Gisting í gegnum Airbnb dregist saman um 18 prósent

Gisting í gegnum Airbnb og sam­bæri­legar síður dróst saman um 18 pró­sent á milli ára í apríl síð­ast­liðnum. Gistin­óttum á hót­elum á lands­byggð­inni fjölg­aði hins vegar um 9,5 pró­sent á milli ára en dróst saman um 14 pró­sent á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Gisting í gegnum Airbnb og svip­aðar síður í apríl síð­ast­liðnum dróst saman um 18 pró­sent frá því í sama mán­uði árið á undan. Gistin­óttum á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækk­aði einnig á milli ára eða um 14,3 pró­sent. Þá dróst heild­ar­fjöldi gistin­átta í apríl saman um 6 pró­sent á milli ára. Þetta kemur fram í nýjum bráða­brigða­tölum Hagstofu Íslands um fjölda gistin­átta.

Hótelgisting á höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 14 prósent

Gistinætur ferða­manna á öllum gisti­stöðum voru um 504.000 í apríl síð­ast­liðnum, en þær voru um 536.000 í sama mán­uði árið 2018. Í hót­elum og gisti­heim­ilum var sam­dráttur saman um 3,7 pró­sent og 2,5 pró­sent fækkun á öðrum teg­unda gisti­staða.

Gistinætur á hót­elum í apríl voru 254.400 sem er 5 pró­sent fækkun frá sama mán­uði árið áður. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækk­aði gistnóttum í hót­elum um 25.100 eða um alls 14,3 pró­sent á milli ára. Gistin­óttum fjölg­aði aftur á móti í öllum öðrum lands­hlutum og nam fjölgun á lands­byggð­inni 9,5 pró­sentum. Á Aust­ur­landi jókst hót­elgist­ing um 57 pró­sent á milli ára.

Herbergjanýting dregist saman um 5,7 prósent á sama tíma og framboð jókst um 5,6 prósent

Í apríl síð­ast­liðnum voru 56 pró­sent allra hót­elgistin­átta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í heild­ina var her­bergj­a­nýt­ing í apríl 2019 var 48,6 pró­sent, sem er lækkun um 5,7 pró­sentu­stig frá apríl 2018 þegar hún var um 54,4 pró­sent. Nýtingin í apríl var best á Suð­ur­nesjum, eða 58,9 pró­sent. Á sama tíma hefur fram­boð gisti­rýmis auk­ist um 5,6 pró­sent mælt í fjölda her­bergja. [adspot]

Banda­ríkja­menn voru með flestir gistinætur hér á landi eða alls 66.100 í apríl 2018, þar á eftir koma Bretar og Þjóð­verjar en gistinætur Íslend­inga voru 36.400. Þá voru gistinætur erlendra ferða­manna í íbúða­gist­ingu, far­fugla­heim­ilum, tjald­svæðum og þess háttar voru um 87.000 og um 80.000 í gegnum vef­síður á borð við Airbnb. Gistin­óttum gegnum Airbnb og svip­aðar síður fækkði um 18 pró­sent á milli ára.

Óskráðum og leyf­is­lausum gisti­stöðum fækkað um 30 pró­sent 

[links]Mikil aukn­ing hefur orðið á fjöldi ábend­inga um ólög­lega heimagist­ingu í kjöl­far efl­ingu Heimagist­ing­ar­vakt­ar­innar með fjár­veit­ingu ferða­mála­ráð­herra í júní 2018. Vaktinni hefur borist yfir 3000 ábend­ingar um óleyfi­lega heimagist­ingu síðan í sumar. Þá hafa 59 mál verið send lög­reglu til rann­sóknar og 61 máli verið lokið með stjórn­valds­sektum en fyr­ir­hug­aðar og á­lagð­ar­ ­stjórn­valds­sektir nema tæp­lega 100 millj­ónum króna.

Á árinu 2017 var áætlað að 80 pró­sent íbúða í skamm­tíma­leigu væru starf­ræktar án til­skil­inna leyfa eða skrán­ing­ar. Í sam­tali við Frétta­blaðið fyrr í mán­uð­inum sagði Sýslu­maður að hann áæt­laði að óskráðum og leyf­is­lausum gisti­stöðum hafi fækkað um meira en 30 pró­sent frá því að átakið hófst síð­asta sum­ar. Sýslu­maður áætlar þó að um helm­ingur allrar skamm­tíma­leigu fari enn fram hér á landi án til­skil­inna leyfa eða skrán­ing­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár