Meirihlutinn ánægður með Ólaf Ragnar undir lokin

62,4 pró­sent Íslend­inga voru ánægð með störf Ólafs Ragnars Gríms­sonar sem for­seta Íslands, sam­kvæmt síð­ustu könnun sem MMR gerði á ánægju með störf hans í júlí síð­ast­liðnum. Í könn­un­inni þar á undan mæld­ist ánægja með Ólaf Ragnar 64,7%.

Ekki hafa jafn margir verið ánægðir með störf for­set­ans fyrr­ver­andi frá því í byrjun árs­ins 2013, þegar nýbúið var að kveða upp dóm í Icesave-mál­inu. Ánægja með störf hans hefur vaxið tals­vert á þessu ári, eftir að hafa farið niður í 47% í lok síð­asta árs.

Mikill munur reynd­ist á ánægju með störf Ólafs Ragnars eftir stjórn­mála­flokkum, eins og oft­ast, og þau sem studdu rík­is­stjórn­ar­flokk­ana Fram­sókn­ar­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, voru mun ánægð­ari með störf hans en stuðn­ings­menn ann­arra stjórn­mála­flokka.

Tæplega 88% fram­sókn­ar­kjós­enda voru ánægðir með for­set­ann og 81,4% þeirra sem kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 65% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar sögð­ust ánægð með Ólaf Ragnar og 59% Pírata. Aftur á móti var ánægja með for­set­ann 38,4% hjá kjós­endum Sam­fylk­ingar, 43,7% hjá stuðn­ings­fólki Við­reisnar og 48,3% hjá kjós­endum Vinstri-grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár