Er fasteignabóla á Íslandi? Já og nei

Mikil hækkun fast­eigna­verðs hefur vakið spurn­ingar um hvort fast­eigna­bóla sé nú á land­inu sem á end­anum muni springa með látum.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hélt því fram í fréttum RÚV í gær að það væru aug­ljós ein­kenni fast­eigna­bólu á Íslandi nú um stundir. Slíkar raddir hafa heyrst víðar enda hefur fast­eigna­verð hækkað hratt og leigu­verð, sé mið tekið af vísi­tölu leigu­verðs hjá Þjóðskrá, hefur gert það einnig. Mikil eft­ir­spurn er eftir íbúðum og selj­ast þær hratt þessi miss­erin.

Í fyrra hækk­aði fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 15 pró­sent en fá ef þá nokkur for­dæmi eru fyrir svo mik­illi hækkun á einu ári hér á landi.

Þrátt fyrir þessa miklu hækkun þá benda flestar spár til þess að fast­eigna­verðið muni halda áfram að hækka á næstu miss­erum og segir í nýrri skýrslu Arion banka um fast­eigna­mark­að­inn að gera megi ráð fyrir allt að 30 pró­sent hækkun á fast­eigna­verð á næstu þremur árum.

En er þá fast­eigna­bóla, ef verðið er að rjúka svona upp? Er inni­stæða fyrir þessum hækk­unum? Eflaust er það spurn­ing hvernig skil­greina eigi fast­eigna­bólu, en vand­inn við efna­hags­bólur, sem svo eru kall­aðar af hag­fræð­ingum sér­stak­lega, er að þær koma sjaldn­ast í ljós fyrr en þær eru sprungnar með slæmum afleið­ingum fyrir almenn­ing. Þá fyrst hafa fræði­menn full­vissu fyrir því að um bólu hafi verið að ræða. 

Deila má um hvaða til­gangi það þjónar yfir höfuð að nota slík hug­tök um stöðu mála á hverjum tíma, en í ljósi sög­unnar getur ekki talist und­ar­legt að þetta ber­ist í tal.

Nokkur atriði skipta sköpum, þegar kemur að hækk­un­inni á und­an­förnum árum.

  1. Eftir hrunið var nán­ast ekk­ert byggt af fast­eignum í vel á þriðja ár, og hefur ekki enn tek­ist að byggja upp nægi­legan bygg­ing­ar­hraða til að halda í við nátt­úru­lega eft­ir­spurn á mark­aðnum. Talið er að það þurfi að byggja um 1.800 til 2.000 nýjar íbúðir á ári til að anna eft­ir­spurn og fólks­fjölgun, en eins og staða mála hefur verið á und­an­förnum árum þá hefur það ekki náðst. Mikið vantar upp svo að jafn­vægi náist og hefur það verið nefnt að í það minnsta fimm til tíu þús­und íbúðir þurfi að byggj­ast upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu þremur árum til að staðan batni.
  2. Halldór Hall­dórs­son, odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, hefur gagn­rýnt Reykja­vík­ur­borg fyrir lóða­skort og að ekki gangi nægi­lega hratt að byggja upp íbúðir í borg­inni. Höf­uð­borgin sé búin að draga lapp­irnar í þessum efnum. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, sagði í sam­tali við RÚV í gær að hann vildi að fleiri sveit­ar­fé­lög kæmu í það með Reykja­vík að bjóða upp á fleiri lóðir til upp­bygg­ingar.
  3. Launa­hækk­anir og hröð aukn­ing kaup­máttar hjá almenn­ingi hefur vafa­lítið ýtt undir fast­eigna­verðs­hækk­anir. Samið var um á bil­inu 20 til 30 pró­sent launa­hækk­anir til þriggja ára á síð­asta ári, hjá flestum stéttum, og má gera ráð fyrir að þetta ýti undir mögu­leika fólks til að greiða hærra verð fyrir íbúð­ina. Lyk­il­at­riðið þegar kemur að auknum kaup­mætti launa hefur verið lág verð­bólga. Hún mælist nú 1,9 pró­sent en það sem heldur lífi í henni, ef svo má að orði kom­ast, er hröð hækkun á fast­eigna­verði.
  4. Styrking krón­unnar nam um 18 pró­sentum í fyrra og dró hún úr verð­bólgu­þrýst­ingi, þar sem inn­fluttar vörur verða ódýr­ari þegar krónan er að styrkj­ast. Sé litið til hækk­unar fast­eigna­verðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu út frá Banda­ríkja­dal þá nam hækk­unin meira en 30 pró­sentum. Í sögu­legu sam­hengi hefur mikil styrk­ing oftar en ekki ýtt undir mikla einka­neyslu og hefur það gerst núna einnig.
  5. Mikill vöxtur í ferða­þjón­ust­unni hefur haft mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn, þar sem fjöl­margar íbúðir - einkum mið­svæðis í Reykja­vík - eru leigðar út í ferða­manna. Á síð­ustu árum hafa þær verið í kringum 3.000 tals­ins.

Hvort fast­eigna­bóla sé nú hér á landi er eins og áður sagði erfitt að segja til um, og fer eftir því á hvaða for­sendum hún er skil­greind. En verð­hækk­an­irnar hafa í það minnsta átt sér til­tölu­lega rök­réttar skýr­ingar nú. Þá eru lands­menn að spara meira nú en t.d. fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og skulda­staða þjóð­arbss­ins hefur kúvenst til hins betra eftir upp­gjörið á slita­búum hinna föllnu banka sem skila rík­is­sjóði um 500 millj­arða króna ávinn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár