Hitamet staðfest á einum kaldasta stað jarðar

Hæsti hiti: 38°C. Lægsti hiti: -67,8°C. Mismunur: 105,8 gráður. Norð­ur­slóðir eru að hlýna þrisvar sinnum hraðar en önnur svæði í heim­inum. Hlýnunin er að eiga sér stað mörgum ára­tugum fyrr en spár gerðu ráð fyrir.

Kortið sýnir útbreiðslu hita í hluta Síberíu 20. júní.
Kortið sýnir útbreiðslu hita í hluta Síberíu 20. júní. Mynd: Skjáskot

Vorið var óvenju­legt í Síberíu. Það var vet­ur­inn reyndar líka. Í bænum Verk­hoyansk sýndu hita­mælar 38 gráðu hita þann 20. júní. Þessu áttu margir bágt með að trúa - enda bær­inn aðeins tíu kíló­metra sunnan við heim­skauts­baug og svæðið almennt með þeim köld­ustu í víðri ver­öld. 

Tíðindin, sem þá voru óstað­fest röt­uðu í heims­frétt­irnar. Og nú hefur rúss­neska veð­ur­stofan yfir­farið sín gögn og nið­ur­staðan er þessi: Hitinn fór vissu­lega upp í 38°C Verk­hoyansk þann 20. júní. Þar með var slegið hita­met - en ekki aðeins í þessum til­tekna bæ. Aldrei fyrr hefur svo hátt hita­stig mælst svo norð­an­lega á norð­ur­slóðum.

Þegar hita­mælar sýndu þessa tölu þennan til­tekna dag var ekki endi­lega efast um að þeir væru að sýna rétta nið­ur­stöðu. Hins vegar er talan það há að yfir­fara þurfti nið­ur­stöð­urnar að beiðni Alþjóð­legu veð­ur­stofn­un­ar­innar.

Fyrra hita­met var stað­fest 25. júlí árið 1988. Hita­mæl­ingar hafa verið gerðar í Verk­hoyansk allt frá árinu 1885. Samkvæmt þeim gögnum er með­al­hiti í lok júní um 20°C.

Að vetri til mælist frostið á þessum slóðum oft milli 40-50 stig. Mest hefur frostið í Verk­hoyansk mælst 67,8 stig. Það gerð­ist í febr­úar árið 1892.

Breyti­leik­inn á milli þess­ara tveggja meta, 38 stiga hita ann­ars vegar og 67,8 stiga frosts hins vegar, er hvorki meira né minna en 105,8 gráður og að því er fram kemur í sam­an­tekt veð­ur­frétta­stof­unnar Weather.com þá er þetta lík­lega mesti munur sem um getur í mæli­gögnum sem liggja fyrir í heim­inum.

Júní var ein­stak­lega heitur í Síberíu. Aðeins nokkrum dögum eftir að metið féll í Verk­hoyansk mæld­ist 34,3 stiga hiti í bænum Ust'-Olenek sem er um 640 kíló­metrum norðan við heim­skauts­baug. Talið er að þetta sé hæsti hiti sem mælst hefur svo norð­an­lega frá upp­hafi mæl­inga. Með­al­hit­inn þar er yfir­leitt í kringum 10-12 gráður á þessum árs­tíma.

Skýr­ing­una á hita­bylgj­unni má rekja til háþrýsti­svæðis í háloft­unum sem kom sér fyrir yfir Síberíu um miðjan júní. Þessi þaul­sætna hæð hefur komið í veg fyrir að kald­ara loft frá norð­ur­strönd Rúss­lands fari suður á bóg­inn.

En það er ekki bara sum­arið sem hefur verið óvenju­lega hlýtt. Hitinn í Rúss­landi í vetur mæld­ist yfir með­al­tali síð­ustu ára og reyndar er það svo að tíma­bilið frá jan­úar til maí í ár er það heitasta frá upp­hafi, 1,9°C yfir sama tíma­bili frá árinu 2016 sem var þar til nú það heitasta.

Sér­fræð­ingar við jarð­vís­inda­stofnun Berkley-háskóla segja að hvergi ann­ars staðar í heim­inum í ár hafi veðrið verið óvenju­legra en í Rúss­landi.

Þetta hefur orðið til þess að skóg­ar­eldar hafa geisað í land­inu frá því um miðjan apríl og þar sem loftið í sumar hefur verið þurrt halda þeir áfram að brenna.

Sér­fræð­ingar í lofts­lags­málum hafa bent á að spár um hlýnun vegna lofts­lags­breyt­inga hafi gert ráð fyrir hækk­andi hita á þessum slóðum en að það sem veki ugg sé að breyt­ing­arnar virð­ist vera að sýna sig ára­tugum fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Meðal þeirra sem hefur tjáð sig um málið er veð­ur­fræð­ing­ur­inn Jeff Ber­ar­delli, sem hefur verið álits­gjafi í fjöl­miðlum um lofts­lags­breyt­ingar um hríð.

Gavin Schmidt, sér­fræð­ingur í lofts­lags­fræðum hjá NASA, segir að svo virð­ist sem að norð­ur­slóðir séu að hlýna þrisvar sinnum hraðar en aðrir staðir á jörð­inni.

Í nýrri rann­sókn á forn­lofts­lagi, sem birt var í vís­inda­tíma­rit­inu Nature, er nið­ur­staðan sú að hita­stig jarðar í dag sé heit­ara en það hefur verið í að minnsta kosti 12 þús­und ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár