Rúmlega 15 þúsund börn á Íslandi með erlendan bakgrunn

Fjöldi barna með erlendan bak­grunn að hluta eða öllu leyti hefur þre­fald­ast frá árinu 1998. Í byrjum síð­asta árs voru tæp­lega 13 pró­sent leik­skóla­barna með erlent móð­ur­mál.

Börn sem eru inn­flytj­endur, önnur kyn­slóð inn­flytj­enda eða eiga annað for­eldri sem er erlent voru alls 15.634 í upp­hafi árs í fyrra. Fjöldi þeirra hefur þre­fald­ast á tæpum tveimur ára­tugum og auk­ist um 65 pró­sent frá byrjun árs 2007. Fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á einum ára­tug.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Hagstofu Íslands um stöðu barna á Íslandi.

Í ljósi þess að inn­flytj­endum hefur aldrei fjölgað jafn hratt á Íslandi og þeim gerði í fyrra má gera ráð fyrir að börnum inn­flytj­enda hafi fjölgað enn frekar á því. Í fyrra fluttu 7.888 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins umfram þá sem fluttu frá því. Fjöld­inn hefur aldrei verið meiri á einu ári í Íslands­sög­unni. Á fyrsta árs­fjórð­ungi þess árs fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum um 1.090 tals­ins. Það er um 37 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem varð á fjölda erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi á sama tíma­bili í ár.

Flest tala pólsku

Í tölum Hag­stof­unnar kemur einnig fram að á meðal leiks­skóla­barna séu 12,6 pró­sent með erlent móð­ur­mál og 9,3 pró­sent barna í grunn­skólum eru með slíkt.

Stærstu hóp­arnir sem voru með erlent móð­ur­mál í leik- og grunn­skólum lands­ins voru með pólsku sem móð­ur­mál. Af 2.410 leik­skóla­börnum með erlent móð­ur­mál voru 38,7 pró­sent með pólsku og af 4.148 grunn­skóla­börnum með erlent móð­ur­mál voru 35,4 pró­sent með pólsku.

Alls sóttu 176 börn um hæli á Íslandi í fyrra. Það eru færri en árið áður þegar þau voru 271 tals­ins og höfðu aldrei verið fleiri.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Pól­verjar á Íslandi væru orðnir 17 þús­und tals­ins. Fjöldi þeirra sem annað hvort eru fæddir í Pól­landi eða eru pólskir rík­is­borg­arar en búa á Íslandi hefur því 21fald­ast á 20 árum.

Fjölgar hratt

Í byrjun árs 2017 voru 2.453 börn á Íslandi inn­flytj­endur, 4.135 voru önnur kyn­slóð inn­flytj­enda, 7.108 voru fædd á Íslandi en áttu eitt for­eldri sem var erlent og 1.938 voru fædd erlendis en áttu annað for­eldri sem var erlent. Samtals gera þetta 15.634 börn sem voru þá 4,6 pró­sent allra lands­manna. Það fjölg­aði um fimm pró­sent í öllum þessum hópi á milli ára og börn sem eru inn­flytj­endur fjölg­aði um 10,4 pró­sent á árinu 2016 einu saman.

Árið 1998 til­heyrðu 5.295 börn þessum hópi og því hefur hann þre­fald­ast á tæpum tveimur ára­tugum. Það ár voru þessi börn 1,9 pró­sent lands­manna.

Á árinu 2007 voru börnin með erlendu teng­ing­arnar 9.460, eða þrjú pró­sent þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár