Flokkarnir lýsa andúð á óhróðri í kosningabaráttu

Fram­kvæmda­stjórar allra flokka á Alþingi hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau ásetja sér að vinna gegn óhróðri og und­ir­róð­urs­starf­semi í kosn­inga­bar­áttu.

Fram­kvæmda­stjórar allra flokka sem sæti eiga í nefnd for­sæt­is­ráð­herra um fjár­mál stjórn­mála­flokka, hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau lýsa andúð á óhróðri og und­ir­róð­urs­starf­semi í kosn­inga­bar­áttu og ásetja sér að vinna gegn slíku.

„Kosn­inga­bar­átta í aðdrag­anda kosn­inga er lyk­il­þáttur í lýð­ræð­is­legri stjórn­skipan og mik­il­vægt að hún sé mál­efna­leg og reglum sam­kvæm svo að kjós­endur geti tekið upp­lýsta ákvörðun. Nafnlaus óhróður eða undir fölsku flaggi á ekki að líð­ast. Við fram­kvæmda­stjórar eða full­trúar flokk­anna átta sem sæti eiga þingi, erum sam­mála um að girða þurfi fyrir að áróður og óhróður, sem eng­inn veit hver hefur í frammi eða kostar, birt­ist um alla sam­fé­lags- fjöl­miðla- og mynd­banda­veitur, án þess að hægt sé að kalla neinn til ábyrgðar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þau segja kosn­inga­bar­áttu marg­slungið sam­tal þjóð­ar­innar og þar eigi stjórn­mála­flokk­arnir alls ekki að vera ein­ráðir. Lög um hvernig kosn­inga­bar­átta sé rekin og fjár­mögnuð þurfi því að ná yfir alla sem heyja slíka bar­áttu, ekki aðeins flokk­ana sjálfa, enda séu lögin í sam­ræmi við tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði og góða lýð­ræð­is­venju. „Það er mark­mið okkar að finna leiðir í þeirri vinnu sem við eigum fyrir höndum til að auka gagn­sæi og ábyrgð allra sem vilja hafa áhrif á kosn­ingar.“

Þau segja það von sína að bar­átta flokk­anna fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar verði sönn, gegnsæ og mál­efna­leg og að öll fram­boð taki stöðu með því mark­miði.

Undir yfir­lýs­ing­una rita:

Björg Eva Erlends­dóttir, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Vinstri grænna, Þor­gerður Jóhanns­dóttir, skrif­stofu­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar, Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar, Hólm­fríður Þór­is­dóttir, full­trúi Mið­flokks­ins, Erla Hlyns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata, Helgi Haukur Hauksson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sóknar, Magnús Þór Haf­steins­son, full­trúi Flokks fólks­ins og Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár