þegar kemur að rann­sóknum þess og nið­ur­stöðum.

En það á einnig við um eft­ir­lit í öðrum löndum - og ekki síst þegar er verið að draga lín­urnar í stórum sam­r­unum eða við­skiptum, þar sem loka­nið­ur­staða fer inn á borð til fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins til höfn­unar eða sam­þykkis.

Í vor ákváðu sam­keppn­is­eft­ir­litin á Norð­ur­lönd­unum að kynna sam­eig­in­lega stefnu sína í með­ferð og úrlausn sam­runa­mála. Sú stefna hefur nú verið sett fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu for­stjóra sam­keppn­is­eft­ir­lit­anna í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finn­landi og Íslandi. Er yfir­lýs­ingin kynnt á heima­síðum eft­ir­lit­anna í dag, og í við­skipta­tíma­ritum á Norð­ur­lönd­unum og í Evrópu.

Með þessu eru nor­rænu sam­keppn­is­eft­ir­litin að leggja sitt af mörkum í umræðu um sam­runa fyr­ir­tækja sem á sér stað víða í Evrópu nú um stundir.

Ógilding samruna leiðir til titrings

Tilefnið er einkum ógild­ing fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins á sam­runa fyr­ir­tækj­anna Siemens og Alstom, en bæði fyr­ir­tækin eru mik­il­vægir fram­leið­endur járn­braut­ar­lesta og bún­aðar á því sviði.

Taldi fram­kvæmda­stjórnin að sam­run­inn hefði skaðað sam­keppni og leitt til hærra verðs, við­skipta­vinum og neyt­endum til tjóns. Óhætt er að segja að þessu hafi verið illa tekið hjá stjórn­völdum heima­landa þess­ara risa á sviði inn­viða, það er í Frakk­landi og Þýska­landi.

Nið­ur­staðan olli miklum alþjóða­póli­tískum titr­ingi og hafa stjórn­völd í lönd­unum tveimur brugð­ist við með því að leggja fram umfangs­miklar breyt­inga­til­lögur á reglum um sam­runa fyr­ir­tækja, en meg­in­rök­semdin er sú að með því að heim­ila stóra sam­runa innan Evrópu þá verði fyr­ir­tækin betur í stakk búin til að bregð­ast við vax­andi sam­keppni frá stórum fyr­ir­tækjum í Kína, Banda­ríkj­unum og víðar.

Þessi áhersla á að heim­ila sam­runa hjá fyr­ir­tækj­arisum innan Evrópu býður hætt­unni heim, að mati sam­keppn­is­eft­ir­lita á Norð­ur­lönd­unum.

Þó um margt ólíkt sé, þá hefur að und­an­förnu sést glitta í svip­aða rök­ræðu á Íslandi þar sem for­svars­menn fyr­ir­tækja, sem jafn­vel eru í mark­aðs­ráð­andi stöðu á Íslandi, tala fyrir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið taki meira til­lit til alþjóð­legrar sam­keppni í ákvörð­unum sínum.

Bæði Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð hafa látið sig þessi mál varða og hafa talað opin­skátt um mik­il­vægi þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið breyti um stefnu og leyfi sam­r­unum að eiga sér stað. Þar er meg­in­rök­semdin sú að íslensk fyr­ir­tæki séu að keppa við erlenda keppi­nauta, sem njóti stærð­ar­hag­kvæmni og eigi auð­veld­ara með að koma sér inn á ný mark­aðs­svæði, eins og hinn örsmáa íslenska markað.

Hafa Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð talað fyrir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið leyfi sam­runa og stuðli þannig að hag­ræð­ingu.

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Mynd: Kjarninn.
For­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Kjarninn.

Vilja meiri samræmingu

Davíð Þor­láks­son, for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins, segir að meg­in­krafa sem SA hafi talað fyrir sé að reglu­verkið sé sam­ræmt við það sem gengur og ger­ist alþjóð­lega. „Að vissu leyti er íslenska lög­gjöfin strang­ari en á alþjóða­mörk­uðum og í Evrópu. Það hefur verið mat okkar að það sé afar mik­il­vægt fyrir íslenskt við­skipta­líf, og ekki síst upp­bygg­ingu á sam­keppn­is­hæfni þess til fram­tíðar litið, að lög og reglur á þegar kemur að sam­keppni séu í takt við þróun í við­skipta­líf­inu og taki til­lit til þeirra breyt­inga sem hafa orðið á sam­keppn­isum­hverf­inu, meðal ann­ars vegna tækni­breyt­inga.”

Davíð seg­ist binda miklar vonir við að end­ur­skðun sam­keppn­islaga, sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er með á sinni könnu, muni skila betra reglu­verki sem styðji við heil­brigða sam­keppni en gefi um leið mögu­leika á eðli­legri hag­ræð­ingu og þróun til að takast á við alþjóð­lega sam­keppni. „Nú er tæki­færi til að auð­velda sam­runa og hag­ræð­ingu,” segir Davíð.

Aðspurður, hvort ekki geti falist hættur í því að leyfa fáum risum að verða til, á svona litlum mark­aði eins og sá Íslandi er - með aðeins 209 þús­und ein­stak­linga vinnu­markað - segir hann að vissu­lega þurfi að passa upp á það.

Hins vegar verði að taka til­lit til alþjóð­legs sam­keppn­isum­hverfis. Nefnir hann sem dæmi flug­iðnað, en Davíð starf­aði áður hjá Icelandair, sem aðal­lög­fræð­ingur. „Þar er stundum talað eins og það sé ekki alþjóð­legt umhverfi, þegar kemur að sam­keppni. Sam­keppnin er um flug til margra áfanga­staða, frá mörgum alþjóða­legum flug­völlum, og mörg alþjóð­leg flug­fé­lög eru marg­falt stærri en íslensk flug­fé­lög, og geta leyft sér að berj­ast á þeim for­sendum á sam­keppn­is­mörk­uðum - með mik­illi verð­lækkun jafn­vel, til að verja sína hags­muni. Þetta er umhverfið sem fyr­ir­tæki á Íslandi eru að keppa í. Það má líka taka dæmi af smá­sölu og hvernig hún er í alþjóð­legu sam­keppn­isum­hverfi, í vax­andi mæli, vegna vax­andi net­versl­unar og almennt alþjóð­legrar sam­keppni.”

Davíð bendir enn fremur á að sam­keppn­is­lög­gjöfin sé um margt flókin, þar sem hún skarist ekki síst inn á svið lög­fræði og hag­fræði, þegar kemur að því að meta for­sendur fyrir ákvörð­unum á hverjum tíma.

Reynir á skilvirkt eftirlit

For­stjórar sam­keppn­is­eft­ir­lita á Norð­ur­lönd­unum, Jakob Hald, í Danmörku, Leivo Kirsi, í Finn­landi, Rikard Jermsten, í Svíþjóð, Páll Gunnar Pálsson, hér á landi, og Lars Sørgard í Noregi, hafa nú sam­eig­in­lega talað um mik­il­vægi þess, að draga skýrar línur í því hvernig eigi að örva sam­keppni á heima­mörk­uðum

En eins og oft þegar kemur að sam­keppni þá eru við­fangs­efnin flókin, og hvert til­vik sem eft­ir­lits­stofn­anir láta sig varða, hefur sitt sér­kenni. Þrátt fyrir að hags­muna­sam­tök fyr­ir­tæki meti það sem svo, að eft­ir­lits­stofn­anir séu að hamla eðli­legri þróun - til dæmis með því að hamla sam­r­unum fyr­ir­tækja - þá er það skýr afstaða eft­ir­lits­stofn­anna á Norð­ur­lönd­unum að sam­keppni verði helst varin með því að tryggja að hún sé virk, neyt­endum til heilla.

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að það geti leitt til mik­illar óheilla­þró­unar, ef of mik­ill slaki er gef­inn við sam­keppn­is­eft­ir­liti. Mik­il­vægt sé að horfa til þess hvaða atriði það séu, sem í raun myndi grunn­inn að EES-svæð­inu sem sam­eig­in­legu mark­aðs­svæði aðild­ar­ríkj­anna og hvernig það geti virkað sem best.

Þá segir hann að nú á 25 ára afmæli EES-samn­ing­ins sé mik­il­vægt að muna, að það sé mik­il­vægt að halda í ávinn­ing­inn af EES-sam­starf­inu, með því að halda við sam­keppni. Það sé ekki eft­ir­sókn­ar­vert að búa til fákeppn­isum­hverfi, jafn­vel inn á EES-svæð­inu sjálfu, og eft­ir­litin í hverju landi hafi mik­il­vægu hlut­verki að gegna við að við­halda sam­keppni og fylgj­ast grannt með þróun mála. „Það er einnig mat nor­rænu sam­keppn­is­eft­ir­lit­anna að til­slökun í sam­runa­reglum á Evrópska efna­hags­svæð­inu myndi koma verst við smærri löndin í Evrópu, enda myndu stærri fyr­ir­tæki stærstu land­anna einkum njóta ábatans. Það er því ekki að undra að ráð­herrar rík­is­stjórna Norð­ur­land­anna sem eru aðilar að Evr­ópu­sam­bands­ins, eru á meðal þeirra sem hafa talað gegn hug­myndum franskra og þýskra stjórn­valda um til­slökun í sam­runa­eft­ir­liti. Um þessar mundir er haldið upp á ald­ar­fjórð­ungs afmæli EES-samn­ings­ins. Íslend­ingar hafa notið þess að með EES-samn­ingnum voru teknar upp sam­bæri­legar sam­keppn­is­reglur og gilda ann­ars staðar á Evrópska efna­hag­svæð­inu. Þetta felur m.a. í sér að Sam­keppn­is­eft­ir­litið beitir sam­bæri­legum aðferðum og leggur sam­bæri­legt mat á sam­runa fyr­ir­tækja og evr­ópsk sam­keppn­is­eft­ir­lit gera. Þá nýtur Sam­keppn­is­eft­ir­litið þess að taka þátt í öfl­ugu sam­starfi nor­rænna sam­keppn­is­yf­ir­valda. Allt þetta stuðlar að aukn­inni sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs.”

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, er með endurskoðun samkeppnislaga á sínu borði, eins og margt annað. Mynd: Bára.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, er með end­ur­skoðun sam­keppn­islaga á sínu borði, eins og margt annað. Mynd: Bára.

Meiri samkeppni, ekki minni

Fjörutíu hag­fræð­ingar innan háskóla í Evrópu, þar á meðal Christos Genakos við Cambridge háskóla, skrif­uðu á dög­unum sam­eig­in­lega grein þar sem minnt var á mik­il­vægi sam­keppn­innar, ekki síst á tímum hins alþjóða­vædda heims þar sem landamæra­leysi ein­kennir við­skipti.

Í grein­inni eru færð rök fyrir því, að nú sé mik­il­vægt að stíga skref til að efla sam­keppni en ekki draga úr henni, t.d. með því að sam­þykkja sam­runa og sífellt færri risa á ákveðnum sviðum.

Er sú rök­semd sögð veik­burða, í grein­inni, og er frekar litið til þess að þau fyr­ir­tæki sem nái fót­festu í oft harðri sam­keppni, séu lík­legri til að vaxa og dafna á heil­brigðan hátt - almenn­ingi til heilla. Er sam­runi Siemens og Alstom nefndur sem dæmi um sam­runa sem mögu­lega geti leitt til meiri hagn­aðar fyrir hlut­hafa, en hann geti líka leitt til hærra verðs fyrir neyt­endur og einnig erf­ið­ari inn­göngu fyrir ný fyr­ir­tæki, þar sem þau ná ekki að þróa sínar vörur og efla þær, vegna yfir­burða­stöðu ris­ans sem hefði orðið til.

Er meðal ann­ars sagt að það sé ekki æski­legt að búa til fá evr­ópska risa, á ákveðnum sviðum. Frekar sé æski­legt að standa vörð um sam­keppn­ina, og hugsa um mik­il­vægi minni fyr­ir­tækja líka, sem séu oftar en ekki að vinna í vöru­þróun og nýsköpun sem stærri fyr­ir­tækin þurfi að keppa við. Með því að búa til evr­ópska risa þá sé hættan á því að það dragi tenn­urnar úr nýsköpun, og þar geta þau ríki sem hafa átt erf­ið­ast upp­dráttar af ýmsum ástæðum - meðal ann­ars þau sem eru ein­angruð, t.d. Ísland - lent í því að upp­lifa fábrotn­ari tæki­færi til vaxtar og vöru­þró­unar, fyrir inn­lend fyr­ir­tæki.

„Evrópa þarf fleiri skil­virk, sam­keppn­is­hæf og nýsköp­un­ar­drifin fyr­ir­tæki. Með því að heim­ila sam­runa og búa til fáa evr­ópska risa, þá yrði unnið gegn því og farið í öfuga átt,” segir í loka­orðum hag­fræð­ing­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár