Bjarni segist ekki hafa vitað að félag sem hann átti í var skráð á Seychelles-eyjum

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að hann hafi alltaf staðið í þeirri trú að félag, sem hann átti þriðj­ungs­hlut í vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai, hafi verið skráð í Lúx­em­borg. Það hafi ekki verið fyrr en erlendur blaða­maður hafi bent honum á það að hann hafi kom­ist að því að félagið, Falson & Co, hafi verið skráð á Seychelles-eyjum. Það hafi engin áhrif haft í skatta­legu sam­hengi. Þetta segir Bjarni á Facebook-síðu sinni.

Fyrir skömmu var greint frá því að bæði Bjarni og Ólöf Nordal, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, séu bæði á lista yfir þá íslensku aðila sem tengj­ast aflands­fé­lögum. Ólöf sendi frétta­stofu RÚV svar í dag þar sem fram kemur að það hafi verið ráð­gjafar Lands­bank­ans í Lúx­em­borg sem hafi lagt það til við eig­in­mann hennar, Tómas Sig­urðs­son, að stofnað yrði sér­stakt erlent fjár­fest­inga­fé­lag utan um fjár­fest­ingar. Bankinn hafi verið skráður eig­andi þess en „aldrei kom þó til þess að Tómas nýtti félagið til fjár­fest­inga eða tæki yfir eign­ar­hald þess. Félagið er því okkur hjónum óvið­kom­andi. Eftir því sem við komumst næst var félagið lagt niður árið 2008,“ skrifar Ólöf.

Bjarni segir að honum þyki þetta miður, en vilji jafn­framt ítreka að við­skipti hans hafi ekki verið í skatta­skjóli, enda gefin upp á Íslandi. „Fyrir tíu árum keypti ég fyrir tæpar 40 m.kr. þriðj­ungs­hlut í eign­ar­halds­fé­lagi sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafði stofnað fyrir við­skipta­fé­laga minn um kaup á fast­eign í Dubai. Ég gerði grein fyrir kaupum á félag­inu og nið­ur­lagn­ingu þess gagn­vart íslenskum skatt­yf­ir­völdum og hef alla tíð staðið í þeirri trú að félagið ætti varna­þing í Lúx­em­borg,“ skrifar Bjarni. Eini til­gangur félags­ins hafi verið að halda utan um eign­ina í Dubai, en svo hafi farið að gengið hafi verið úr kaup­unum árið 2008 og ári seinna hafi málið verið gert upp með tapi og félagið sett í afskrán­ing­ar­ferli.

Hér að neðan má lesa yfir­lýs­ingar Bjarna og Ólafar á Facebook.

Yfir­lýs­ing Bjarna:

„Að gefnu til­efni vil ég taka eft­ir­far­andi fram:

Fyrir tíu árum keypti ég fyrir tæpar 40 m.kr. þriðj­ungs­hlut í eign­ar­halds­fé­lagi sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafði stofnað fyrir við­skipta­fé­laga minn um kaup á fast­eign í Dubai. Ég gerði grein fyrir kaupum á félag­inu og nið­ur­lagn­ingu þess gagn­vart íslenskum skatt­yf­ir­völdum og hef alla tíð staðið í þeirri trú að félagið ætti varna­þing í Lúx­em­borg. Það var ekki fyrr en mér barst ábend­ing frá erlendum blaða­manni að ég komst að því að svo hefði ekki verið, en umrætt félag Falson & Co, var skráð á Seychelles-eyjum. Það hafði þó engin áhrif í skatta­legu sam­hengi.

Í þessu ljósi ber að skoða svör mín í Kast­ljósi 11. febr­úar 2015, þar sem ég sagði aðspurður að ég hefði ekki átt neinar eignir eða við­skipti í skatta­skjólum. Þessi svör gaf ég eftir bestu vit­und, enda taldi ég mig aldrei hafa átt neitt á aflands­svæði. Ég vil eins og aðrir hafa það sem sann­ara reyn­ist og þykir þetta miður, en vil jafn­framt ítreka að þessi við­skipti mín voru ekki í skatta­skjóli, enda gefin upp á Íslandi.

Eini til­gangur félags­ins var að halda utan um eign­ina í Dubai en svo fór að við tókum aldrei við henni. Ákveðið var að ganga út úr kaup­unum árið 2008 og árið 2009 var málið gert upp með tapi og félagið sett í afskrán­ing­ar­ferli. Það hafði engar tekjur, skuld­aði ekk­ert, tók aldrei lán, átti engar aðrar eignir, hvorki fyrr né síðar og hafði enga starf­semi. Við gild­is­töku reglna um hags­muna­skrán­ingu þing­manna átti ég því hvorki hlut í félagi í atvinnu­rekstri né aðrar fast­eignir en hús­næði til eigin nota. Rétt er að taka fram að um þessi fast­eigna­kaup hefur áður verið fjallað í fjöl­miðlum árið 2010.

Ég tók þá ákvörðun er ég bauð mig fram til emb­ættis for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins að stunda ekki við­skipti sam­hliða starfi mínu og hef frá árinu 2009 ekki átt hluta­bréf. Sem fjár­mála­ráð­herra hef ég beitt mér fyrir aðild Íslands að upp­lýs­inga­skipta­samn­ingum um skatta­mál við önnur lönd, sem tryggja sjálf­virkar og betri upp­lýs­ingar fyrir íslensk skatt­yf­ir­völd. Að auki lagði ég til við rík­is­stjórn Íslands að sér­stök fjár­heim­ild yrði sótt fyrir kaup á skatta­gögnum.

Í þessum efnum tel ég rétt að fylgja ein­faldri reglu. Það eiga allir að skila sínu til sam­eig­in­legs rekstrar sam­fé­lags­ins. Lang­flestir fylgja þess­ari sjálf­sögðu reglu. Ég mun láta einskis ófreistað til að ná til hinna, sem fara á svig við lög og reglur og vilja fá frítt far með sam­borg­urum sínum sem halda uppi lífs­gæð­unum á Íslandi.“

Yfir­lýs­ing Ólafar:

„Vegna frétta:

Hvorki ég né eig­in­maður minn eigum eða höfum átt hlut í fjár­fest­ingar- eða eign­ar­halds­fé­lögum sem skráð eru á Bresku Jóm­frú­areyjum eða í nokkru öðru landi sem talin eru til skatta­skjóla. 
Mið­viku­dag­inn 16. mars síð­ast­lið­inn barst mér fyr­ir­spurn frá tveimur þýskum blaða­mönnum, Frederik Obermaier og Bastian Oberma­yer, fyrir hönd dag­blaðs­ins Süddeutsche Zeitung og útvarps- og sjón­varps­stöðv­ar­innar NDR, um Dooley Securities S.A, hluta­fé­lag sem mun hafa ver­ið­skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Fyr­ir­spurn þeirra snéri að hugs­an­legum tengslum mínum við félagið.
Mánu­dag­inn 22. mars svar­aði ég fyr­ir­spurn­inni. Nokkrum dögum áður hafði, Tómas Sig­urðs­son, eig­in­maður minn einnig svarað fyr­ir­spurn­inni. Tómas hefur unnið fyrir alþjóð­legt fyr­ir­tæki und­an­farin 12 ár, fyrst hér á Íslandi en síðar í Evrópu og nú starfar hann í New York.
Síðari hluta árs­ins 2006 leit­aði Tómas ráð­gjafar hjá Lands­banka Íslands varð­andi fjár­mál og kaup­rétt­ar­samn­inga sem voru hluti af starfs­kjörum hans . Mark­miðið var að njóta leið­sagnar bank­ans varð­andi hugs­an­legar fjár­fest­ingar í erlendum verð­bréfum enda starfs­vett­vangur Tómasar alþjóð­legur. 
Ráð­gjafar Lands­bank­ans lögðu til að stofnað yrði sér­stakt erlent fjár­fest­ing­ar­fé­lag. Lands­bank­inn í Lúx­em­borg stofn­aði félagið, Dooley Securities og var bank­inn skráður eig­andi þess. Í undi­bún­ingi þessa máls veitti bank­inn Tómasi umboð á umrætt félag og óskaði hann jafn­framt eftir því að ég fengi sam­bæri­legt umboð. Það mun vera skýr­ing á því að nöfn okkar eru á umræddum lista. En aðstæður breytt­ust og aldrei kom til þess að Tómas tæki yfir eign­ar­hald þessa félags eða nýtti það til fjár­fest­inga. Allt þetta gerð­ist áður en ég tók sæti á Alþingi og voru þessi áform löngu aflögð þegar reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna tóku gildi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár