Staðlaráð vill ekki lögfesta jafnlaunavottun

Staðla­ráð er eig­andi jafn­launa­stað­als­ins en vill ekki lög­festa jafn­launa­vottun. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafði aldrei sam­band við ráðið við gerð frum­varps­ins, sem ráðið segir sam­ráðs­leysi með ólík­indum.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra félags- og hús­næð­is­mála Mynd: Birgir Þór Harðarson

Staðla­ráð Íslands telur ekki rétt að skylda fyr­ir­tæki og stofn­anir til þess að inn­leiða jafn­launa­vottun, en ráðið er útgef­andi stað­als­ins sem not­aður er við slíka vottun. Þetta kemur fram í umsögn Staðla­ráðs við frum­varp Þor­steins Víglunds­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, um jafn­launa­vottun.

„Miklu fremur ætti að umb­una þeim sem það gera með ein­hvers konar íviln­unum. Minnt er á að skyldan til að greiða körlum og konum sömu laun fyrir sömu eða jafn verð­mæt störf er þegar til staðar í lögum, stað­all­inn breytir engu þar um,“ segir í umsögn Staðla­ráðs. Ráðið telur væn­legra til árang­urs að beita jákvæðri hvatn­ingu frekar en þving­unum. Staðlar eins og jafn­launa­stað­all­inn séu almennt ætl­aðir til val­frjálsrar notk­unar.

„Vottun á jafn­launa­kerfi sam­kvæmt ÍST 85:2012 er ein lausn sem fyr­ir­tæki og stofn­anir geta notað til að sýna fram á að þau fari að lögum, en slík vottun þarf ekki - og ætti ekki - að vera eina úrræðið. Fyr­ir­tæki og stofn­anir ættu að hafa frelsi til að beita öðrum úrræð- um til að sýna fram á að þau fari að lögum. Til­gang­ur­inn með gerð stað­als­ins var að láta í té úrræði, sem gera mátti ráð fyrir að mörg fyr­ir­tæki og stofn­anir þekktu þegar af öðrum sviðum, svo sem umhverf­is­stjórnun og gæða­stjórnun.“ 

Staðla­ráð segir einnig að það þurfi að end­ur­skoða jafn­launa­stað­al­inn á næstu árum, og að hug­takið vottun í frum­varp­inu sé ekki nákvæm­lega það sama og í staðl­inum. Þá segir ráðið að ekk­ert hafi verið leitað til þess við samn­ingu frum­varps­ins, þrátt fyrir að það gefi út stað­al­inn og eigi höf­undar- og nýt­ing­ar­rétt á honum. Þetta seg­ist Staðla­ráð harma. „Rétt er að fram komi að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafði aldrei sam­band við Staðla­ráð til að fá ábend­ingar, ráð­legg­ingar eða upp­lýs­ingar varð­andi þá fyr­ir­ætlun ráðu­neyt­is­ins að gera notkun stað­als­ins skyldu­bundna fyrir öll fyr­ir­tæki og stofn­anir í land­inu með 25 eða fleiri starfs­menn. Staðla­ráð telur þessa fram­göngu með ólík­indum og harmar slíkt sam­ráðs­leysi.“

Ráðið seg­ist reiðu­búið að veita allar upp­lýs­ingar, ábend­ingar og ráð­legg­ingar sem kunni að koma að gagni við áfram­hald­andi vinnslu máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár