Forsetadeilur í Gambíu: Einræðisherrann í útlegð og nýkjörinn forseti tekur við

Adama Barrow var á fimmtu­dag svar­inn inn í emb­ættið í nágranna­land­inu Senegal en Yahya Jammeh hefur neitað að víkja úr emb­ætti. Hermenn frá vestur-afrískum ríkjum mar­seruði inn í Gambíu til að þrýsta á hann að víkja. Jammeh lét undan þrýst­ingi í nótt.

Yahya Jammeh í opinberri heimsókn á Filippseyjum. Jammeh yfirgaf Gambíu í nótt en óvíst er hvert hann hélt í útlegð sína. Tveggja áratuga harðstjórn hans er því lokið.
Yahya Jammeh í opin­berri heim­sókn á Fil­ipps­eyjum. Jammeh yfir­gaf Gambíu í nótt en óvíst er hvert hann hélt í útlegð sína. Tveggja ára­tuga harð­stjórn hans er því lokið. Mynd: EPA

Fast­eigna­sal­inn og fyrr­ver­andi örygg­is­vörð­ur­inn í Argos-versl­un­ar­keðj­unni í London, Adama Barrow, vann óvæntan sigur í for­seta­kosn­ingum í Gambíu 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar hann hlaut 45,5% atkvæða gegn 36,7% and­stæð­ings síns Yahya Jammeh, for­seta lands­ins til 22 ára. Jammeh við­ur­kenndi ósigur sinn í kosn­ing­unum í kjöl­farið, óskaði Barrow til ham­ingju, og tjáði þar að auki að kosn­ing­arnar hafi verið „gegn­sæj­ustu kosn­ingar í heimi“. Jammeh var ein­ungis annar for­seti lands­ins frá sjálf­stæði 1965 en hann tók völdin í valdaráni árið 1992.

Vonir Gamb­íu­manna um að landið myndi upp­lifa fyrstu frið­sam­legu valda­skipti í sögu lands­ins virt­ust hins vegar orðnar að engu þegar Jammeh til­kynnti rúmri viku eftir kosn­ing­arnar að hann hafn­aði nið­ur­stöð­unum. Hann hafði þá skipt um skoðun og taldi að kosn­ing­arnar hefðu verið gall­aðar og lagði til að nýjar yrðu haldnar. Hermenn vöktu í kjöl­farið ugg hjá borg­ar­búum í Banjul, höf­uð­borg Gambíu, þegar þeir byrj­uðu að hlaða sand­böggum í kringum hern­að­ar­lega mik­il­væga staði víðs vegar í borg­inni.

Viðbrögð innanlands og meðal Afríkuríkja

Gambía undir stjórn Jammeh hefur fundið fyrir auk­inni ein­angrun í alþjóða­sam­fé­lag­inu á und­an­förnum árum og þá einna helst eftir fall Muammar Gaddafi í Líbíu sem veitti stjórn Jammeh umtals­verðan fjár­hags­legan stuðn­ing. Jammeh dró aðild Gambíu að Samveldi sjálf­stæðra ríkja (e. Commonwealth) til baka árið 2013 og til­kynnti form­lega að landið yrði íslamskt lýð­veldi árið 2015 í nafni afný­lendu­væð­ingar en reyndi eflaust með því að færa landið nær efna­miklum bak­hjörlum á borð við Sádí-Arabíu.

Það virð­ist þó eins og til­raunir Jammeh í alþjóða­sam­skiptum hafi mis­tek­ist í ljósi for­dæm­ingar á gjörðum hans úr öllum áttum. Leið­togar vestur-afríska ríkja­sam­bands­ins ECOWAS voru fljótir að for­dæma atferli Jammeh sem og Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu Þjóðanna, Afr­íku­sam­bandið (AU) og Samband íslamskra ríkja (OIC).

Sama er uppi á ten­ingnum inn­an­lands. Þegar Jammeh bað hæsta­rétt lands­ins um að úrskurða kosn­ing­arnar sem ólög­mætar voru of fáir sitj­andi dóm­arar til að gera það og getur Jammeh kennt sjálfum sér um fyrir að hafa rekið þá flesta á síð­ustu árum. Þá til­kynnti lög­manna­fé­lag Gambíu að þau álitu það land­ráð ef Jammeh víki ekki úr emb­ætti og kenn­ara­fé­lag, náms­manna­fé­lag, við­skipta­ráð, ell­efu sendi­herrar Gambíu erlendis og jafn­vel íslamska ráð lands­ins hafa öll for­dæmt Jammeh.

Tilraunir að sáttasamningum

Leið­togar fjög­urra ECOWAS-ríkja (Ghana, Líberíu, Nígeríu og Sierra Leone) fóru til Banjul eftir að Jammeh neit­aði að víkja úr emb­ætti til að sann­færa hann um að virða útkomu kosn­ing­anna en ítrek­aðar til­raunir og til­boð um hæli, bæði frá Marokkó og Nígeríu, mistók­ust. ECOWAS til­kynnti strax í kjöl­far ákvörð­unar Jammeh að sam­tökin myndu ekki úti­loka hern­að­ar­að­gerðir til þess að fram­fylgja útkomu kosn­ing­anna og rík­is­stjórn Senegal, sem umlykur Gambíu land­fræði­lega, til­kynnti að hún myndi vernda Senegala sem byggju í Gambíu.

Kjör­tíma­bil Jammeh rann út þann 19. jan­úar og í aðdrag­anda þess stilltu her­sveitir vestur-afrískra ríkja, undir stjórn Senegal, sér upp með fram landa­mær­unum að Gambíu. Hers­höfð­ingi gambíska hers­ins til­kynnti að her­menn hans myndu ekki berj­ast gegn inn­rás her­sveita frá Senegal og að hann myndi ekki blanda her­mönnum sínum inn í „heimskan bar­daga“.

Adama Barrow var svar­inn inn í emb­ætti for­seta Gambíu í sendi­ráði Gambíu í Dakar, höf­uð­borg Senegal, og var ætlað að snúa aftur til Banjul um leið og Jammeh hvarf frá. Föstu­dag­inn 20. jan­úar, gengu her­sveitir undir stjórn Senegal inn í Gambíu en Jammeh var enn í borg­inni eftir að for­setar Márit­aníu og Gíneu höfðu gert loka­til­raun til að ná að sátta­samn­ingum við dag­ana tvo á undan. Jammeh óskaði eftir meiri tíma og því að ECOWAS verði skipt út sem samn­ings­að­ilar en ólík­legt var að neinar af óskum hans verði að veru­leika. Vonir voru bundnar við að Jammeh myndi fall­ast á að víkja frá eftir því sem fleiri og fleiri gambískir her­menn ákváðu að berj­ast ekki gegn inn­rás­ar­hernum.

Tími Jammeh sem for­seti er nú lið­inn og hefur hann loks tekið boði um að víkja úr emb­ætti og fara í útlegð. Þetta táknar það einnig enda valda­tíðar sem hefur ein­kennst af harð­stjórn og brotum á löngum lista mann­rétt­inda; morð, pynt­ingar og ofsóknir á blaða­mönnum, mann­rétt­inda­verj­endum, póli­tískum and­stæð­ingum og hinsegin fólki svo eitt­hvað sé nefnt. Þrýst­ingur frá her­sveitum ECOWAS-ríkj­anna og sátta­samn­inga­nefndir leið­toga ECOWAS-ríkja báru ávöxt og útlegð Jammeh án átaka hlýtur að telj­ast sigur fyrir alþjóða­stofn­anir í Afríku fyrir að sýna sam­stöðu til að fram­fylgja útkomu lög­mætra kosn­inga.

Jammeh steig um borð í ómerkta flug­vél í nótt, aðfara­nótt sunnu­dags, og yfir­gaf Gambíu. Ekki er vitað hvert för hans var heitið en ljóst að hann hefur látið undan þrýst­ingnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár